22.4.2016 | 16:48
Fimmtíu manna húsfyllir
Hvorki fjölmenn fundahöld
eða friði spilla
þarf nú sá er þráir völd
ef þjóð, um fyr' nær villa
Og staður fyrir fundinn hans
fyrirfram var valinn
svo að færri en fimmtíu manns
fyllt gætu þar salinn.
Í ýkjubúning frétt er færð
ef fundað er á litlum stað
því "húsfyllir" er huglæg stærð
háð því hverjir túlka það.
-------------------------
Magnús Orri engan styggir
eins og þó gat orðið
Á heiðarleika hann ei byggir
er holar sér við borðið
Vilja reka heiðarleg stjórnmál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 17:03 | Facebook
Athugasemdir
Góður! Í umfjöllun fjölmiðla var engu líkara en að hundruðir manna hefðu mætt á fundinn.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 23.4.2016 kl. 03:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.