Auðvelt val í kjörklefanum

Ég skil ekki hvað getur vafist fyrir fólki í Alþingiskosningunum í vor. Hvað mig varðar þá var það ljóst að ég myndi greiða Pírötum atkvæði mitt nánast áður en það framboð var kynnt til sögunnar.  Nákvæmlega á sömu forsendum og ég kaus Best Flokkinn í síðustu sveitastjórnarkosningum.

Íslenskt þjóðfélag er svo gjörspillt að því verður ekki breytt á forsendum fjórflokkakerfisins.  Og þótt Besti Flokkurinn hafi ekki risið undir væntingum þá sýndi árangur hans að það er hægt að brjóta fjórflokkinn á bak aftur.  Þess vegna þurfa allir sem vilja varanlega breytingar á þessu samfélagi að fylkja sér um framboð Pírata í öllum kjördæmum.  Verum ekkert hrædd við að kjósa óþekkta einstaklinga.  Það er stefnan sem skiptir máli.  Og ólíkt fjórflokknum þá getum við haft áhrif á stefnuna án þess að vera hrædd um að einhverjir annarlegir hagsmunir breyti henni eftirá. 

  1. Píratar taka afstöðu eftir málefnum.  það er skynsamleg stefna.
  2. Píratar vilja efla lýðræðið.  það er skynsamleg stefna
  3. Píratar vilja efla þáttöku almennings í ákvörðunum.  Það er skynsamleg stefna
  4. Píratar vilja opið og gegnsætt þjóðfélag.  Það er skynsamleg stefna
  5. Píratar standa vörð um persónufrelsi.  það er skynsamleg stefna

 Þetta allt skiptir sköpum.  Það skiptir ekki mestu máli hvort við afnemum verðtryggingu.  Þá ákvörðun getum við tekið í þjóðaratkæðagreiðslu eftir að við tryggjum að hér verði lögfest nútímaleg stjórnarskrá.  Sama gildir um fiskveiðistjórnunar-fyrirkomulagið.

ÁFRAM  X-Þ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband