Adam að kenna

Bönnuð á Facebook

Engan hneikslar brjóstið bert
bara opin klaufin
Ef ekki hefði Adam gert
Evu að nota laufin

adam_og_eva_1251497.jpg

brjostamynd.jpg


Fréttaeinelti RÚV

"Mál sem ég var aldrei spurður um"

Eins og úlfur eftir slóð
útvarpsrúvið rennur
en efna bara að eldi glóð
sem einum á þeim brennur

Fréttamennskan meinar hann
marga vekur furður
þeir ljúga öllu uppá mann
sem aldrei var þó spurður

Umkringdur af aulaher
ekki öfundsverður
Hann einn veit hve vaskur er
og vel af Guði gerður

 


Er Skagafjörður ríki í ríkinu?

Nú er mælirinn fullur. Nú verður að fara að stoppa valdagræðgi Þórólfs kaupfélagsstjóra. Þótt hann hafi keypt Framsóknarflokkinn og ráði þar öllu, þá hefur hann ekkert umboð frá almenningi til að skipa fyrir um flutning ríkisstofnana heim í hérað.

Að flytja rekstur LHG í Skagafjörð er vitlausara en tali tekur. Að efla veiðar og vinnslu vill þessi höfðingi ekki enda skarast það við hans eigin hagsmuni. Hér áður var mikill uppgangur á öllu Norðurlandi og annars staðar, sem tengdist sjávarútveginum. En kvótagreifarnir lögðu mörg smærri byggðarlög í eyði með tilflutningi á aflaheimildum og sköpuðu þetta ástand sem nú á að laga með flutningi ríkisstofnana til landsbyggðanna.

Ekkert er talað um að endurskoða fiskveiðiráðgjöfina. "Why" .myndi Malala spyrja

Nú reynir fyrir alvöru á þanþol Sjálfstæðisflokksins. Munu þeir gleypa þessar hugmyndir eins og flutning Fiskistofu?   Eða verður þetta fleygurinn sem splundrar ríkisstjórninni?

 

 


mbl.is Leggja til flutning fleiri stofnana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um hvað snúast kjaraviðræður lækna?

Hvers vegna leggja læknar ekki kröfugerðina á borðið svo almenningur geti tekið afstöðu með eða móti? Samninganefnd ríkisins er bundin trúnaði en kröfugerðin á að vera opinber. Nema að læknar séu að blanda óskyldum málum inní þessar kjaraviðræður.

Það er ekki einleikið hversu lítið fréttist af þessari deilu.

Er ekki miklu hreinlegra hjá læknunum að segja upp heldur en nota sjúklinga sem fallbyssufóður? Ef læknar segja upp og telja sig fá hærra launaðar stöður erlendis þá verðum við að flytja inn lækna sem búa við frumstæðari aðstæður en tíðkast hér. Það hlýtur að gilda það sama þegar erlendir læknar vilja ráða sig hingað eins og þegar íslenzkir læknar fara erlendis.

Boltinn er hjá læknum. Framkvæmdir við nýjan spítala og tækjakaup eiga ekki að vera hluti af lausn þessarar deilu.


mbl.is Harðari aðgerðir á nýju ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV - Af því bara

Menn eru nú að missa sig unnvörpum yfir því að allir hinir séu ekki skattpíndir áfram.  Mjög sérstök múgæsing verð ég að segja. Nú er ekki verið að aflétta sköttum af hinum efnameiri, nei þvert á móti er verið að minnka skattaálögur á almenning og lögaðila, sem er skref í áttina, en samt mótmæla menn. Hvað er með þetta skattablæti vinstri elítunnar???

Málið snýst um réttlæti og jafnræði. Skatta má ekki leggja á nema rík ástæða sé til. Það er engin rík ástæða til þess að reka fjölmiðil fyrir skattfé almennings og leyfa HONUM LÍKA AÐ KEPPA Á FÁKEPPNISMARKAÐI UM AUGLÝSINGAR, EFNI OG KOSTUN. það er bara engin ástæða til árið 2014.

En fjórflokkurinn gerði RÚV að gæluverkefni árið 2008 og það var ástæða uppákomunnar í þingsal í dag. Að það hafi smitað út í fésbók og sumir bloggarar látið málið til sín taka er ekki merki um meirihluta stuðning við óbreyttan útvarpsskatt.  Menn skulu varast að draga þær ályktanir.

Hvaða menningarumfjöllun fer fram á RÚV sem enginn annar sinnir? Skoðum dagskrá Rásar 1 í dag. Þar eru kannski 4 dagskrárliðir sem eru áhugaverðir fyrir einhverja sem hafa ekkert annað að gera. Samfélagið, Spjall um listrænt framhaldslíf fornbókmennta, Víðsjá og Spegillinn. Allt annað er lapþunnt dægurefni sem er hugsað til uppfyllingar milli auglýsinga, frekar en að einhver hlusti í raun og veru. Dæmi: þátturinn "Segðu mér". Hann er ekki að finna á podcast sem þýðir bara eitt að öllum er sama um þann lið.

Miðað við þetta virðist mjög auðvelt að setja saman dagskrá fyrir menningarútvarpsrás.  Stöð sem þyrfti fáa starfsmenn og útvarpaði samt efni allan sólarhringinn. Dagskráin sjálf yrði kannski bara 6 klst af efni en endurflutt á hinum tímum sólarhringsins.  Með þessu næðist sparnaður sem ætti að nota til að gera menningartengda sjónvarpsþætti um lífið í landinu ala "Landinn".  Landinn ætti að vera á dagskrá á hverjum degi.

Og flytja meiri fréttir af daglegu amstri þjóðarinnar, ekki bara amstri listaelítunnar og leikhúslífi og tónleikahaldi. Lífsins symphony er ekki flutt í Hörpu, ef menn halda þaðtongue-out


Hefur ekkert breytzt?

Mig grunar að samstaðan með RÚV sé pólitísk en hvorki praktísk né málefnaleg.  Enginn skynsamur maður getur verið ánægður með dagskrá RÚV eins og hún er orðin. Og það er ekki hægt að réttlæta lélega dagskrá með lágum styrkjum þegar menn fá þó enn 4 milljarða af almannafé og afla sér líka umtalsverðra sértekna. Samt er búið að minnka stofnunina frá því sem hún var fyrir breytingarnar 2008. Semsagt við erum að fá miklu lélegri þjónustu fyrir miklu hærri greiðslur.

Í dag er lítil sem engin þjónusta við landsbyggðina, lítil sem engin innlend dagskrárgerð, enginn alvöru skemmtidagskrá, og engin almannaþjónusta á talrásum.

Og þegar listamenn storma næst á Austurvöll til að styðja áframhaldandi skattakúgun VG þá ætti þetta sama fólk að spyrja sig hvernig það sjálft myndi vilja hafa RÚV. Og velta því fyrir sér hvort skattfénu okkar sé vel varið í höndum núverandi stjórnar RÚV.

Helst af öllu vildi ég fá aðgang að bókhaldi RÚV 10 ár aftur í tímann. Þá skyldi ég finna raunverulega ástæðu fyrir taprekstrinum.  Ég einfaldlega kaupi ekki skýringar stjórnarinnar. Til dæmis hefur ekki verið útskýrt hverjir njóta þessara lífeyrisgreiðslna og ekki heldur hver lánaði fyrir byggingu útvarpshússins og af hverju ekki er hægt að borga það lán upp. Þarna er maðkur í mysunni sem full þörf er að fara í saumana á.  Listaelítan á ekki að láta nota sig sem peð í sýndarátökum fjórflokksins.


mbl.is Samstöðufundi um RÚV frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Freyr Gígja noti leiðréttingarforrit

Ekki er algengt að sjá málfræði eða innsláttarvillur á vef RÚV. Samt fann ég 2 í einni lítilli frétt merktri Frey Gígju. Hann heldur kannski að togarinn heiti Vigur þegar hann í tvígang skrifar "skipstjórinn á Vigri..."  Svo kann hann ekki heldur að stafsetja orðið bauja! 

Er þetta dæmi um hnignun móðurmálsins? Orð sem komin eru inn í málið tengd atvinnusögunni detta út eða verða ungu kynslóðinni óskiljanleg vegna þess að tengslin hafa verið rofin. Því ekki hefur RÚV sinnt því hlutverki að halda verkmenningu á lofti.  En hún er kannski ekki jafn merkileg og bókmennta eða listalífið í 101! 

Ég skal ekki segja.


Píratar standa vaktina

ar-140519126.jpgFlottur þingmaður sem tekur hlutverk sitt alvarlega.  Þurfum fleiri slíka. Menn sem fara inn á þing með það að markmiði að vinna þjóð sinni gagn en ekki bara flokknum og eigin buddu.


mbl.is Vill virðisaukaskatt á laxveiðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málskrúð "menningarsinnans"

Nú þurfa menn aðeins að róa sig niður. Hver er þessi aðför að RÚV, sem alltaf er klifað á? Er það aðför að mótmæla nefskattinum? Er það aðför að finnast dagskrá sjónvarps of íþróttamiðuð?  Er það aðför að finnast yfirstjórn RÚV ófagleg?  Er það aðför að krefjast uppstokkunar á rekstri í því augnamiði að spara fé skattborgara?

Nei þetta er ekki aðför.  Þetta er málefnaleg gagnrýni sem ekki fæst rædd. Og hún fæst ekki rædd vegna þess að menn taka alltaf pólitíska stöðu. Menn sjá fingraför Davíðs Oddssonar í öllum hornum og eru haldnir sjúklegu hatri á persónunni Davíð Oddsyni.

Hvernig væri að þessir menningarsinnar allir sem einn færu nú á brainstorming með vini sínum Magnúsi Geir og reyndu að finna leiðir til að bæta reksturinn og um leið gera hann skilvirkari og ódýrari. Ef það kostar uppskurð á rekstrinum þá förum við í hann af ábyrgð. Að tala um að hin hefðbundna dagskrá sé klöppuð í stein og engu sé hægt að breyta af því menn túlka loðin hugtök laganna sér í hag er fáránlegt. Auðvitað má breyta öllum rekstrinum án þess að breyta lögunum. 

Til þess er stjórnin skipuð. Það er engin pólitísk íhlutun að fjárveitingavaldið skeri niður. Ef það er merki um pólitískar hefndarofsóknir þá eru menn illa haldnir af paranoiu og ættu að fara í viðtal...

Ég hef margoft bent á hvað betur mætti gera og ódýrara. Við höfum séð það gert á öðrum stöðvum en enginn vilji er til að breyta neinu hjá RÚV. Og það er mikil ráðgáta.

 

 

 


40 mínútur af leiðindum

Eins og við var búizt þá er Hringborðið alverzta sjónvarpsefni sem sézt hefur í íslenzku sjónvarpi í 45 ár. Hverjum er ekki drullusama hvað Styrmi og Þórhildi finnst um kjaramál. Ef þetta á að vera svar við gagnrýni á popp væðingu RÚV þá er það ekki svo.  Í fyrsta lagi þá verður fólk upp í Efstaleiti að fara að skilja muninn á útvarpi og sjónvarpi. Í sjónvarpi verður að vera einhver grafísk framsetning á efni sem um er rætt. Þarna var ekkert slíkt. Engin gögn sem studdu staðhæfingar þáttastjórnenda.  Samt vantaði ekki mannskap sem kom að þessari útsendingu. Hvorki meira né minna en 15 manns á yfirvinnukaupi og þar af 2 sem áttu að sjá um grafíkina.  Róleg vakt hjá þeim!

Og svo ætlar þetta lið upp í Efstaleiti að senda út og gera 7 þætti í viðbót. Ég heimta afsögn útvarpsstjórans. En fyrst á hann að reka dagskrárstjórann. Til hvers að hafa dagskrárstjóra ef útvarpsstjórinn lætur bara senda út það sem honum dettur í hug?

Var einhver að biðja um þátt í líkingu við Hringborðið?  Nei, ég hef ekki orðið var við það.  Ef svo var þá var nær að sjónvarpa "Í Vikulokunum" heldur en þessum leiðindum.  Það sem er samt verzt við svona flopp þá læra menn ekkert. Menn taka aldrei neitt af dagskrá því þeim er sama hvað þrælaliðinu sem borgar, finnst. Ef einhver fagmennska væri í þessari stofnun þá notuðu menn nútíma aðferðir við öflun hugmynda og færu í alvöru vöruþróun við gerð dagskrárefnis. Öll alvöru fyrirtæki vinna öflugt markaðsstarf til að kortleggja þarfir neytenda. Hvar er sú deild á RÚV? það er ekki nóg að sinna markaðsstarfi meðal auglýsenda þótt allt snúist reyndar um það í þessari ömurlegu leiðindastofnun.

Og vegna þess að það skortir greinilega acut hugmyndir þá sting ég upp á að í stað Hringborðsins verði sent út frá málþingum og ráðstefnum sem alltaf er verið að halda í háskólunum okkar. Það væri virkilega þarft og spennandi verkefni.  Eitthvað sem ekki hefur verið gert áður en full þörf er á að mínu mati. Háskólafólkið er of innilokað og það sem heyrist er yfirleitt tengt einhverri pólitík.  Hvað er að gerast hjá Háskólanum í Reykjavík, Bifröst, Akureyri og HÍ, stofnun Sæmundar fróða?  Hvernig fer Guðrún Pétursdóttir að að stýra allri þeirri vinnu fyrir utan að vera leiðbeinandi í ótal doktorsverkefnavinnu? Og hvað er að gerast í Listaháskólanum?  Þetta er verkefni fyrir ríkisfjölmiðilinn að sinna.  Ekki fleiri samtalsþætti og matreiðsluþætti PLÍS!


mbl.is Eins og að ganga inn í rifrildi eldri hjóna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband