22.11.2017 | 15:59
Fiskmarkaðir svindla líka
Á meðan kerfið er óréttlátt mun verða svindlað. Það kom fram í þættinum Kveik, að það er landlægt viðhorf alls staðar að það er bara fullkomlega réttlætanlegt að svindla á þessu kerfi. Þetta á að vera útgangspunkturinn í umræðunni. Ekki að hneykslast og setja upp vandlætingarsvip og kenna öðrum um.
Allir sem starfa í greininni bera sameiginlega ábyrgð. Stjórnvöld eru dálítið stikkfrí því þau hafa fyrir löngu framselt vald sitt til hagsmunaaðila í greininni og fjármálastofnana.
Á meðan kvótakerfið er við lýði verður alltaf svindlað. Það eru beinlínis innbyggðir hvatar í kerfinu til þess að gera mönnum það kleif(aberg)t.
Brottkast og svindl er ólíðandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.