12.10.2017 | 12:39
Anarkisti skilgreinir sig til vinstri
Annar þekktasti anarkisti Íslands, Jón Gnarr, hefur nú opinberlega skilgreint sig sem vinstri mann. Hinn anarkistinn, Birgitta Jónsdóttir, horfði á flokkinn sinn færast til vinstri án þess að gera tilraun til að breyta um kúrs. Þetta er held ég, aðalskýringin á minnkandi meðbyr Pirata fyrir þessar kosningar. Fólk hefur ekki lengur væntingar um að Piratar breyti neinu. Þeir eru bara enn ein viðbótin við vinstri flóruna sem er þegar ofmönnuð af eigin primadonnum. Jón Gnarr hefði átt að fá sér vinnu hjá Pírötum...
Hvað sem Piratar segja, þá er enginn grundvallarmunur á hugmyndafræði Pirata eða Samfylkingar eða Bjartrar framtíðar. Flokkurinn sem í raun og veru átti að taka yfir miðjufylgið í íslenzkri pólitík glutraði niður þessu einstaka tækifæri vegna eigin stefnuleysis.
Í nýjustu könnun Félagsvísindastofnunar eru menn beðnir um að skilgreina helstu keppinauta og andstæðinga þess stjórnmálaafls sem líklegast er að menn kjósi. Ég held að fleiri en ég munu telja Samfylkinguna helsta keppinaut Pirata um atkvæðin. Þess vegna geri ég engar athugasemdir við orð þeirra sem gagnrýna Pirata fyrir að vera sósialdemokratar. Tilraunin til að stofna anarkiska fjöldahreyfingu misheppnaðist.
Ísland er ekki tilbúið fyrir breytingar!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.10.2017 | 11:56
Heilsteyptur Benedikt
Afsögn Benedikts Jóhannessonar úr formannssæti Viðreisnar er merki um pólitísk heilindi. Auðvitað var hann ekki settur af. Hann bara tók ákvörðun um að hætta af því þetta vinnuumhverfi hentar honum ekki. Hefur ekkert að gera með pólitíkina sem hann aðhyllist eða ólguna í flokknum hans. Það færi betur ef sumir samstarfsmenn hans og eða skyldmenni, tækju hann sér til fyrirmyndar.
Vék til hliðar vegna fylgis flokksins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2017 | 15:48
Útaf með dómarann!
Þrátt fyrir alla umræðuna undanfarin ár, þá komast byggingarfyrirtæki og eftirlitsaðilar ennþá upp með að vera skaðlaus, þegar húseigendur reyna að leita réttar síns gagnvart þessum svikahröppum fyrir dómstólum.
Nýjasta dæmið er blokkarbygging í Garðabæ. Þar eru allir stikkfrí nema Arion banki sem eignaðist verkefnið eftir þrot byggingarverktakans og lét klára það. Þessi dæmalausi dómari sem dæmdi í máli húsfélagsins, sýknar þá sem brutu allar reglur og svikust um við lokafrágang byggingarinnar en dæmir bankann til að greiða skaðabætur!! Ég get bara ekki skilið svona dómaframkvæmd. Á meðan svona vitleysingar gegna dómarastöðum þá lagast ekki ástandið í byggingabransanum.
11.10.2017 | 13:33
Bjarni svindlar og kíkir á spilin hjá Simma
Nú er það æ ljósara að Morgunblaðið styður ekki lengur forsætisráðherra flokksins. Þeir nenna ekki lengur að fjalla um hvað hann segir á fundum . Hvorki á fundum í flokksfélögum eða á kosningaframboðsfundum út í bæ. Öðru vísi mér áður brá. Nýjasta útspil Bjarna vegna dalandi gengi flokksins, kom í ljós í Forystusætinu á RUV eins og sagt er frá á Eyjunni í gær.Ekki orð um þetta í Morgunblaðinu!
Þetta útspil snýr að því að þynna eiginfjárhlutfall Landsbanka og Íslandsbanka og ná þar í peninga til að eyða í innviðauppbyggingu. Þetta er greinilega ekki eitthvað sem er á stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins. Heldur eru þetta hugmyndir Sigmundar Davíðs, sem Bjarni af alkunnum óheiðarleik, setur hér fram sem sínar eigin. Að kíkja á spil andstæðinganna og nota í eigin leik heitir að svindla. (Innherjasvik eru af sama toga) Og núna situr Sjálfstæðisflokkurinn uppi með formann sem er bæði brennimerktur lygari og svindlari. Ekki nema von að Morgunblaðið hafi snúið við honum bakinu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2017 | 12:26
Starfslýsing fyrir forsætisráðherra
Á Íslandi getur hvaða drullusokkur sem er orðið forsætisráðherra. Eina sem þarf er klíkuskapur, samtrygging og óheiðarleiki. Svona fólk hefur stjórnað okkur undanfarin ár.Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. ekki undanskilin. Nú stefnir í að enn einn umsækjandinn nái að ljúga sig inn í starfið. Þar á ég við Katrínu Jakobsdóttur. Og við látum okkur bara vel líka ..eða hvað?
Á bara hver sem er, að geta orðið hér forsætisráðherra ef hann er með hreint sakavottorð og hefur náð kosningaaldri og er ekki hæstaréttardómari? Þetta eru einu skilyrðin í stjórnarskránni okkar um hæfi ráðherra. Ekkert um þekkingu, hæfni, menntun, fjárhagslegt sjálfstæði, heilsufar eða almennt siðgæðisvottorð. Af hverju gerum við almennt meiri kröfur til bílstjóra, leikskólakennara eða jafnvel fasteignasala heldur en til stjórnmálamanna, Alþingismanna og ráðherra?
Nú er tími til kominn að breyta þessu og krefja stjórnmálamenn svara hverjir veljist til setu í ríkisstjórn eftir næstu kosningar. Ef við fáum ekki að vita þetta áður en við kjósum þá eru kosningarnar tilgangslausar. Katrín Jakobsdóttir verður að svara spurningunni ;
Ef þú færð stjórnarmyndunarumboð eftir kosningar, með hverjum hyggstu starfa og hver eru ráðherraefni flokksins?
Þetta eru grundvallarspurningar sem allir flokksformenn eiga að vera búnir að gera upp við sig og geta svarað núna strax. Kannski finnst fólki allt í lagi að Katrín verði forsætis af því hún er geðug og ekki orðuð við neitt hneykslismál samtímans. Persónulega finnst mér það ekki nóg. Ég vil að við komum okkur saman um hæfisreglur þannig að við fáum alltaf bestu umsækjendurna en ekki einhverjar strengjabrúður. Mér þykir það helvíti hart að af öllum þessum umsækjendum um starf alþingismanns hefur enginn opinberað neina framtíðarsýn nema Sigmundur Davíð. Og hann er ekki hægt að kjósa vegna persónubresta hans.
10.10.2017 | 14:09
Loksins eitthvað af viti
Inga Sæland ætlar að taka á lífeyrissjóðasukkinu með því að láta þá greiða skatt af iðgjöldum við inngreiðslu. Þarna er vannýttur tekjustofn sem staðið gæti undir 40 milljarða innviðauppbyggingu á ári um ókomin ár. Og með því að skattleggja þetta fé strax þá er komið í veg fyrir að lífeyrissjóðaguttarnir tapi þessum 40 milljörðum í fjárglæfrafjárfestingum eins og United Silicon. Toppar einhver þetta!
9.10.2017 | 12:12
Stóra Þórumálið
Fyrir okkur nátttröllin, sem ekki erum á fésbókinni, er nauðsynlegt að hafa ekki-fréttamiðil eins og DV, sem stundar að standa á gægjum og taka skjáskot of tilvonandi hneykslismálum. Eitt slíkt birtist þar um um daginn og fjallaði um Þóru Krístínu Ásgeirsdóttur að tala um Ingu Sæland. Ummælin virtust ekki ýkja særandi við fyrstu sýn en afhjúpa samt ákveðna fordóma hjá Þóru Krístínu varðandi fötlun og fátækt, sem kemur sér illa fyrir VG sem vill höfða til smælingjanna í þjóðfélaginu og ekki síst til þeirra sem búa í Breiðholtinu.
Hvernig Inga Sæland brást við er svo aftur dæmi um húmorsleysi á háu stigi sem er dauðadómur yfir pólitískum forystumanni hvar í flokki sem er.
9.10.2017 | 11:16
Ljúgðu Betur - Nýr samkvæmisleikur í boði RUV
Ég er haldinn kosningavírus. Þess vegna fylgist ég með alls konar útsendingum af alls konar fundahöldum. Í gær horfði ég til að mynda bæði á útsendingu frá stofnfundi Framfaraflokksins, afsakið Miðflokksins, og útsendingu RUV af samkvæmisleiknum Ljúgðu betur
Ljúgðu betur gengur út á að tala í frösum og láta ekki fipa sig. Sá sem lætur fipast og fer í vörn er þar með úr leik. Í þessari fyrstu umferð fipaðist Bjarni Benediktsson þegar honum vafðist tunga um tönn við að svara spurningu Þórhildar Sunnu.
Spurningin var þessi: Er sjálfstæðisflokkurinn að láta ríkissjóð borga fyrir ímyndarvanda sem tengist ráðherrum flokksins?
Í svarinu fipaðist ráðherrann og endaði með því að fordæma spurninguna. Þar með var hann úr leik.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2017 | 20:15
Silfrið
Til þess að pólitískir umræðuþættir virki í sjónvarpi þarf tvennt að koma til. Rétt blanda af viðmælendum og fumlaus tök stjórnandans á umræðuefnum og þáttakendum. Það er augljóslega mjög létt að missa tökin á hvoru tveggja, en Fanney Birna hefur staðið sig með prýði og stýrt umræðunni af þeirri lagni sem til þarf til að flæðið haldist og allir þáttakendur fái sinn tíma.Valið á viðmælendum dagsins gekk fullkomlega upp. Þarna var fulltrúi fólksins sem talaði frá hjartanu. Síðan var fulltrúi vísinda og fræða. Í þriðja lagi var mætt fulltrúi þrýstihópa og að sjálfsögðu fengum við líka að heyra sjónarmið hagsmunagæsluaflanna. Úr varð hinn skemmtilegasti kokteill. Að öðrum ólöstuðum var þó maður dagsins, sá sem talaði frá hjartanu, Mikael Torfason. Sá drengur á framtíð fyrir sér í stjórnmálum ef hann kærir sig um.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.10.2017 kl. 08:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2017 | 07:20
Liðkað til fyrir lygara
Greinin hans Pétur Húna, Staðreyndir um spuna HS Orku ætti að vera skyldulesning hjá öllum frambjóðendum í næstu Alþingiskosningum. Þar afhjúpar hann á einkar sannfærandi hátt, þær lygar og hálfsannleik sem virkjunarsinnar hjá Vesturverki með Ásgeir Margeirsson lepp sænska skúffufyrirtækisins, sem eignaðist HS ORKU með ótrúlegum tilfæringum í miðju hruni, hafa borið á borð fyrir auðtrúa Árnesshreppsbúa og aðra Vestfirðinga.
Fyrir það fyrsta þá er ekki verið að fara í þetta verkefni af samfélagslegri nauðsyn. Tilgangurinn er eingöngu viðskiptalegs eðlis. Raforkumál á norðanverðum Vestfjörðum lagast ekki vegna Hvalsárvirkjunar. En hagnaður H.S. Orku vegna verkefnisins verður umtalsverður svo og annarra eigenda Vesturverks og þeirra sem erfa vatnsréttindin á svæðinu.
En það var annað í greininni sem vakti athygli og ég vissi ekki um og man ekki eftir að hafa séð reyfað. En það var aðkoma Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, fyrrverandi iðnaðarráðherra að þessu verkefni. En þessi hlaupastelpa H.S. Orku breytti reglugerð til að liðka fyrir lygaranum Ásgeiri Margeirssyni!
Efnahagslega sjálfbærnin sem Ásgeir nefndi felst því greinilega í því að láta Landsnet leggja í milljarða útgjöld við að reisa tengipunkt á Nauteyri, sem styttir vegalengdina frá virkjun að dreifikerfi verulega og lækkar um leið tengikostnað virkjunarinnar, og fá að auki fyrirgreiðslu sem fyrsti aðili sem tengist þessa leið. Kostnaðurinn lækkar ekkert, honum er bara velt á Landsnet og þar með okkur, almenna raforkunotendur í landinu." (Pétur Húni)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)