19.10.2017 | 11:19
Brennuvargurinn fundinn
Þá vitum við það. Sýslumannsembættið má framkvæma ólögmæta gjörninga í skjóli eigin þröngra túlkana á lögum. Þeir eru ekkert að láta fordæmisgefandi dóma Mannréttindadómstólsins þvælast fyrir í sínum störfum. Og hafa ekkert heyrt minnst á ÖSE. Og Sýslumaðurinn nýtur pólitískrar verndar Sjálfstæðisflokksins. Það hefur komið skýrt fram í málflutningi og afstöðu Brynjars Níelssonar.
Í hnotskurn lýtur málið út eins og sýslumaður megi kveikja eld ef þú réttir honum eldspýtu og það má enginn nema slökkviliðið slökkva eldinn og ekki fyrr en eftir viku. Þetta er galið og við þurfum og eigum ekki að hafa svona embættismenn í vinnu. En fyrst þarf að losna við Sjálfstæðisflokkinn, verndara hins sjúka embættismannakerfis, af þingi. Um Birgi Ármanns þarf ekki að hafa mörg orð. Hann felldi sig sjálfur með því að reyna að rugla umræðuna sem fer nú fram í Stjórnskipunar og Eftirlitsnefnd.
Opinn fundur um lögbannið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.10.2017 | 01:17
Hver er þessi Logi Bergmann?
Nafni hans sem les las fréttirnar á stöð 2 er víst líka hættur og kominn til Árvakurs eftir því sem slúðrað er. En varla er nú verið að setja lögbann á störf hans? Og hvernig dettur mönnum í hug að halda því fram að Árvakur eigi í samkeppni við 365? Hvaða svið starfssemi þessara tveggja fyrirtækja eru það sem skarast?
Þessi Logi sem er nafni Loga Bergmanns, er sagður hafa lofað fyrir 12 árum að vinna ekki strax hjá samkeppnisaðila Stöðvar 2, þegar hann hætti hjá þeim. Sá samkeppnisaðili hefur væntanlega verið RUV en ekki Árvakur, útgefandi Morgunblaðsins. Af hverju hringja menn ekki í Pál Magnússon og spyrja hann útí þessa klausu. Hann var alla vega sjónvarpsstjóri og fréttastjóri á stöð 2 fyrir 12 árum. En kannski er Kristín Þorsteinsdóttir bara að sýna vald sitt. Hvað svo sem er í gangi snertir það ekki almenning. Og þess vegna langsótt að bera þetta lögbann saman við lögbannið sem sett var á fréttaflutning Stundarinnar af meintum fjárhagsviðskiptum Bjarna Ben í aðdraganda falls Glitnis
Lögbann á störf Loga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2017 | 16:12
Bréf frá Þjóðskrá
Kt.: 150752-2219
Nafn: Jóhannes Laxdal Baldvinsson
Efni: Skráning á meðmælendalista Framboð til Alþingis: Píratar
Þér tilkynnist hér með að í aðdraganda Alþingiskosninganna þann 28. október n.k. var nafn þitt skráð á meðmælendalista þess framboðs sem nefnt er hér fyrir ofan. Í því skyni að tryggja gagnsæi og efla upplýsingagjöf er þetta bréf sent til þeirra einstaklinga sem skráðir voru á meðmælendalista framboða sem hyggjast bjóða fram til Alþingis. Vakin er athygli á því að hafi kjósandi mælt með fleiru en einu framboði mun hann fá bréf þessa efnis vegna sérhvers framboðs. Enn fremur er bent á að hafi kjósandi mælt með fleiru en einu framboði þá verður hann ekki talinn meðmælandi neins þeirra.
Bestu kveðjur frá Þjóðskrá Íslands.
17.10.2017 | 12:20
Ísland og Malta
Hvað er sameiginlegt með Íslandi og Möltu?
Svar: Spilltur forsætisráðherra
Nú ætla ég að sauma mér búrku. Það er orðin yfirþyrmandi nauðsyn á að fjarlægja Bjarna Benediktsson úr forsætisráðherrastóli. Skömmin sem fylgir setu hans í þessu næst æðsta embætti þjóðarinnar er orðin þrúgandi. Allir almannatengslar Donalds Trump myndu ekki duga til að koma í veg fyrir álitshnekki Íslands í augum heimsins. Það er skítt að eiga bara bandamenn eins og Möltu. Lítið gagn í þvi
17.10.2017 | 11:44
Hjólastígakerfið löngu sprungið
Nú er það að renna upp fyrir mönnum að vandamálin sem fylgja aukinni notkun reiðhjóla er síst minni en vandamál bifreiðanotkunar.(að frátöldum útblæstrinum) Í dag duga ekki lengur sameiginlegir stígar gangandi, hjólandi og keyrandi vegfarenda. Nú þarf þetta allt að vera aðskilið og helst tvöfalt til að ekki hljótist slys af. En hafa Reykvíkingar efni á þeim úrbótum sem þarf að gera vegna fjölgunar hjólreiðarmanna á löngu sprungnu hjálreiðastígakerfi borgarinnar? Það er umræða sem þeir ættu að taka núna í aðdraganda sveitastjórnarkosninga. Mitt svar er einfalt. Það gengur ekki lengur að hjóladólgar fái að hjóla um á sameiginlegum hjólastígum borgarinnar. Það á skilyrðislaust að beina þeim út á göturnar þar sem hraði þeirra ógnar ekki saklausu fólki sem notar núverandi göngu og hjólreiðastíga sér til hreyfings og heilsubótar. Hjóladólgur sem þeysist um á 40 kílómetra hraða eða meira þarf sér hjólarein! Ætla Reykvíkingar að fjármagna fjórbreiða tvöfalda hjólreiðastíga fyrir þessa brjálæðinga? Og hvað með allt landið sem þarf í framtíðinni undir alla þessa stíga?
Nýr hjólastígur um Elliðaárdal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.10.2017 | 11:27
Álitamál varðandi Stjórnarskrá
23. gr. Forseti lýðveldisins getur frestað fundum Alþingis tiltekinn tíma, þó ekki lengur en tvær vikur og ekki nema einu sinni á ári. Alþingi getur þó veitt forseta samþykki til afbrigða frá þessum ákvæðum.
[Hafi Alþingi verið frestað getur forseti lýðveldisins eigi að síður kvatt Alþingi saman til funda ef nauðsyn ber til. Forseta er það og skylt ef ósk berst um það frá meiri hluta alþingismanna.] 1)
1)L. 56/1991, 4. gr.
Nú berast af því fréttir að Stjórnskipunar og Eftirlitsnefnd Alþingis ætli að koma saman til að fjalla um lögbannið á Stundina og Reykjavik Media, að kröfu Pirata og fleiri. En þarf ekki forsetinn fyrst að kveðja Alþingi saman til fundar? Þegar búið er að rjúfa þing þá hefur það ekki lengur umboð til að koma saman nema fyrir atbeina forseta, samkvæmt þessari grein Stjórnarskrárinnar. Og af hverju nýta Alþingismenn ekki þetta ákvæði og skora á forsetann að kalla saman Alþingi til að fjalla um lögbannsmálið en einnig að bera fram vantraust á starfandi forsætisráðherra vegna þeirra ávirðinga sem fram hafa komið í afhjúpun fjölmiðla á leyndargögnum úr glæpabankanum Glitni. Það er ekki nóg að Bjarni Ben hafi verið þvingaður til af samstarfsflokkum, að æskja þingrofs og kosninga. Það þarf að samþykkja vantraust á þennan spillta stjórnmálamann sem helst er hægt að líkja við hinn alræmda Silvio Berlusconi fyrrum forsætisráðherra Ítalíu. Það yrði jafngildi Landsdóms í huga margra.
Við viljum ekki svoleiðis stjórnmálamenn.
Nefndin fundar vegna lögbannsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.10.2017 | 10:46
Ómerkilegur lýðskrumari brýtur stjórnarskrá
Sigmundur Davíð er með ómerkilegri lýðskrumurum landsins. En hann veit hvað virkar. Hann er holdgervingur djöfulsins í hlutverki freistarans. Og hver vill ekki ókeypis peninga? Sigmundur Davíð heldur að svarið sé allir en þar skilur á milli siðblindu og heiðarleika. Sorrý Sigmundur, það er sem betur fer til fullt af fólki sem vill ekki skítuga peninga. Skítugir peningar eru til dæmis þjófstolnir peningar, mútufé og önnur verðmæti sem tíðkast í sýndarheimi siðblindingjanna.
Að komast til valda með loforðum um að gefa fólki fémæti, sem heyra undir eignir ríkisins er skýrt brot á stjórnarskránni. Nánar til tekið 41.gr. En auðvitað er það bara smámál í huga margra að fara á svig við grunnlög landsins. Þess vegna og það er megin ástæðan fyrir þeirri tregðu valdaflokkanna til að endurskoða helstu ákvæði stjórnarskrárinnar að sú endurskoðun mun óhjákvæmilega takmarka frjálslega túlkun núverandi stjórnarskrár.
En gylliboð eins og Sigmundur veifar nú án heimildar framan í kjósendur , geta líka varðað við við almenn hegningarlög. Það er lágmarkskrafa, að okkur sé hlíft við svona loddaraskap. Því munurinn á Sigmundi Davíð og Ástþóri Magnússyni er enginn. Jólasveinar þurfa líka að fara að lögum.
16.10.2017 | 19:38
Miðaldrakrísa útbrunnins stjórnmálamanns
Miðaldrakrísa Bjarna Benediktssonar birtist ásjónum landsmanna í auglýsingaherferð peningavaldsins á skjám landsmanna á öllum stöðvum. Útlitsdýrkun á pari við 15 ára fermingarstelpu. Enginn hörgull á peningum þar þótt ríkisframlagið sé löngu upp urið. Kannski að Glitnir Holding hafi verið látinn greiða fyrir hárlitunina og andlitsmeðferðina í leiðinni. Verð að segja að svona spjátrungsháttur virka öfugt á mig. Kannski í lagi að nota svona trix á framhjáhaldssíðum sem Icehot1 en varla sem forsætisráðherra Íslands þessar síðustu vikur í starfi. Mín skilaboð eru; Sættu þig við gráa hárið. Það er engin skömm að því að eldast. Eina skömmin er hvernig þú og þínir þingflokksmenn hafið komið fram gagnvart eldri borgurum þessa lands
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2017 | 19:19
a note to self
Muna eftir að reka þennan sýslumann eftir kosningar
Gríðarlegt inngrip í opinbera umræðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2017 | 15:23
Framsókn
Í andstreyminu eltist við
og athyglina fangar
láta knéi fylgja kvið
kappann Sigurð langar
Nú lífeyrinn vill lána þér
og lætur mása móðinn
ekki lengur eignar sér
í-búðar-lána-sjóðinn
Þótt út úr þeirri örgu neyð
sem áður hafði Framsókn hannað
vel sé hægt að velja leið
er vandinn bara fluttur annað.
Vill fund vegna svissneskrar leiðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)