27.9.2012 | 15:01
Siðbót Marðar Árnasonar
Mörður Árnason, Samfylkingarþingmaður, sem hyggur á endurkjör, heldur að siðbótin felist í því að afhenda kaleikinn öðrum. Þetta er siðlaus afstaða. Ég hélt að siðbótin væri fólgin í því að hella úr helvítis kaleiknum. Kjararáð hefur sýnt í gegnum árin að þar fer fólk, sem svífst einskis í þjónkun við valdastéttina. Þau hafa oftar en einu sinni og oftar en tvisvar úrskurðað um launahækkanir sem eru í engu samhengi við kjör hins almenna launamanns. Þegar laun eru farin að telja í hundruðum þúsunda þá þarf að afnema allar sjálfvirkar prósentuhækkanir. Að mánaðarlaun Alþingismanna og ráðherra skuli hafa hækkað um, sem nemur heildarmánaðarlaunum manns, sem vinnur á plani undanfarin 3 ár er siðleysi en ekki siðbót herra Mörður Árnason.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:04 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.