Atómljóð

Á Hlemmi stjórnmálanna standa 6 vagnar í röð.

  • Leið A Reykjavík-Brussel (Hraðferð)
  • Leið B Reykjavík-Sauðárkrókur-Fljótshlíð
  • Leið D Garðabær-Flórída-Tortilla
  • Leið S Reykjavík-Brussel
  • Leið V Rekjavík-Bakki (UM Vaðlaheiðargöng)
  • Leið þ Hlemmur-Alþingi

Og fólkið ráfar um í leit að réttum vagni. Flestir forðast Leið D,  sem sker sig úr. Það er nefnilega ekki venjulegur strætó heldur lúxusrúta frá Kynnisferðum í stæðinu. Og Leið A er víst ekki lengur á leið. LÍN gerði fjárnám í vagninum en farþegum bent á leið S í staðinn. Þegar líður að brottför er ljóst að flestir munu velja leið Þ.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband