Ekkert brauð - bara kökur

913056Bjarni Benediktsson ber manna mesta ábyrgð á því að hér á landi ríki áþreifanleg fátækt og hrein neyð hjá fjölda fólks á hrakhólum vegna græðgiástands á húsnæðismarkaði. Bjarni Benediktsson gat verið búinn að grípa til ráðstafana fyrir 4 árum til hagsbóta fyrir þá sem minna mega sín.  Af hverju kippir ekki drengnum í kynið?  Góðmennið faðir hans hefði gert það. Hann er alvöru maður og gerir ekki manna mun.  En sonurinn er fordekraður og heldur eins og Marie Antonette, að allir geti bara étið kökur eins og hann og hans börn.


Væntingar um Vinstri stjórn lækka vexti

Auðvitað hefur stjórnmálaástandið ekkert með efnahagsmál að gera. Set þetta bara svona upp til að sýna fram á veruleikafirringu í herbúðum hægri manna sem þreytast ekki á hræðsluáróðrinum um að hér fari allt í kalda kol ef Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki með lyklana að stjórnarráðinu.

En þótt úrslit kosninganna muni litlu breyta hvernig sem fer, þá hefur kosningaskjálftinn nú þegar valdið áróðursmaskínum Sjálfstæðis og Miðflokks verulegum álitshnekki vegna málflutnings manna eins og Páls Vilhjálmssonar, Björns Bjarnasonar og Hannesar H. Gissurarsonar. Brynjari Níelssyni er fyrirgefið því hann lét sitt bein sjálfviljugur af hendi til Sigríðar Andersen, sem sannaði fyrir alþjóð að ekki geta allir verið ráðherrar.

En svona er bara pólitíkin, það þarf víst annað og verra hrun fjármálakerfisins til að menn skilji hve kerfið er feyskið. Allt þetta tal um markaðsdrifið hagkerfi er blekking. Kauphöllinni er stýrt af Lífeyrissjóðunum og gengismarkaðurinn er vistaður í Seðlabankanum þar sem gengi gjaldmiðilsins er lagað til eftir þörfum.    Ekki eru fyrirsjáanlegar breytingar á þessu blekkingarástandi í bráð. Meira að segja stórútgerðin lætur sér vel líka að VG ráðherra setjist í fjármála og efnahagsráðuneytið.


mbl.is Vaxtalækkun þvert á spár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hremmingar Framsóknar

Er í skjólin fýkur flest
Framsóknar í vetur
Mun löggan Biggi í þann brest
berja öðrum betur

En Simma frægðarsólin sest
sér seldi norðurljósa vetur
Og í lógóinu hafði hest
þó hæfði snákur miklu betur

 


mbl.is Biggi lögga í Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útilokunaraðferðin

Einu sinni trúði ég því að stjórnmál snerust um hugsjónir. Þá var auðvelt að skipa sér í lið.  Í dag er þetta öðruvísi.  Í dag hafa hugsjónir vikið fyrir flokkshagsmunum. Það virðist engu skipta þótt við skiptum út þingmönnum því þeir sem koma í staðinn eru alveg eins ef ekki verri.  Í dag nota ég útilokunaraðferðina þegar ég geng í kjörklefann. Ég ætla að kjósa það framboð sem ætlar að gera sem minnst.  Þeir munu þess vegna líka svíkja minnst.


Útrásarvíkingurinn og hrægammurinn

804764Hlaupa upp til hand' og fóta
haldandi þeim engin bönd.
Pabba hennar málsókn hóta
og heimta arfinn útí hönd.

Um það sem í vændum var
vissu fleiri en þessi tvö.
Efnt var því til útrásar
árið tvöþúsund og sjö.

Í Bretaveldi stuttur stans
og stefnt að doktorsgráðum.
Þar ala þurfti Anna hans
önn fyrir þeim báðum.

Allt er þetta í annál skráð
eins og þið víst munið
Og uppskeran er eins og sáð
en svo kom blessað hrunið.

Framtíðin var fyrir þeim
frestun náms í Oxfordskóla
Og hvergi sést er koma heim
hvað þau földu á Tortóla.

Þótt hvíslað væri að væru rík
þau virtust bara basla
En völl sér vild' í pólitík
vinasnauður Simmi hasla.

Nú þjóðinni um nös er núið
níðinga að kjósa sér
En erfitt er og sjálfsagt snúið
silfursjóð að eiga hér.

Enda raunin það svo reyndist
og réttað var á Austurvelli
að ráðherranum reiðin beindist
sem rjúfa vildi þing í hvelli.

Endirinn þó yrði annar
en að fórna einu fóli
Er því að kenna að þingrof bannar
þráseti á valdastóli.

-----------------------

Eflaust ríkti einhver sátt
og aflandsmálið aldrei skeð
hefði Bogi bróðir mátt
braska allan arfinn með.


Nú stend ég með RUV

Valdamikil öfl í samfélaginu vinna nú að því með ýmsum hætti að þagga niður í fréttastofu RUV.  Nú bætist Sigmundur Davíð í þann hóp með þessari ósmekklegu hótun sinni um lögsókn.

Munum það á kjördag. Atkvæði greitt Sigmundi er ávísun á þöggun fjórða valdsins.

Því hvað svo sem segja má um þá pólitíska slagsíðu sem lengi hefur verið löstur á fréttastofu RUV, þá er RUV eini alvöru fréttamiðill landsins. Vegna RUV vitum við meira um íslenskt samfélag þrátt fyrir leyndarhyggjuna og alla þöggunina.  

Þess vegna er hlutverk RUV óumdeilt.

En ef glæpamannalögfræðingar eins og þessi Vilhjálmur H. geta hrætt ráðamenn RUV til hlýðni þá eru þeir stjórnendur ekki starfi sínu vaxnir og eiga að víkja. RUV á ekki að láta undan hótunum.  En ef þeim verða á mistök eiga þeir að GANGAST VIÐ ÞEIM MISTÖKUM OG BIÐJAST AFSÖKUNAR OPINBERLEGA.

ENGIN MISTÖK-ENGIN  AFSÖKUN.


mbl.is Undirbýr málsókn gegn fjölmiðlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlutdrægur álitsgjafi

 Spurt var;

 Tel­urðu að Sig­mund­ur Davíð sé bú­inn að gera hreint fyr­ir sín­um dyr­um varðandi Wintris-málið?

 „Það þarf eng­inn að ef­ast um að rétt hafi verið farið að" svarar Grétar Eyþórsson, prófessor við Háskólann á Akureyri og gerir þar með sjálfan sig að viðundri og vanhæfum kennara í stjórnmálafræði til framtíðar.  Því það er nokkuð öruggt að Wintris málið verður notað sem kennslubókardæmi um hvernig ekki eigi að standa að málum ef menn vilja vegtyllur í stjórnmálum

Allt frá því Wintris málið kom fyrst upp, hef ég fylgst með því af áhuga. Ekki síst fyrstu viðbrögðum Sigmundar í sjónvarpssal og öllu sem á eftir kom. "Dine spörgsmál bekymrer mig" sagði Sigmundur  þegar hann var spurður út í Wintris af sænska rannsóknarblaðamanninum. Þessi taktík að setja ofan í við fjölmiðlamenn, ber vitni um óheiðarleika og er tilraun til að taka yfir viðtöl sem eru viðmælanda erfið.  Allar götur síðan hefur Sigmundur verið í vörn og kostað til milljónum króna .  Nú síðast var þóknun þeirra hjóna til skattasniðgöngulögfræðingsins, sem sér um skattframtöl þeirra hjóna, rúmar 2 milljónir eins og fram kemur í úrskurði yfirskattanefndar

Kærendur hafa gert kröfu um að þeim verði úrskurðaður málskostnaður til greiðslu úr ríkissjóði samkvæmt 2. mgr. 8. gr. laga nr. 30/1992, um yfirskattanefnd, sbr. 4. gr. laga nr. 96/1998, um breyting á þeim lögum. Samkvæmt úrslitum málsins þykir bera að úrskurða kærendum málskostnað á grundvelli framangreinds lagaákvæðis. Samkvæmt framlögðum gögnum nemur kostnaður kærenda vegna meðferðar málsins 2.112.991 kr. að meðtöldum virðisaukaskatti vegna 65 klukkustunda vinnu umboðsmanna kærenda við málið. Ekki verður talið að hér sé að öllu leyti um kostnað að ræða sem eðlilegt sé að til hafi verið stofnað vegna málsins, sbr. lagaskilyrði fyrir greiðslu málskostnaðar úr ríkissjóði, og er þá m.a. litið til þess að málið varðar afmarkað sakarefni og getur ekki talist svo umfangsmikið að réttlæti slíkan kostnað. Samkvæmt þessu og að öðru leyti með vísan til starfsreglna yfirskattanefndar 21. nóvember 2014 um ákvörðun málskostnaðar þykir málskostnaður hæfilega ákveðinn 500.000 kr.

En það er einmitt þessi reifun yfirskattanefndar, sem prófessorinn hefði átt að kynna sér áður en hann svaraði spurningu fréttamannsins.  Því í úrskurðinum kemur fram saga Wintris málsins og tilraunir Sigmundar og Sigurlaugar til að fá löggildingarstimpil skattayfirvalda á siðlausum gjörningi varðandi umsýslu peninga sem þau eiga og vilja ekki borga skatta af.

Í tilefni af athugasemdum í kæru um að nægjanlegt sé að ársreikningur sem gerður sé á grundvelli III. kafla laga nr. 145/1994, um bókhald, innihaldi rekstrarreikning og efnahagsreikning auk skýringa eftir því sem við eigi, er tekið fram í umsögninni að hér sé horft fram hjá skýrri kröfu ársreikningalaga um sjóðstreymi, skýrslu stjórnar, áritun endurskoðenda eða skoðunarmanna, nákvæma sundurliðun á breytingum á eigin fé o.fl. Ljóst sé að starfsemi félagsins fylgi ýmsar breytingar, t.d. á áföllnu markaðsvirði eigna og skulda sem færist eftir atvikum til tekna eða gjalda, auk áfallinna fjármagnstekna sem færast ættu með rekstraruppgjöri í gegnum eigið fé félagsins, án þess að mynda fjármuni til úttektar sem áhrif hefðu á eiginlega greiðslugetu félagsins vegna skuldar við kæranda. Því fái ekki staðist að ekki sé til sundurliðað eigið fé í félaginu við uppgjör þess. Jafnframt sé ljóst að þar sem breytingar á eigin fé X Ltd. hafi ekki verið sundurliðaðar liggi ekkert fyrir um hvort greiðslur til eigenda séu endurgreiðslur á lánsfé eða önnur úthlutun af fjármunum félagsins. Þá verði ekki ráðið að vilji hafi staðið til að viðhafa sérstakt ójafnræði á milli þeirra félaga sem gert hafi ársreikning samkvæmt reglum heimilisfestarríkis síns og þeirra sem ekki hafi gert slíkan ársreikning.

Mér virðist að úrskurður ríkisskattstjóra sé samkvæmt eðlilegri túlkun laga,  en sniðganga felst í að finna göt í lagasetningu sem með einbeittum brotavilja megi túlka á annan veg. Eftir lestur á úrskurðarorði yfirskattanefndar læðist að manni grunur um að hér hafi ekki verið farið að lögum sem gilda fyrir okkur skóflupakkið.

Í því sambandi þá bendi ég á að 2 af 3 dómurum í þessu máli voru skipaðir á meðan Sigmundur Davíð var enn forsætisráðherra. Sem hlýtur að teljast afar óheppilegt í ljósi hinna óskráðu reglna klíkusamfélagsins.


mbl.is Wintris-málið óklárað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Panamaskjölin verði kosningamál

wintrisSamtrygging flokkakerfisins kom í veg fyrir að Panamaskjölin og afhjúpun skattaundanskota yrðu aðal kosningamálið í fyrra. Samt sprakk ríkisstjórn auðmannanna Sigmundar og Bjarna Ben, beinlínis vegna þeirra! Þessa samtryggingu verður að rjúfa. Þótt það kosti eftirmála þegar kemur að myndun ríkisstjórnar eftir kosningar. Við þurfum ekki að tala um frítekjumörk, svelt heilbrigðiskerfi eða skóla og samgöngumál. Þau mál verða leyst. Hver sem stjórnar. 

Núna þarf hins vegar að aflétta leyndarhyggju, sora og spillingu í stjórnkerfinu og flokkakerfinu. Það verður að vera númer 1, 2 og 3.  Skyggnumst bak við tjöldin og krefjumst svara. Hver vissi hvað, hver tók ákvarðanir og hverjir græddu á þeim skipulögðu glæpaverkum, sem skattasniðganga raunverulega er.  Við vitum að Sigmundur græddi og Bjarni reyndi að koma í veg fyrir að ríkisskattstjóri fengi afhent rannsóknargögn. Og við vitum að Bjarni Ben átti tugi milljóna sem hann bjargaði frá glötun með Vafningsgerningnum fræga. En síðan hvarf slóðin.  Bjarni á í dag engar eignir ekkert! Hvar eru eignir Bjarna vistaðar. Landsmenn eiga heimtingu á að vita hvers konar undanskot eigna forsætisráðherra landsins ástundar.

Það þarf að tala um Wintris og Panamaskjölin og hverjir nýttu sér skattalegt hagræði af eignum í aflandsfélögum.  Það þarf líka að tala um hverjir haldi núna um eignarhlut Bjarna Ben í Engeyjarauðnum.   Er það mamma hans eða konan hans eða börnin eða gæludýrin? Og tölum líka um Vafningsmálið. Þegar þessi umræða hefur farið fram með þátttöku allra frambjóðenda í kosningunum núna , þá getum við gengið til kosninga og útilokað bæði Bjarna Benediktsson og Sigmund Davíð frá því að ögra siðferðiskennd landsmanna um ókomin ár.


mbl.is Ofgreiddi skatta vegna Wintris
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarflokkurinn detoxar

Eftir velheppnaðan detox kúr Framsóknarflokksins, sem lauk með innanhreinsunum Sigmundar og hans stuðningsliðs, þjáist flokkurinn ekki lengur af harðlífi. Hvort hann sé orðinn heilbrigðari efast ég um.

Því eins og hagyrðingurinn Steingrímur Eyfjörð, sagði;

Aum er okkar rulla
í þessu jarðlífi.
Annað hvort er það drulla
eða þá harðlífi.


mbl.is Andrúmsloftið í Framsókn hreinsast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Katrín er jafn fölsk og Steingrímur J.

Ef Katrínu hefði verið einhver alvara með sáttatillögu sinni um að halda stjórnarskrárbreytingum á lífi, þá hafði hún getað lagt til að þingheimur endurnýjaði ákvæðið frá 2013.  En það gerði hún ekki vegna þess að VG vill einfaldlega ekki gera neinar breytingar á stjórnarskránni.  Að leggja til eitthvað sem vitað er að sættir engin sjónarmið er óheiðarlegt og vanvirðing við kjósendur. En að nota Lög nr. 91 11. júlí 2013. óbreytt en með framlengdum gildistíma, hefði verið pólitískt klókt því þá tillögu hefði sjálfstæðisflokkurinn átt erfiðara með að hafna.  

Katrín er enginn leiðtogi hún er bara leikbrúða eigin búktals.


mbl.is Sjálfstæðismenn þeir einu sem voru á móti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband