Slökkt á leiðarljósinu

bjarnibenSér keikur Bjarni ber á brjóst
en bara holur grefur
Því öllum öðrum er það ljóst
að engan stuðning hefur.

Löngu er það liðið hér
að lygi trúi nokkur
samt mannúðina eignar sér
Íhalds bullu flokkur

 


mbl.is „Eigum að senda út skýr skilaboð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lævísi

Ef kjósa ei ætlirðu ákveðinn mann
öfuga sálfræðin dugar þér best
Uppgerðar lofræðu haltu um hann
og hrósaðu öllu sem oftast og mest

Þó allir hér viti að oflof er háð
einhverjir munu samt efast
En sé frækornum tortryggni í sálina sáð
mun sæmileg uppskera gefast.

 


Eyðileggjandi uppbygging!

30Ég sakna þess að heyra engan sitjandi Alþingismann tjá sig um þetta tilræði HS Orku gegn ósnortinni náttúru rétt sunnan núverandi marka friðlandsins á Hornströndum. Málið er einfaldlega of stórt til að leggja það alfarið á herðar 5 einstaklinga í hreppsnefnd Árneshrepps á Ströndum.

Það er borðleggjandi að stækka nú þegar friðlandið á Hornströndum svo það nái yfir allt svæðið allt suður til Ingólfsfjarðar að austanverðu og þaðan í beina línu yfir að Nauteyri í Djúpinu. Þessi aðgerð mundi duga til að bjarga svæðinu frá þeirri eyðileggjandi uppbyggingu sem þar er áformuð. Þetta er ekki aðeins mál eins eða tveggja landeigenda sem seldu frá sér vatnsréttindi.  Þetta er mál okkar Íslendinga allra. Byggðin í Árneshreppi þyrfti ekkert að breytast en allt eignarland innan svæðisins yrði tekið eignarnámi af ríkinu við fullnustu svona áforma.  Er eftir einhverju að bíða? Alþingismenn eru á launum og eiga að vera að vinna fyrir þjóðina en ekki sjálfa sig og flokkana. Hunskist nú til að mæta í vinnuna og færið Hvalárvirkjun úr nýtingarflokki ekki seinna en strax! Enda eru þau áform sem nú eru uppi ekki sambærileg við þann virkjunarkost sem áður var uppi á borðinu þegar litla virkjunin var sett í umhverfismat og þar með nýtingarflokk.


mbl.is „Engin glóra“ í Hvalárvirkjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einhver þarf að tala við Sigmund

simmiHér er spurning fyrir geðlækna. Er hægt að fara í svo mikla afneitun að maður missi úr heilt ár af ævi sinni?

28.október næstkomandi, er nákvæmlega 1 ár liðið síðan ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar var slitið og við gengum til kosninga. En Sigmundur Davíð talar alltaf eins og hann hafi verið forsætisráðherra í síðustu ríkisstjórn, en bara farið í tímabundið frí og nú sé hann tilbúinn að snúa aftur og taka við stjórnartaumunum. Mér finnst þetta óþægilegt.  Og það er illa gert af þessu liði sem fylkir sér um keisarann og skýlir nekt hans, að vera svona meðvirkt.

28.október n.k. göngum við til kosninga og kjósum nýja áhöfn á skútuna Alþingi. Þá fyrst er hægt að huga að því að ráða skipstjóra. Og einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að það verði ekki Sigmundur Davíð sem verði fyrir valinu.  Því er það fullkomlega ótímabært að gera hans persónulegu minnisblöð, að möndlinum, sem þessar kosningar snúast um.

Því þetta sem hér birtist í samantekt blaðakonunnar, er engin stefna.  Þetta eru bara punktar úr minnisblöðum eins og menn hripa gjarnan niður til frekari úrvinnslu. Kannski er hægt að nýta þessa punkta en sú vinna á langt í land. Þegar Miðflokkurinn hefur klárað heimavinnuna má segja að hann sé tilbúinn í kosningar. En núna er brýnt að einhver tali við Sigmund og láti hann vita, að hann er ekki bara í fríi sem forsætisráðherra. Heldur hafi hann verið neyddur til að segja af sér vegna spillingarmála og hugsanlegra skattsvika. Í millitíðinni höfum við fengið yfir okkur ömurlegustu ríkisstjórn allra tíma og nú þurfum við þjóðin á fríi að halda frá honum og hans líkum. Þetta verður drengurinn að skilja. 


mbl.is Vill ráðast í kerfisbreytingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningabomba Ásmundar reyndist handsprengja

asmundurKosningabarátta Sjálfstæðisflokksins er fyrirframskipulögð af vönum mönnum sem hafa atvinnu af því að móta almenningsálitið og kunna líka fræðin um Damage control 

Það sem af er þessari baráttu hefur formaður flokksins legið undir stöðugri ágjöf vegna persónulegra málefna og þessi pólitíska ágjöf var greinilega farin að hafa skaðleg áhrif á fylgi flokksins í skoðanakönnunum. Og hvað gera almannatenglar og spunadoktorar þá? Jú þeir búa til bombur sem færir athygli frá því sem kemur flokknum verst og yfir á málefni sem fáir þora að snerta við en allir hafa sterkar skoðanir á. Og það er málefni hælisleitenda/flóttafólks.

Þess vegna trúi ég því ekki að grein Ásmundar Friðrikssonar í Morgunblaðinu í gær hafi komið nokkrum í kosningateymi flokksins á óvart. Þeir beinlínis hvöttu til þess að Ásmundur legði sjálfan sig undir í þeirri von að færa athyglina af Bjarna Benediktssyni yfir á umdeildar skoðanir Ásmundar , sem nota bene hefur viðrað þær áður og ekkert nýtt þar á ferð.  Hins vegar held ég að mönnum hafi yfirsézt samlegðaráhrif neikvæðra frétta. Nú tala menn um sjálfstæðisflokkinn sem bæði spilltan og rasískan flokk.  það er ekki góður kokteil fyrir fylgismenn flokksins að kyngja.

Í staðinn fyrir kosningabombu var Ásmundi fengin handsprengja sem búið var að taka pinnann úr.


Sunna Ósk Logadóttir

Sunna Ósk Logadóttir á þakkir skildar fyrir greinaskrifin um fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir  á Ófeigsfjarðarheiði, kenndar við Hvalá sem birst hafa á mbl.is í dag.  Það er greinilegt að blaðamaðurinn hefur lagt mikla vinnu í þetta mál og er óhrædd að taka afstöðu.  Vonandi að fleiri taki upplýsta afstöðu eftir að hafa kynnt sér þessi áform rækilega.  Það má bara ekki gerast að ósnortin náttúra þessa afskekkta landshluta verði græðgivæðingunni að bráð.  Nóg er nú samt á ábyrgð virkjunarsinna sem þeir hafa eyðilagt sem annars væri hægt að njóta um ókomin árhundruð.


mbl.is Marga þyrstir í heiðarvötnin blá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrædda kynslóðin

Hrædda kynslóðin er ennþá hrædd vegna þess að hér var og er enn stunduð kerfisbundin hræðslupólitík. Hræðslupólitík um að allt fari hér til fjandans ef andstæðir flokkar komast til valda. Við þekkjum öll þessi slagorð sem notuð eru, Stöðugleiki vs.sundurlyndi, Skattpíning vs. kaupmáttaraukningu og núna síðast, spilling vs. gagnsæi. Hrædda kynslóðin ólst líka upp við takmarkað fjölmiðlafrelsi. Hér var rekin hatrömm flokkspólitík og í skjóli allskonar takmarkana og valdníðslu var alþýðan miskunnarlaust lamin til hlýðni við valdastéttirnar. Æ síðan skilur hrædda kynslóðin ekki hugtök eins og beint lýðræði eða lárétt lýðræði.  Hrædda kynslóðin vill áfram píramídalagaðan valdastrúktúr þar sem einn foringi mótar stefnuna og allir hinir fylgja hlýðnir með.

Hrædda kynslóðin skilur ekki nýju pólitíkina.  Skilur ekki láréttan valdastrúktúr Pírata, Viðreisnar og Bjartrar Framtíðar. Hrædda kynslóðin situr uppi með Bjarna Benediktsson og Sigmund Davíð. Hrædda kynslóðin vaknar snemma á hverjum kjördegi, fer í sparifötin og kýs áfram sinn kvalara. Þess vegna breytist allt svo hægt. Hrædda kynslóðin er svo hrædd að hún mætir alltaf og kýs.  Við þurfum að taka upp rafrænar kosningar til að breyta þessu ójafnvægi.  Það gerist aðeins með breytingum á stjórnarskránni. Ný stjórnarskrá mun bæta geðheilsu landsmanna og draga úr hræðslu og kvíða eldri kynslóðanna og auka ábyrgðarkennd yngri kynslóðanna.  Ný stjórnarskrá er þjóðarnauðsyn.


Íslenskir nýnasistar og hatursorðræðan

Sem betur fer er ekki hljómgrunnur fyrir pólitískri hugmyndafræði nýnasista á Íslandi sem ætluðu að seilast til áhrifa með útlendingafóbíu að vopni. Verst að óþverrinn Magnús Hafsteinsson skuli hafa stokkið frá borði og verið veitt pólitískt hæli af Ingu Sæland.

Það að Yfirkjörstjórnir í 3 stærstu kjördæmunum skuli hafa beitt samskonar aðferðum við skoðun á kjörgögnum leiðir í ljós að allt talið um hatursorðræðuna hefur skilað árangri og menn ætla að spyrna við fótum. Það er ágætt. En hins vegar er miklu betra að það skuli ekki hafa fundist nægilega margir meðmælendur til að bakka þessi óþverrasamtök upp sem íslenska þjóðfylkingin er. Vonandi þýðir þetta endalok þessara haturssamtaka íslenskra nýnasista


mbl.is Íslenska þjóðfylkingin býður ekki fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðræðishallinn í stjórnarskránni

Það sem kosningar fela en kannanir leiða í ljós er hvernig fólk kýs eftir búsetu, aldri og kyni og hvernig þessi atkvæði af landsbyggðunum annars vegar og þéttbýlinu á suðvesturhorninu hinsvegar, skiptast á gömlu valdaflokkana, gamla fjórflokkinn. Fylgi nýrra flokka er venjulega meira í þéttbýli sem skýrir hvers vegna þessar hindranir  eru í stjórnarskránni og hvers vegna henni er haldið í herkví gömlu valdaflokkanna, sem byggja fylgi sitt á eldri kjósendum af landsbyggðunum. (Líta verður á Miðflokkinn sem klofning úr Framsókn í þessu sambandi)

Miðað við síðustu alþingiskosningar þá kusu rétt tæp 190.000 manns. Þar af voru 125000 sem kusu í þéttbýlustu kjördæmunum 3 á móti 65000 í dreifbýlustu kjördæmunum 3.  Miðað við skiptingu þingsæta þá þýðir þetta 55% misvægi atkvæða. Það eru einungis 65 þúsund atkvæði á bakvið 28 þingmenn dreifbýlis en 125 þúsund þurfti til að velja hina 35.  Þetta misvægi hlýtur að þurfa að jafna og það gerist ekki nema með breytingum á stjórnarskránni.

Stjórnarskráin á að tryggja jafnan rétt allra. Líka atkvæðaréttinn.


mbl.is X-S er hástökkvari vikunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óskilaféi slátrað

ekki fjarfestirVilhjálmur Bjarnason, sem titlar sig ekki-fjárfestir, til aðgreiningar frá alnafna sínum í Sjálfstæðisflokknum, sem er þá væntanlega virtur fjárfestir, er svekktur. Hann er ekki á lista flokksins við næstu kosningar. En í stað þess að leyna gremjunni og takast á við höfnunina, þá skrifar eyminginn langa grein í Kvennablaðið, þar sem hann skammar flokksstjórnina fyrir að færa sig ekki upp á lista  vegna fráfalls Ólafar Nordal. Vilhjálmur þessi tíundar mjög eigin árangur í síðasta prófkjöri þar sem hann varð í sjöunda sæti þrátt fyrir andstöðu flokksforystu.  En það skyldi þó ekki vera önnur og eðlilegri skýring á því að Vilhjálmur lenti óvart í þessu sæti síðast og sem nú hefur verið "leiðrétt" af uppstillingarnefnd kjördæmisins.  Skýring sem lýtur að því að flokksmenn hafi einfaldlega talið sig vera að kjósa Vilhjálm Bjarnason fjárfesti en ekki Vilhjálm Bjarnason ekki-fjárfesti!!  Þegar haft er í huga að þingmenn flokksins eru alfarið bjöllusauðir þá er eðlilegt að draga þá ályktun að almennir félagsmenn, þeir sem kjósa í prófkjörum, séu lömbin sem leidd eru af bjöllusauðunum (til slátrunar) En nú gerðist það sem sagt eins og gerist stundum í sveitinni, að í hjörðinni leyndist óskilagemlingur sem enginn vill nú kannast við.  Og eins og í sveitinni þá hefur nú þessum óskilagemlingi verið slátrað (af Sjálfstæðisflokknum.)   Eins og sést á myndinni af honum, þá er hann greinilega ekki bjöllusauður því bjöllusauðir líta svona út. Þetta þurfa sjálfstæðismenn að hafa í huga og vanda sig betur ef þeir einhverntíma leyfa prófkjör aftur.Það getur verið dýrkeypt að sitja uppi með óskilafébjollusaudur

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband