23.10.2017 | 12:30
Löggu-Björn þekkir nepotisma af eigin raun
Sjálfur er Björn sonur Bjarna Benediktssonar, fyrrum formanns FLokksins og ráðherra til margra ára, Bjarni faðir Björns var sonur Benedikts Sveinssonar yngri. Föðursystkini Björns Bjarnasonar eru Sveinn, Pétur, Bjarni, Kristjana, Ragnhildur, Guðrún og Ólöf. Útaf þessum ættboga eru í dag þekktir einstaklingar í þjóðfélaginu á sviði viðskipta, stjórnmála, vísinda og lista. Eigum við að tortryggja störf Guðrúnar Pétursdóttur af því hún er af Engeyjarætt? Eða eigum við að tortryggja viðskipti Heiðars Más Guðjónssonar af því hann er tengdasonur Björns Bjarnasonar? Nei auðvitað ekki. Það dettur engum í hug, að tengja vensl við hagsmuni nema þeim, sem stunda nepotisma sjálfir.
En Björn vílar ekki fyrir sér, í málefnafátækt sinni, að gera ættartengsl ritstjóra Stundarinnar tortryggileg.
Er það ekki hámark hræsninnar?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:40 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.