13.1.2016 | 07:37
Samfélagsábyrgð verktaka
Ekki ætla ég að varpa sök á arkitektana sem teiknuðu þær byggingar sem helst eru gagnrýndar fyrir smekkleysi og metnaðarleysi og sem skipta svo miklu máli fyrir ásýnd Lækjargötunnar. Sökin er náttúrulega fyrst og fremst skipulagsyfirvalda, borgarstjórnarmeirihlutans og svo eiganda lóðanna, sem oftast eru braskarar í leit að auðfengnum gróða.
Það er til þeirra sem á að tala en ekki drekkja gagnrýninni í óþolið sem forsætisráðherrann veldur ákveðnum hópum í samfélaginu og sem vill svo til að eru líka háværastir á samfélagsmiðlunum.
Krafan er að skipulagsyfirvöld taki málið upp og semji við lóðarhafa um ásættanlegar breytingar varðandi útlit og götuásýnd þessara tveggja byggingaráforma, Hafnartorgs og hótelsins á Íslandsbankareitnum. Arkitektarnir eiga ekki að vera feimnir við að herma eftir gömlum stílum eins og þeim sem til dæmis Guðjón Samúelsson teiknaði sínar byggingar í. Þessi hræðsla við höfundarrétt arkitekta er óskiljanleg. (Í raun ætti að afnema þann rétt úr löggjöfinni eins og hann hefur verið misnotaður af eigendum og erfingjum höfundarvarins réttar. Vísa til dæma um að heilu byggingarnar hafa verið rifnar vegna ósættis við arkitekta um fyrirhugaðar breytingar)
En ef viðkomandi bregðast ekki við þeirri gagnrýni sem fram hefur komið úr mörgum áttum þá er eina sem hægt er að gera til að bjarga götumyndinni og það er að búa til síki eða kanal frá horninu á Vonarstræti og að Hörpu en þar gæti kanallinn beygt á milli Hörpu og fyrirhugaðs hótels og út í höfnina við varðskipabryggjuna. Svona síki myndi upphefja götumyndina og draga úr neikvæðum áhrifum annarra hús þarna líka . Svosem eins og Iðuhússins og svarta slyssins við Lækjartorg.
Svo væri upplagt að hanna alvörutorg þar sem Lækjarkanallinn byrjaði á horninu á núverandi Lækjargötu og Vonarstræti. Í miðborginni stendur ekkert torg undir nafni! Með þessu mætti líka bjarga tjörninni og votlendinu í Vatnsmýrinni. Í dag er tjörnin ekkert nema fúlipyttur þar sem fátt þrífst nema vargurinn og borgarstjórnin. Sem er líka álitamál hvort þrífist yfirhöfuð.
![]() |
Verktakar sýni teikningarnar miklu fyrr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.1.2016 | 16:08
Öryggisventillinn lekur
Nú er ekki lengur á Ólaf Ragnar að treysta. Hann virðist hafa gert friðarsamninga við hina pólitísk kjörnu fulltrúa um að láta af embætti gegn einhverjum sporslum sér til handa. Sennilega verður stofnað embætti Sendiherra Norðurslóða, sem hann mun hljóta.
Og nú kætist fjórflokkurinn og stuðningsmenn hans og hugsa sér gott til glóðarinnar með nýjum Þóru - frambjóðanda. Með því verður lokið tilrauninni um stjórnarskrárumbætur fyrir fólkið í landinu og hrammur klíkuveldisins mun kreppa enn fastar að íslenzkum almenningi en áður hefur þekkzt.
Eina sem getur komið í veg fyrir þetta er að við höfum vit til að velja okkur forseta sem virkar áfram sem öryggisventill milli þjóðar og þings. Og sá maður er til og hefur lýst yfir framboði.
Kjósum öll Sturlu Jónsson sem næsta forseta.
27.12.2015 | 15:24
Álitssalar takast á
Ef Egill sinn upphefur vönd
íhaldið reist fær ei rönd
Og Davíð þess geldur
að um pennann hans heldur
útgerðar auðvaldsins hönd
En Egils er álitið falt
því Eyjunni seldi það allt
Þó breyti í boðun
Bingi hans skoðun
á hann þú trúa ei skalt!
Limrur | Breytt 14.1.2016 kl. 00:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2015 | 02:39
Góða fólkið fær í skóinn
Þótt sumir eigi í orðastað
og aðrir bjöllu klingi
er einn sem ætti aldrei að
opna munn á þingi
Brátt þreytast munu þingmenn á
að þæfa sama málið
því ausulausir ekki ná
að eta súpukálið
Við sjónar þekkjum þetta spil
sem þingmennirnir setja á svið
Í beinni en ekki bakatil
bræðilaust svo semja frið
Og átakalaust enda þrefið
svo ekki verði á því töf
að Albanina geti gefið
Góðu fólki í jólagjöf
Tækifærisvísur | Breytt 14.1.2016 kl. 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2015 | 14:10
RÚV í ruglinu
Helzta vígi góða fólksins er innan RÚV. Nánar tiltekið á fréttastofunni. Þar þrífst tilfinningaklámkenndur fréttaflutningur sem á ekkert skylt við heiðarlega fréttamennsku. Flóttamannaumfjöllun RÚVara er lýsandi fyrir hlutdrægni sem er beinlínis ætlað að móta almenningsálitið. Áróðurstækni felst í því að nýta sér veikleika almennings, finna veiku blettina og höfða til tilfinninga frekar en dómgreindar. Þetta kunna fréttamenn RÚV að nýta sér til að skapa óróa og koma höggi á "óvinveitta" ráðamenn. Þetta er ekki eðli fjórða valdsins heldur beinhörð flokkspólitík, sem á ekki og má ekki þrífast innan veggja ríkisrekins fjölmiðils. Útvarpsstjóri hlýtur að láta málið til sín taka og setja sína fólki starfsreglur fyrst það getur ekki gert það sjálft.
Fréttastofan á ekki að gera út á tilfinningalegt ójafnvægi fólks í leit að sjálfsupphafningu. Þegar rugludallar eru farnir að viðra hugmyndir um umboðsmenn flóttamanna og jafnvel stinga upp á því í fúlustu alvöru að sækja brottvísaða flóttamenn þá er þetta orðið grín án jóks.
Við megum ekki láta "Góða fólkið" afvegaleiða umræðuna. Einbeitum okkur að flóttamannahjálp og flóttamannaneyð. En viðurkennum að við getum ekki hjálpað öllum langveikum börnum í heiminum, ekki einu sinni okkar eigin! Og það er mikilvægt að þessar reglur séu ekki háðar geðþótta ráðamanna hverju sinni hvað svo sem góða fólkinu finnst.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.12.2015 | 13:47
Góða fólkið gengur af göflunum ...aftur
Málefni flóttafólks og hælisleitenda hafa verið áberandi í umfjöllun fjölmiðla undanfarið. En umfjöllunin hefur því miður verið mjög einhliða og byggst á tilfinningarökum en forðast að fjalla um getu íslenzks þjóðfélags til að taka við öllum þeim útlendingum sem hingað leita. Sem er lýsandi fyrir hið tvöfalda siðgæði sem einkennir góða fólkið umfram aðra. Fólkið sem þiggur lífsviðurværi af því sama kerfi sem það ræðst svo á í geðshræringum fésbókarstatusa sinna eigin og annarra.
Útlendingastofnun er hluti af kerfinu sem við höfum komið á fót og berum öll ábyrgð á. Forstjóri útlendingastofnunar starfar samkvæmt lögum og reglum sem honum er sett. Forstjórinn og starfsmenn hans hafa ekkert umboð eða svigrúm til tilfinningasemi. Þetta eigum við að skilja og virða.
Albanska flóttafólkið kom hingað undir fölsku yfirskyni. Það er niðurstaða Útlendingastofnunar sem nota bene þessir hælisleitendur sætta sig við. Hvers vegna er þá góða fólkið að ganga af göflunum? Er virkilega ekkert annað til að hneikslast yfir en lögmætir úrskurðir starfsmanna útlendingastofnunar?
Og að ráðast að Ólöfu Nordal vegna þessa máls er eins ómálefnalegt og það getur verið. Eru menn búnir að gleyma Hönnu Birnu málinu? En það er þetta með tvöfalda siðgæðið......
![]() |
Krefjast afsagnar Ólafar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.12.2015 | 15:20
Guðni skipar, Ólafur hlýðir
Nær væri að svipta þessa bankaræningja ríkisfangi.
![]() |
Sviptur rétti til að bera orðuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.11.2015 | 09:17
Af Illuga Orku-ráðherra
Þótt Ingi í Stundinni flytti um hann frétt
og fyndist hann svolítið spilltur
Varpaði Illugi öndinni létt
af Orku og Energy fylltur
Tækifærisvísur | Breytt 26.1.2016 kl. 09:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2015 | 20:23
3 spurningar vegna dagskrárstjórnar hjá RÚV
3.nóvember 2015 var sýnt frá Legókeppninni 2015.
Frábært framtak ef um beina útsendingu hefði verið að ræða. En nei. Keppnin fór fram 1.febrúar síðasta vetur.
Í kvöld er svo á dagskrá þáttur sem heitir Ebba awards. Verðlaunaafhending sem fram fór í janúar síðastliðnum!
Til hvers í ósköpunum er verið að kaupa efni og geyma það svo ofan í skúffu? Er verið að spara svo hægt sé að eyða meiru í boltaíþróttirnar sem hafa haft algjöran forgang í dagskránni á ríkisforsjármiðlinum RÚV?
Er ekki kominn tími á nýjan dagskrárstjóra?
8.11.2015 | 16:45
Að eiga sér Nefnd
Halldóri Pírata í borgarstjórn Reykjavíkur finnst í lagi að fara til Parísar á frímiða frá framtíðar-skattgreiðendum í Reykjavík vegna þess að hann hafi lækkað við sig launin um 1 launaflokk í "sinni" nefnd!
Hann gleymdi bara að taka fram að þessi nefnd var búin til sem skilyrði af hans hálfu fyrir stuðningi við helstefnu Dags borgarstjóra og hans meðreiðarsveina.
Hvort að heiðarlega sé hér að verki staðið munu Reykvíkingar væntanlega dæma um í næstu kosningum. Þá verður betra að eiga sannfæringu og prinsip heldur en eigin nefnd.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)