18.1.2016 | 22:37
Aulahrollur vegna skrifa Ögmundar
Oft er talað um að pólitískt minni kjósenda sé skammt. Það má vel vera en stundum finnst manni sem pólitískt minni pólitíkusanna sjálfra risti enn grynnra. Til dæmis skrif fyrrverandi innanríkisráðherra á samnefndan vef í kvöld.
Ögmundur skrifar: "Hér er ríkisstjórnin að þjóna fjármagninu eins og fyrri daginn. Á sama tíma og fjármálaráðherrann gengur erinda peningamanna "
Þetta væri góð athugasemd ef hún kæmi ekki úr penna manns sem stóð að baki þeirrar ríkistjórnar sem harðast hefur gengið fram af öllum ríkisstjórnum á lýðveldistímanum, að þjóna fjármagninu á kostnað skuldsettra heimila. Ef svona tvískinnungur er ekki tilefni aulahrolls hjá fleirum en mér þá er ég illa svikinn.
Ögmundur ætti að hafa manndóm í sér til að afneyta fyrrverandi ríkisstjórn og útskýra hvers vegna hann er ennþá í VG. Ef hann er svona mikill prinsipmaður, afhverju fylgdi hann ekki fordæmi Lilju Mósesdóttur og Atla og sagði sig úr hinu vanheilaga bandalagi Steingríms og AGS. Með því hefði hann verið maður að meiri.
Ögmundur hefur reist sinn minnisvarða og svona skrif breyta engu um þann sess sem hann valdi sér í sögunni. Pólitískur alzheimer á síðari tímum breytir engu þar um.
18.1.2016 | 21:58
Ungliði tekinn í nefið
Mikið er nú alltaf hressandi að hlusta á Kára Stefánsson tala fyrir hugðarefnum sínum. Því það er reginmunur á að tala fyrir eigin sannfæringu eða vera talsmaður þröngra hagsmuna án þess að hafa sannfæringu fyrir málefninu. Því það fannst mér einkenna málflutning ungliðans. Hjá hanni helgaði tilgangurinn meðalið og skipti engu hvort meiri hagsmunum væri fórnað fyrir minni. Enda eru rök þeirra sem vilja áfengi í verslanir Haga og Krónunnar ekki rök þeirra sem vilja frelsi í viðskiptum. Ef hér væri virkileg samkeppni á öllum sviðum þá væri lítill ríkisrekstur. Enda eru engar líkur á að sala á áfengi skili sér í lægra verði þótt salan færðist til Haga. Ef meðgjöfin hjá Vínbúðunum er í dag 2 ma þá er það til marks um að Vínbúðirnar hafi farið of geist í markaðssetningu á sínum vörum og því ber að draga úr þeirri markaðssetningu með fækkun búða minnkuðu vöruúrvali og minnkuðum birgðakostnaði. Því það er nákvæmlega það sem mun gerast ef brennivínsfrumvarpið verður samþykkt. En gróðinn af einkaleyfunum sem útvaldir fá að selja í Hagkaupum og Bónus mun margfaldast vegna minna vöruúrvals.
Vonandi að fleiri átti sig á plottinu og láti ekki hafa sig útí það pólitíska harakiri að mæla með afnámi einnar tegundar einokunar til að efla aðra tegund einokunar.
Hlustum á lýðheilsurökin frá manni sem hefur engra sérhagsmuna að gæta um leið og við sendum skýr skilaboð til ungliða í öllum flokkum að velja sér vandlega verðug baráttumál. Baráttumál sem landi og lýð gagnast í raun. Á einokunarmarkaði eru ríkisafskipti ekki aðeins eðlileg heldur nauðsynlegt mótvægi til að tryggja hag neytenda að því marki sem hægt er þegar yfirvöld eru jafn spillt og hér á Íslandi.
![]() |
Ekki spurning um frelsi eða ríkisrekstur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.1.2016 | 19:23
Handboltafyllerísofbeldi í boði RUV
Nú er kominn föstudagur í dagatali fyllibyttunnar og heimilið undirlagt. Næstu daga mun allt snúast um þessa "helgi" hjá ríkisfjölmiðlinum og ekkert til sparað. Og eins og hjá öðrum ölkum þá munu afleiðingarnar bitna á fjölskyldunni í þessu tilfelli áskrifendum RUV. Eftir að þessu fylleríi lýkur og timburmennirnir hellast yfir þá mun okkur ekki verða boðið uppá annað en enn fleiri auglýsingar og enn fleiri endursýningar og þriðja flokks sjónvarpsefni. Hvers eigum við að gjalda? Við erum engin handboltaþjóð þótt íþróttadeild RUV hafi eytt milljónum í áróðursþætti til að réttlæta áhersluna á þessa tegund sjónvarpsefnis. Þótt nokkrir miðaldra kallar séu í vinnu við að grípa og kasta bolta á milli sín þá réttlætir það ekki þetta boltaofbeldi sem við erum beytt í ríkisfjölmiðlinum.
![]() |
Góður stuðningur dugði ekki - myndir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.1.2016 | 18:12
Kári og strámennirnir
Alveg er makalaust hvernig hælbítarnir geta hamast gegn öllu sem Kári Stefánsson, segir og gerir. Ef þessir aumingjar hefðu bara afrekað einn tíunda af því sem Kári hefur gert þá mættu þeir vel við una. En því miður þá er minnimáttargenið ríkjandi í þessu klíkuþjóðfélagi og velgengni illa séð. Sérstaklega upphefð og viðurkenning sem örfáir Íslendingar njóta erlendis frá.
![]() |
Segir yfirlýsinguna illa hugsaða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.1.2016 | 23:21
Stjórnskipuninni að kenna
Það hversu auðveldlega ráðherrar fara á svig við ákvæði stjórnarskrárinnar um þrískiptingu valdsins ætti að vera næg ástæða fyrir róttækum breytingum á stjórnskipuninni. Ráðherra æðið birtist okkur í hverri ákvörðun þessarar ríkisstjórnar af annarri og það heyrir til undantekninga að þingmenn hreyfi mótmælum nema helzt Frosti.
Hér mun ekkert breytast nema með byltingu hugarfarsins. Hættum að vera hræddir meðvirkir fávitar. Við eigum betra skilið en Bjarna Ben og Sigurð Inga.
Alþingi mun ekki breyta neinu sem stofnun. En fólk eins og Frosti getur það.
![]() |
Segir Bjarna skorta samþykki Alþingis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.1.2016 | 22:01
Brýnt að losna við þessa borgarstjórn á einu bretti
Það er ekki eitt heldur allt sem kallar á breytt viðhorf borgarfulltrúa gagnvart ábyrgð og skyldum sem kjöri þeirra fylgir. Flokkarnir sem bjóða fram verða að fara að vinna saman sem heild eftir kosningar en ekki í þessum meiri og minnihlutablokkum eins og venjan er. Hagsmunir borgaranna eru einfaldlega of miklir til að spila með í valdatafli fjórflokksins.
Sveitastjórnarpólitíkin hefur breytzt til hins verra og má þar helst um kenna persónulegum illindum frekar en málefnaágreiningi. Á þessu er samt ein undantekning og það er sú forræðishyggja sem sauðargærupólitíkusar eru farnir að stunda í krafti lýðræðisgallans sem felst í meirihlutalýðræðinu eins og það er praktíserað.
Einn þessara sauðargærupólitíkusa er Hjálmar Sveinsson sem virðist njóta stuðnings fólks úr VG Pírötum og Bjartri Framtíð. Ég minnist þess ekki að þetta fólk hafi viðrað það við kjósendur að hér í Reykjavík skyldi skipulagi kollvarpað, verktökum og bröskurum afhent skipulagsvald, þjónusta skert, lántaka aukin, eignir seldar til að standa undir gæluverkefnum og haldið áfram að sóa fé í umferðarþrengingar. Svo ekki sé minnst á eyðsluna og sóunina innan yfirstjórnarinnar sjálfrar þar sem kjörnir fulltrúar stunda sjálftöku sem aldrei fyrr.
Krafan hlýtur að vera einhvers konar sáttmáli þar sem kjörnum fulltrúum verður settur rammi til að starfa eftir og allt umfram það verður að bera undir borgarana í beinum rafrænum kosningum. Þessi ákvörðun skipulags og umhverfisnefndar er rakið dæmi um mál sem þarf að sækja umboð til að leiða til lykta.
Þetta með stjórnlyndið og forræðishyggjuna speglar líka hrokann sem einkennir þetta lið. Þeir bjóða íbúunum að kjósa um verkefni sem kosta smáaura en eru svo sjálfir að makka með fé sem skiptir hundruðum milljóna í allskonar hluti sem ekki falla undir grunnþjónustuna sem fyrir vikið er fjársvelt.
Og það skal tekið fram að þessi gagnrýni á við alla borgarfulltrúa og varamenn. Hvað eru sjálfstæðismenn að gera með fólk sem brást trausti umbjóðenda sinna svo hrapallega í tíð fyrrum borgarstjórnarmeirihluta og sparka manni eins og Gísla Marteini sem var eini pólitíkusinn sem hafði erindi. Bara að sjá og heyra í mönnum eins og Júlíusi Vífli og Kjartani Magnússyni er ein af ástæðum þess rofs sem er orðið milli kjósenda og fulltrúanna sem svikust aftan að okkur. Þessara fyrirlitlegu sauðargærupólitíkusa.
![]() |
Fækka akreinum og leggja göngu- og hjólastíga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.1.2016 | 00:26
Don Ásgeir og Kvíabryggjukrimmarnir
Á Kvíabryggju krimmi súr
kvartar undan Páli
sem leyfði Mikaeli Múr
að mæla fanga máli
Brást nú ekki Ásgeir Jón
enda þeirra æðsti don
og sinn sendi þangað þjón
Þorbjörn nokkurn Þórðarson
Afraksturinn augum bar
í "Íslandi í dag" í gær
En herferðin sem hófst víst þar
háðuglega útreið fær
Fyrst máttum enga eftirsjá
eða iðrun heyra
hatar þjóðin alla þrjá
en Þorbjörn sínu meira
![]() |
Kvartað undan fangelsismálastjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 00:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2016 | 21:59
Fávitar
Fávitarnir virðast vera
verulegum fjöld' að ná
ef hundrað þúsund brigður bera
Biblíuna ekki á!
![]() |
Karlar trúa frekar en konur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.1.2016 | 10:53
Útvarp Saga Man Þórarinn
Trúss sitt bindur Björku við
blaðamannasubba
og ófrægir þar útvarpið
sem ekki spilar Bubba
Úr penna Tóta rugl og raus
rennur alla daga
Og þótt hann áfram leiki laus
þá lifir útvarp Saga
13.1.2016 | 08:51
Listamannalaun
Þeir úthlutanir fáu fá
sem flagga sínum raunum,
því það er list að lifa á
listamannalaunum
![]() |
Vilborg Davíðsdóttir svarar fyrir sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 09:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)