Fimmtíu manna húsfyllir

Hvorki fjölmenn fundahöld
eða friði spilla
þarf nú sá er þráir völd
ef þjóð, um fyr' nær villa

Og staður fyrir fundinn hans
fyrirfram var valinn
svo að færri en fimmtíu manns
fyllt gætu þar salinn.

Í ýkjubúning frétt er færð
ef fundað er á litlum stað
því "húsfyllir" er huglæg stærð
háð því hverjir túlka það.

-------------------------

Magnús Orri engan styggir
eins og þó gat orðið
Á heiðarleika hann ei byggir
er holar sér við borðið

iðnó


mbl.is Vilja reka heiðarleg stjórnmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kona, sem kann ekki að segja satt

Kristín segir fregnir af ófag­legum sam­skiptum „ímynd­un"

kri.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og hún er yfirritskoðari fjölmiðlafyrirtækis!  Afhverju lætur BÍ þetta yfir sig ganga?


Ásetningur heitir núna mistök!

"BHM gerði í vik­unni at­huga­semd­ir við aug­lýs­ingu sem send var á opin póstlista vís­inda­manna sem stunda rann­sókn­ir á sjáv­ar­spen­dýr­um.  Aug­lýst var eft­ir tveim­ur sér­fræðing­um í ólaunuð sjálf­boðastörf við rann­sókn­ir á hegðun hvala. Í aug­lýs­ing­unni kom fram að auk vís­ind­astarfa væri gert ráð fyr­ir að starfs­menn­irn­ir ann­ist af­greiðslu­störf og þrif um borð í hvala­skoðun­ar­bát­um fyr­ir­tæk­is­ins. Þeir þurfi að vera reiðubún­ir að vinna í allt að 14 klukku­stund­ir á dag og fái aðeins fæði og hús­næði fyr­ir.

Í yf­ir­lýs­ingu sem Eld­ing sendi frá sér í gær  seg­ir að mann­leg mis­tök hafi valdið því að í aug­lýs­ing­unni hafi komið fram öll til­fallandi störf um borð í bát­um fyr­ir­tæk­is­ins, Fyr­ir­tækið harm­i mis­skiln­ing­inn sem risið hef­ur vegna máls­ins og biðst vel­v­irðing­ar á mis­tök­um sín­um. Eld­ing hafi enn frem­ur svarað fyr­ir­spurn­um sem BHM sendi fyr­ir­tæk­inu um sl. helgi, án þess að fá nokk­ur viðbrögð."

Það þarf greinilega að uppfæra íslenzku orðabókina. Allt of mörg orð hafa öðlast breytta merkingu í munni siðblindra bjána.  Og ekki sízt ef þeir hafa stundað nám í lögfræði við Háskóla Íslands. Hvernig getur það talizt virðingarvert að kalla lygaréttlætingu á einbeittum brotavilja, mistök!  Og trúa réttlætingu bjánans, sem ætlaði ranglega að hagnast á samstarfssamningi við Háskólann og sleppa við að greiða lögbundin laun.  Auðvitað á strax að rifta þessum samningi við Eldingu og setja þetta fyrirtæki á gátlista.  Öðruvísi er ekki hægt að koma í veg fyrir skattsvik og undirboð í spilltu íslenzku atvinnulífi.


mbl.is Virðingavert að fara yfir starfsemina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandi að vera giftur

Hafa yfir auð sinn breitt
sem einstaklingar mega
En hjónin eru aðeins eitt
ef þau ekkert eiga


mbl.is Segir frétt Kjarnans „alranga“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Carpe Diem! Guðni

Undir feldi sýknt hann sat
sinn að meta haginn.
Var orsök þess að Guðni gat
ekki gripið daginn.

 


mbl.is Guðni Th.: Fyrsta sem ég sá var Ólafur Ragnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fráleitt að tala um fjársvelti

Óskiljanlegt hvað gengur hægt að endurskoða þennan samkeppnisrekstur og koma á heilbrigðu fjölmiðlaumhverfi á Íslandi. Það tekst sennilega ekki fyrr en landsmenn átta sig á að RÚV er síðasta vígi vinstri manna á Íslandi og afnotagjöldin fara því beint í að reka áróður fyrir fjölmenningu og alþjóðahyggju á kostnað íslenzkrar menningar og tungu.

Rekstrarmaður eins og Magnús Geir ætti að bera saman framleiðslukostnað RÚV annars vegar og N4 hins vegar. Þá sæi hann hvernig er hægt að gera gott sjónvarp fyrir brot af því fjármagni sem RÚV hefur komist upp með að eyða í sinni yfirburðastöðu sem eini risinn á markaðnum.


mbl.is Siðareglur Rúv með aðstoð sérfræðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vatn á myllu andstæðinga kvótaúthlutunar

"Ísland þarf að breyta lögum til að tryggja að orkufyrirtæki sem nýta nátturauðlindir í almannaeigu til raforkuframleiðslu greiði ávallt markaðsverð fyrir slíka nýtingu. Þetta er niðurstaða ákvörðunar sem Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) tók í dag."    

Fróðlegt verður að fylgjast með viðbrögðum stjórnvalda við þessum afskiptum ESA. Hingað til hafa þau barist gegn öllum hugmyndum um auðlindagjöld hvers konar.  Gildir einu hvort rætt er um vatn land eða fisk. En kannski verða menn núna neyddir til að setja hér löggjöf sem setur niður áralöng átök um þessa nýtingu. Ekki í fyrsta skiptið sem réttlætið væri þvingað fram undir hótunum.


mbl.is Greiði markaðsverð fyrir nýtingu nátturuauðlinda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Silfurseta

Einari má þakka það
á þingi metin falla
Útlit er þó fyrir að
Óli lifi alla

Nú skoðar Össur ætla ég sé,
enda góður drengur,
að draga sjálfan sig í hlé
og sitja ekki lengur


mbl.is Einar og Össur 25 ár á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greiningardeild Framsóknarmafíunnar

At­huga­semd­ir vald­hafa yfir lín­una

Viðhlæjendur viljið þið
sem valdastóla leppið
Sigurjón og Sjónvarpið
sótt voru á teppið.

 


Þorsteinn Már að græða


Nú Þorsteinn hefur þýfið tryggt
með þorska vísitölu
Þótt kvótinn gæti byggðir byggt
ef boðinn sé til sölu


mbl.is Svartgóma komin til að vera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband