13.1.2019 | 20:55
Dagur um Braggamálið
Þótt Eyþór nú allan sig kreppi
ég aldregi völdunum sleppi.
Óreiðu og svik
ég kalla frávik
og sópa því svo undir teppi
Að hafa mig fólkið er heppið,
þótt hárið sé úfið um greppið.
Ég staulast við staf
því almættið gaf
mér veikindi að breiða yfir teppið
Það hankar mig enginn á austri
öllu þó eytt væri í flaustri
Þeir vita sem nenna
það var Hrólfi að kenna
Og ég var sko ekki á Klaustri
Segir ekki um misferli að ræða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.