16.10.2017 | 19:38
Miðaldrakrísa útbrunnins stjórnmálamanns
Miðaldrakrísa Bjarna Benediktssonar birtist ásjónum landsmanna í auglýsingaherferð peningavaldsins á skjám landsmanna á öllum stöðvum. Útlitsdýrkun á pari við 15 ára fermingarstelpu. Enginn hörgull á peningum þar þótt ríkisframlagið sé löngu upp urið. Kannski að Glitnir Holding hafi verið látinn greiða fyrir hárlitunina og andlitsmeðferðina í leiðinni. Verð að segja að svona spjátrungsháttur virka öfugt á mig. Kannski í lagi að nota svona trix á framhjáhaldssíðum sem Icehot1 en varla sem forsætisráðherra Íslands þessar síðustu vikur í starfi. Mín skilaboð eru; Sættu þig við gráa hárið. Það er engin skömm að því að eldast. Eina skömmin er hvernig þú og þínir þingflokksmenn hafið komið fram gagnvart eldri borgurum þessa lands
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2017 | 19:19
a note to self
Muna eftir að reka þennan sýslumann eftir kosningar
![]() |
Gríðarlegt inngrip í opinbera umræðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2017 | 15:23
Framsókn
Í andstreyminu eltist við
og athyglina fangar
láta knéi fylgja kvið
kappann Sigurð langar
Nú lífeyrinn vill lána þér
og lætur mása móðinn
ekki lengur eignar sér
í-búðar-lána-sjóðinn
Þótt út úr þeirri örgu neyð
sem áður hafði Framsókn hannað
vel sé hægt að velja leið
er vandinn bara fluttur annað.
![]() |
Vill fund vegna svissneskrar leiðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.10.2017 | 11:40
Slökkt á leiðarljósinu
Sér keikur Bjarni ber á brjóst
en bara holur grefur
Því öllum öðrum er það ljóst
að engan stuðning hefur.
Löngu er það liðið hér
að lygi trúi nokkur
samt mannúðina eignar sér
Íhalds bullu flokkur
![]() |
Eigum að senda út skýr skilaboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2017 | 03:27
Lævísi
Ef kjósa ei ætlirðu ákveðinn mann
öfuga sálfræðin dugar þér best
Uppgerðar lofræðu haltu um hann
og hrósaðu öllu sem oftast og mest
Þó allir hér viti að oflof er háð
einhverjir munu samt efast
En sé frækornum tortryggni í sálina sáð
mun sæmileg uppskera gefast.
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 10:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2017 | 02:07
Eyðileggjandi uppbygging!
Ég sakna þess að heyra engan sitjandi Alþingismann tjá sig um þetta tilræði HS Orku gegn ósnortinni náttúru rétt sunnan núverandi marka friðlandsins á Hornströndum. Málið er einfaldlega of stórt til að leggja það alfarið á herðar 5 einstaklinga í hreppsnefnd Árneshrepps á Ströndum.
Það er borðleggjandi að stækka nú þegar friðlandið á Hornströndum svo það nái yfir allt svæðið allt suður til Ingólfsfjarðar að austanverðu og þaðan í beina línu yfir að Nauteyri í Djúpinu. Þessi aðgerð mundi duga til að bjarga svæðinu frá þeirri eyðileggjandi uppbyggingu sem þar er áformuð. Þetta er ekki aðeins mál eins eða tveggja landeigenda sem seldu frá sér vatnsréttindi. Þetta er mál okkar Íslendinga allra. Byggðin í Árneshreppi þyrfti ekkert að breytast en allt eignarland innan svæðisins yrði tekið eignarnámi af ríkinu við fullnustu svona áforma. Er eftir einhverju að bíða? Alþingismenn eru á launum og eiga að vera að vinna fyrir þjóðina en ekki sjálfa sig og flokkana. Hunskist nú til að mæta í vinnuna og færið Hvalárvirkjun úr nýtingarflokki ekki seinna en strax! Enda eru þau áform sem nú eru uppi ekki sambærileg við þann virkjunarkost sem áður var uppi á borðinu þegar litla virkjunin var sett í umhverfismat og þar með nýtingarflokk.
![]() |
Engin glóra í Hvalárvirkjun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2017 | 00:42
Einhver þarf að tala við Sigmund
Hér er spurning fyrir geðlækna. Er hægt að fara í svo mikla afneitun að maður missi úr heilt ár af ævi sinni?
28.október næstkomandi, er nákvæmlega 1 ár liðið síðan ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar var slitið og við gengum til kosninga. En Sigmundur Davíð talar alltaf eins og hann hafi verið forsætisráðherra í síðustu ríkisstjórn, en bara farið í tímabundið frí og nú sé hann tilbúinn að snúa aftur og taka við stjórnartaumunum. Mér finnst þetta óþægilegt. Og það er illa gert af þessu liði sem fylkir sér um keisarann og skýlir nekt hans, að vera svona meðvirkt.
28.október n.k. göngum við til kosninga og kjósum nýja áhöfn á skútuna Alþingi. Þá fyrst er hægt að huga að því að ráða skipstjóra. Og einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að það verði ekki Sigmundur Davíð sem verði fyrir valinu. Því er það fullkomlega ótímabært að gera hans persónulegu minnisblöð, að möndlinum, sem þessar kosningar snúast um.
Því þetta sem hér birtist í samantekt blaðakonunnar, er engin stefna. Þetta eru bara punktar úr minnisblöðum eins og menn hripa gjarnan niður til frekari úrvinnslu. Kannski er hægt að nýta þessa punkta en sú vinna á langt í land. Þegar Miðflokkurinn hefur klárað heimavinnuna má segja að hann sé tilbúinn í kosningar. En núna er brýnt að einhver tali við Sigmund og láti hann vita, að hann er ekki bara í fríi sem forsætisráðherra. Heldur hafi hann verið neyddur til að segja af sér vegna spillingarmála og hugsanlegra skattsvika. Í millitíðinni höfum við fengið yfir okkur ömurlegustu ríkisstjórn allra tíma og nú þurfum við þjóðin á fríi að halda frá honum og hans líkum. Þetta verður drengurinn að skilja.
![]() |
Vill ráðast í kerfisbreytingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.10.2017 | 13:51
Kosningabomba Ásmundar reyndist handsprengja
Kosningabarátta Sjálfstæðisflokksins er fyrirframskipulögð af vönum mönnum sem hafa atvinnu af því að móta almenningsálitið og kunna líka fræðin um Damage control
Það sem af er þessari baráttu hefur formaður flokksins legið undir stöðugri ágjöf vegna persónulegra málefna og þessi pólitíska ágjöf var greinilega farin að hafa skaðleg áhrif á fylgi flokksins í skoðanakönnunum. Og hvað gera almannatenglar og spunadoktorar þá? Jú þeir búa til bombur sem færir athygli frá því sem kemur flokknum verst og yfir á málefni sem fáir þora að snerta við en allir hafa sterkar skoðanir á. Og það er málefni hælisleitenda/flóttafólks.
Þess vegna trúi ég því ekki að grein Ásmundar Friðrikssonar í Morgunblaðinu í gær hafi komið nokkrum í kosningateymi flokksins á óvart. Þeir beinlínis hvöttu til þess að Ásmundur legði sjálfan sig undir í þeirri von að færa athyglina af Bjarna Benediktssyni yfir á umdeildar skoðanir Ásmundar , sem nota bene hefur viðrað þær áður og ekkert nýtt þar á ferð. Hins vegar held ég að mönnum hafi yfirsézt samlegðaráhrif neikvæðra frétta. Nú tala menn um sjálfstæðisflokkinn sem bæði spilltan og rasískan flokk. það er ekki góður kokteil fyrir fylgismenn flokksins að kyngja.
Í staðinn fyrir kosningabombu var Ásmundi fengin handsprengja sem búið var að taka pinnann úr.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2017 | 15:58
Sunna Ósk Logadóttir
Sunna Ósk Logadóttir á þakkir skildar fyrir greinaskrifin um fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir á Ófeigsfjarðarheiði, kenndar við Hvalá sem birst hafa á mbl.is í dag. Það er greinilegt að blaðamaðurinn hefur lagt mikla vinnu í þetta mál og er óhrædd að taka afstöðu. Vonandi að fleiri taki upplýsta afstöðu eftir að hafa kynnt sér þessi áform rækilega. Það má bara ekki gerast að ósnortin náttúra þessa afskekkta landshluta verði græðgivæðingunni að bráð. Nóg er nú samt á ábyrgð virkjunarsinna sem þeir hafa eyðilagt sem annars væri hægt að njóta um ókomin árhundruð.
![]() |
Marga þyrstir í heiðarvötnin blá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.10.2017 | 14:52
Hrædda kynslóðin
Hrædda kynslóðin er ennþá hrædd vegna þess að hér var og er enn stunduð kerfisbundin hræðslupólitík. Hræðslupólitík um að allt fari hér til fjandans ef andstæðir flokkar komast til valda. Við þekkjum öll þessi slagorð sem notuð eru, Stöðugleiki vs.sundurlyndi, Skattpíning vs. kaupmáttaraukningu og núna síðast, spilling vs. gagnsæi. Hrædda kynslóðin ólst líka upp við takmarkað fjölmiðlafrelsi. Hér var rekin hatrömm flokkspólitík og í skjóli allskonar takmarkana og valdníðslu var alþýðan miskunnarlaust lamin til hlýðni við valdastéttirnar. Æ síðan skilur hrædda kynslóðin ekki hugtök eins og beint lýðræði eða lárétt lýðræði. Hrædda kynslóðin vill áfram píramídalagaðan valdastrúktúr þar sem einn foringi mótar stefnuna og allir hinir fylgja hlýðnir með.
Hrædda kynslóðin skilur ekki nýju pólitíkina. Skilur ekki láréttan valdastrúktúr Pírata, Viðreisnar og Bjartrar Framtíðar. Hrædda kynslóðin situr uppi með Bjarna Benediktsson og Sigmund Davíð. Hrædda kynslóðin vaknar snemma á hverjum kjördegi, fer í sparifötin og kýs áfram sinn kvalara. Þess vegna breytist allt svo hægt. Hrædda kynslóðin er svo hrædd að hún mætir alltaf og kýs. Við þurfum að taka upp rafrænar kosningar til að breyta þessu ójafnvægi. Það gerist aðeins með breytingum á stjórnarskránni. Ný stjórnarskrá mun bæta geðheilsu landsmanna og draga úr hræðslu og kvíða eldri kynslóðanna og auka ábyrgðarkennd yngri kynslóðanna. Ný stjórnarskrá er þjóðarnauðsyn.