28.1.2011 | 00:26
Gagnrýni úr hörðustu átt
Kjartan Magnússon ætti að hafa vit á að skammast sín og ræða ekki málefni Orkuveitunnar. Heldur hann að við íbúar Reykjavíkur séum búin að gleyma því hvernig borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins unnu að því fyrir opnum tjöldum að einkavæða OR í hendur Jóns Ásgeirs og Hannesar Smárasonar? Eða hvernig þau með baktjaldamakki sprengdu meirihluta Samfylkingar með því að kaupa fulltrúa 5% flokks til fylgis við 1 manns meirihluta og afhentu 5% flokknum 50% völd í borginni og þar með stjórnarformennsku í Orkuveitunni. Þessum framsóknarmanni hafði svo næstum tekist að keyra Orkuveituna í þrot með ófaglegum ákvörðunum og bruðli. Kjartani Magnússyni fer betur að læðast með veggjum og vera ekki með svona upphlaup, hans ábyrgð er mikil og hann hefur ekki beðist afsökunar. Hann er bara sauður sem hefur ekkert vit á flóknum rekstri eins og Orkuveitan stendur í. Til allrar hamingju þá tók Besti flokkurinn réttar ákvarðanir í sambandi við endurreisn þessa langmikilvægasta fyrirtækis borgarinnar og kom því í hendur fagmanna sem mun takast að bjarga því sem bjargað verður. Það eitt réttlætir kosningu Besta flokksins til valda í Reykjavík. Og vonandi verður svo búið um hnútana að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar geti aldrei aftur rústað þessu fyrirtæki með pólitískum afskiptum
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:29 | Facebook
Athugasemdir
Komdu sæll Jóhannes. Nokkrar athugasemdir í vinsemd í von um að þú viljir hafa það sem sannara reynist.
Með góðri kveðju, Kjartan Magnússon.
Kjartan Magnússon (IP-tala skráð) 29.1.2011 kl. 02:10
Þakka þér Kjartan fyrir þetta innlegg. Hins vegar skaltu vita að allir borgarfulltrúar eru undir smásjá og pistillinn minn byggist á viðhorfum hins almenna borgara. Allir borgarfulltrúar fjórflokksins liggja undir ámæli vegna stjórnunar á OR. Þar er enginn undanskilinn. Og hvernig ég túlka framferði sjálfstæðismanna við myndun meirihlutans sem kláraði síðasta kjörtímabil er skoðun meirihluta borgarbúa. Því verður ekki á móti mælt. Enda fengu sjálfstæðismenn lítið fylgi og framsókn þurrkaðist út. Guðlaugur XVI stóð sig ekki vel, Óskar Bergsson var útsendari verktakamafíunnar. Núna er lítið talað um spillingu í ákvörðunum borgarstjórnar enda enginn framsóknarmaður til að tala máli spillingarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki trúverðugur í gagnrýni sinni vegna þess að þið gerðuð ekkert á kosningaárinu. Stjórnmálamenn sem þora ekki að taka óvinsælar ákvarðanir eru ekki trúverðugir
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 29.1.2011 kl. 07:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.