4.10.2017 | 10:57
Útilokunaraðferðin
Einu sinni trúði ég því að stjórnmál snerust um hugsjónir. Þá var auðvelt að skipa sér í lið. Í dag er þetta öðruvísi. Í dag hafa hugsjónir vikið fyrir flokkshagsmunum. Það virðist engu skipta þótt við skiptum út þingmönnum því þeir sem koma í staðinn eru alveg eins ef ekki verri. Í dag nota ég útilokunaraðferðina þegar ég geng í kjörklefann. Ég ætla að kjósa það framboð sem ætlar að gera sem minnst. Þeir munu þess vegna líka svíkja minnst.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.