10.10.2017 | 14:09
Loksins eitthvað af viti
Inga Sæland ætlar að taka á lífeyrissjóðasukkinu með því að láta þá greiða skatt af iðgjöldum við inngreiðslu. Þarna er vannýttur tekjustofn sem staðið gæti undir 40 milljarða innviðauppbyggingu á ári um ókomin ár. Og með því að skattleggja þetta fé strax þá er komið í veg fyrir að lífeyrissjóðaguttarnir tapi þessum 40 milljörðum í fjárglæfrafjárfestingum eins og United Silicon. Toppar einhver þetta!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Inga vill líka byggja nýtt þjóðarsjúkrahús á betri stað en við Hringbraut þar með aukast líkur á að því stórslysi verði afstýrt um 10%
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 10.10.2017 kl. 14:13
Í þriðja lagi vill Þessi eldhugi að þjóðin fá þá stjórnarskrá sem hún setti sér. Þarna eru komnar 3 góðar ástæður fyrir fólk í vafa, að kjósa Flokk Fólksins. Og stóri bónusinn er náttúrulega sá að þetta eru spánný og ónotuð stefnumál sem ekki hafa verið svikin áður.How about that!
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 10.10.2017 kl. 14:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.