1.6.2015 | 11:56
Um hvað sömdu læknar?
Hjúkrunarfræðingar eru sennilega vanmetnasta stétt landsins þegar kemur að launum og álagi í vinnu. Þess vegna er ekki skrýtið þótt þau beri sig saman við lækna í þessari launadeilu sem bitnar nú á sjúklingum og aðstandendum af vaxandi þunga. Ég stóð með læknum í þeirra baráttu og ég styð hjúkrunarfræðinga heilshugar. Þeir eiga ekki að sætta sig við miklu lakari kjör en læknar hafa. Og það á líka að gilda um aðra sérfræðinga sem starfa á sjúkrahúsunum. Miðið ykkar launakjör við læknana og krefjist síðan að framvegis verði gerðir vinnustaðasamningar á Landspítala Háskólasjúkrahúsi sem gildi fyrir allt heilbrigðisstarfsfólk á vegum ríkisins. Núverandi fyrirkomulag gengur ekki. Verkföll af þessu tagi eru ekki boðleg. Hvorki fyrir launafólk eða launagreiðandann.
En lög á vinnudeilur eru heldur ekki það sem neinn vill. Alþingi væri nær að endurskoða lög um stéttarfélög og vinnudeilur og koma kjaramálum í viðunandi farveg. Þetta leikrit sem sett er upp af fjölmiðlum í hvert skipti sem stefnir í átök á vinnumarkaði er orðið dálítið þreytt.
![]() |
Lög á verkfallið ekki útilokuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.1.2015 | 13:41
Samráð um lækkun vörugjalda
Talaði maðurinn af sér?
Ómar Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samkaups, sem meðal annars rekur Nettó og Samkaup, segir að verið sé að breyta verðmerkingum vegna virðisaukaskattsins. Ómar segir að það eigi eftir að taka birgðastöðuna og því sé ekki búið að lækka verð vegna vörugjaldanna. Þá segir hann skipta máli hvernig aðrir á markaðnum framkvæmi þetta. Það er engin bein lína í þessu heldur verður að skoða ýmislegt, segir hann og bætir við að vinnan sé tímafrek og kostnaðarsöm. Vörugjöldin verði þó ekki innifalin í verði þeirra vara er koma með næstu sendingum
Hvernig getur það skipt máli hvernig aðrir á markaði framkvæmi þetta? Menn eru búnir að hafa rúman tíma og svona undanflæmingur virkar ótrúverðugur og sannfærir mig um að vörugjaldalækkunin muni ekki skila sér að fullu í vasa neytenda. Alveg sama þótt innan um séu heiðarlegir kaupmenn sem vilji vel þá munu þeir einmitt horfa til þess hvernig aðrir framkvæma þetta
2.1.2015 | 13:02
Blekkingar Bjarna Ben og þögn Kristjáns Þórs
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, hefur tjáð sig um kröfur lækna og fer þar með vísvitandi blekkingar sem hann treystir á að verði ekki svarað af samninganefnd lækna. En heimskur pöpullinn gleypir við áróðri stjórnvalda og nú virðist sem samúð eða velvilji almennings með kröfum lækna sé að snúast upp í hneykslun á óhóflegri frekju hálaunamanna. Nákvæmlega eins og Bjarni Benediktsson lagði upp með.
Þess vegna verða læknar að upplýsa kröfur sínar. Þessi leyndarhyggja hefur ekkert upp á sig. Á meðan laun lækna eru greidd úr ríkissjóði þá á almenningur fullan rétt á að vera upplýstur um launakjör lækna. Því það er ólíðandi að annar aðilinn, í þessu tilviki fjármálaráðherra geti blekkt almenning með vísvitandi blekkingum og hálfsannleik varðandi yfirstandandi kjarasamninga.
Með því að nefna meðallaun upp á 1100 þúsund og hækkunarkröfu upp á 40% þá er verið að telja almenningi trú um að kröfur lækna feli í sér 400-500 þúsund króna hækkun á mánuði. Þetta er náttúrulega ekki rétt. Ef læknar krefjast 40% hækkunar þá er það hækkun á grunnlaun en ekki meðallaun. þarna munar umtalsverðum fjárhæðum. því grunnlaun lækna eru ekki há. 340 þúsund fyrir almenna lækna og 550 hjá sérfræðilæknum. 40% hækkun á þessi grunnlaun getur ekki talist óhóflegar kröfur miðað við aðra hálaunahópa í ríkisgeiranum.
Og hvað eru læknar margir? 400-500? leiðrétting til þeirra mun þá kosta 1-2 milljarða. Höfum við efni á að rústa því sem eftir er af heilbrigðisþjónustunni fyrir 2 milljarða?
Hvað lækkuðu þessir auðmenn aftur skatta á auðmenn mikið á fyrstu vikum valdtöku sinnar? Var það ekki upphæð sem nemur tug milljarða?
Hvað finnst fólki? Ætlar það að snúast gegn læknum og sitja uppi með ónóga sjúkraþjónustu á næstu mánuðum eða stendur nú þjóðin einu sinni með sjálfri sér og hrindir þessari atlögu stjórnvalda að heilbrigðiskerfinu í eitt skipti fyrir öll?
Kristján Þór stenst ekki alvöru þrýsting. Hann verður fljótari að brotna en Hanna Birna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.1.2015 | 13:14
Stundarskaupið
Á meðan Áramótaskaup Sjónvarpsins, með stórum staf var álíka fyndið og kæst skata, þá kunni ég vel að meta húmorinn í Stundarskaupinu. Atriðin með Gambranum, leikskólalögum þjóðarinnar og stælingin á kastljósviðtölunum, hittu nákvæmlega í mark. Leikurinn, söngurinn og textinn var allt eins og átti að vera. Hvorki of eða van. Þess vegna læt ég mér í léttu rúmi liggja hversu gjörsamlega misheppnað skaupið með stóra stafnum var. En vonandi verður ekki reynt að gera pólitískt skaup aftur. Það voru mistökin sem handritshöfundar og leikstjórinn gerðu , að nota skaupið til að koma á framfæri sínum eigin pólitísku skoðunum. það kann
ekki góðri lukku að stýra. Því uppistand er ekki sama eðlis og leikstýrt gamanefni. Í uppistandi fyrirgefst mönnum að vera persónulegir og pólitískir. það er hægt að horfa í gegnum fingur við Dóra DNA að gera grín að afa sínum og það er hægt að umbera Ara Eldjárni að gera grín að foreldrum sínum jafnvel þótt grínið sé græskusamt, því uppistand er eins og eintal. Annaðhvort finnst mönnum uppistandarinn góður eða lélegur. því miður eru íslenzku uppistandararnir flestir lélegir þótt þeir eigi sína spretti og sína brandara.
En kannski eru Íslendingar upp til hópa jafn húmorslausir kæst skata.
Hvað veit ég.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.12.2014 | 18:19
Fráskilin að vestan
Á jólum boðar biskup trú
á barnavininn mestan
Þjóðkirkjunnar fyrsta frú
er fráskilin að vestan
Oft er til þess tekið nú
að trúarleysið smiti
og vandarótin væri sú
að vantaði "integriti"
![]() |
Nú býðst okkur að taka við ljósinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.12.2014 | 17:21
Óspar á orðurnar
Ekki lengur virðing vís
viðtakenda bíður
Því orður fá frá Óla grís
óuppdreginn lýður
Hvað segðu þeir sem hafa hæst
og hneikslast á þeim orðuklúbb
Ef Bingi fengi fálkann næst
Fyrir þetta fréttaskúbb
![]() |
Sigmundur sæmdur fálkaorðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.12.2014 | 20:09
Vesturfarinn Bjarni Lyngholt
Vinsamleg tilmæli
Ég veit - er ég dey - svo að verði ég grátinn.
þar verðurðu eflaust til taks.
En ætlirðu blómsveig að leggj´ á mig látinn
- þá láttu mig fá hann strax.
Og mig eins og aðra, sem afbragðsmenn deyja,
í annála skrásetur þú;
og hrós um mig ætlarðu sjálfsagt að segja,
en - segðu það heldur nú.
En vilji menn þökk mínum verðleikum sýna,
þá verður það efalaust þú,
sem sjóð lætur stofna í minningu mína,
en - mér kæmi hann betur nú.
Og mannúðarduluna þekki ég þína,
sem þenurðu dánum í hag.
En ætlirð´ að breiða yfir brestina mína,
þá breidd´ yfir þá í dag.
Höf. Bjarni Lyngholt 1912
Bjarni Sigurðsson Lyngholt fæddist árið 1871, í Hjálmholti í Rangárvallasýslu, sonur Sigurðar Björnssonar og Rannveigar Bjarnadóttur. Bjarni flutti til Kanada árið 1903 og settist fyrst að í Winnipeg, en flutti síðar til Blaine í Washingtonfylki. Bjarni gerðist templari árið 1907 og starfaði með "Hekla Good Templars" í Winnipeg, Vancouver 1907-1929. Bjarni var bæði járnsmiður og skósmiður að iðn, vel lesinn, og tók þátt í menntalífinu. Bjarni var oft fenginn til að troða upp á samkomum með upplestri, söng og leik. Bjarni var trúmaður og aðhylltist kenningar Unitarianista. En þeir skilgreina Guð sem aðeins einn Guð en ekki þríeinan. (eins og til dæmis íslenzka þjóðkirkjan í dag) Þegar Bjarni komst á efri ár gerðist hann spíritisti. Hann gaf út ljóðabókina "Fölvar rósir" árið 1913. Ljóðið Tilmæli hér að ofan er frá árinu 1912. Bjarni var merkismaður og nokkuð vel metinn sem skáld. Til marks um það þá kostar nú eintak af ljóðabókinni $175 á netinu. Ekki kemur fram hvort það er ensk útgáfa en eitt eintak á frummálinu mun vera til á bókasafni í Toronto. Bjarni lézt árið 1942.
Heimild: af bókarkápu "Fölvra rósa"
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2014 | 23:33
Bankarnir og jólin
Í öllu þessu þrasi um trú
þykir mér öllu verra
að biskupinn er bara frú
en Borgun, Guð vors herra
Tækifærisvísur | Breytt 22.12.2014 kl. 00:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2014 | 23:17
Dæmdur og léttvægur fundinn
Agli mikill móður svall
ég mest hann tek á orðinu
í bókadómum bízna snjall
en bara á yfirborðinu
Jón er einsog "advokat"
allt hið slæma bætti
Egils fokk oss forðað gat
frá þeim "mannasætti"
Tækifærisvísur | Breytt 22.12.2014 kl. 00:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2014 | 22:42
Naflastrengur kirkjunnar
Þeim sem rífst um ríkistrú
réttast held ég væri
þann naflastreng að stytta nú
strax, ef ættu skæri