Gerum það sem okkur sýnist

Enn á ný er siðferði sjálfstæðismanna orðið að umræðuefni í samfélaginu.  Nú er það vegna kortamisferlis á meðal starfsmanna stúdentaráðs og þar sérstaklega nefndur til sögunnar Heimir nokkur Hannesson, 24 ára stjórnmálafræðinemi og fyrrverandi frambjóðandi til forustu í SUS.  Heimi finnst að sér vegið í umfjöllun um þetta mál í fjölmiðlum eins og lesa má hér og hefur í framhaldinu stefnt ritstjórn Smugunnar og fleiri aðilum eins og lesa má um hér

Nú ætla ég ekki að kveða upp úr um sekt eða sýknu í þessu sérstaka máli en vekja athygli á þeim afsökunum sem alltaf eru gefnar, þegar upp um þessa gullskeiðadrengi kemst.  En það eru orð eins og mistök og alltaf á ábyrgð einhvers annars. Heimir Hannesson skellir allri skuld á framkvæmdastjóra Stúdentaráðs og segir hann hafa gerst sekan um þau mistök að borga reikning sem hafi verið stílaður persónulega á Heimi Hannesson, en sendur fyrir mistök til stúdentaráðs af N1.  En hann sleppir því að geta um þann ávinning sem hann hafði persónulega af þessum mistökum uns upp um þau komst.  Enda eru efnahags og skattalagabrot ekki saknæm hjá þessu forréttindafólki nema upp um það komist.  þá eru afleiðingarnar í hæsta lagi óheppilegar og undantekningarlaust einhverjum öðrum að kenna. Og alltaf skal þetta tengjast Sjálfstæðisflokknum. Við þekkjum raðafbrot útrásardólganna sem tengjast Sjálfstæðisflokknum.  Mútumál Guðlaugs Þórs, fjármálabrask tengt Jónmundi Guðmarssyni, vafningsmál Bjarna Ben og fjárdráttinn hjá norrænum íhaldsmönnum sem tengdist skrifstofu Sjálfstæðisflokksins beint og þeirra fjárreiðum.  Að ógleymdum smámálum eins og stjórnarháttum siðfræðingsins í VR og aðkomu hans að ráðningu ástkonu sinnar í feitt embætti þar.  Listinn er ótæmandi. Siðferðið er brogað.

Allt er þetta með miklum eindæmum en þjóðin er orðin ónæm.  Spillingin svo opin og gagnsæ, að menn segja bara, "þetta er nú bara sjálfstæðismaður"  eins og það sé ígildi syndaaflausnar.  En þetta er ekki í lagi.  Við þurfum að taka til í þessu þjóðfélagi.  Litlu dekruðu strákarnir í Sjálfstæðisflokknum eiga að lúta sömu siðferðisgildum og við hin.  Það á enginn að komast upp með að brjóta lög og sleppa með því að einhver annar hafi gert mistök og óheppilegt að upp um þá hafi komist.


mbl.is Sjálfstæðismenn sektaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er alltaf sama sagan með ykkur Jóhannesana!

Jóhannesunum líkar ei neitt,

láta þeir ganga róginn.

Finni þeir laufblað fölnað eitt

þá fordæma þeir skóginn.

Já, Jóhannesar hafa bara ekkert siðferði, sjá bara hér: http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/rannsokn-a-storu-fjarsvikamali-islendingur-handtekinn-i-bretlandi-vegna-milljon-punda og hér: http://www.vb.is/frettir/68783/

Reyndar hvorugur Jóhannesinn verið dæmdur, en það skiptir bara ekki máli - því ég er bara á móti Jóhannesum!

..en svona að öllu gamni slepptu, er þetta nú málflutningur sem hæfir fullorðnum einstaklingi?

Það þarf ekki mikla leit til að finna fréttir um sektir á fólk sem sótt hefur landsleiki í fótbolta, handbolta, tónleika og hvað sem er í laugardalnum. Ég las fréttina um Heimir Hannesson, ég sé ekki betur en að hans mál sé á miklum misskilningi byggt og notað af pólitískum andstæðingum hans til að klína á hann einhverjum skít (eins og þú heldur hér áfram að gera). Þú kallar hann "forrétindafólk", ég fæ ekki betur skilið en að þetta hafi verið hluti af laununum hans og því hefur hann borgað af þessu skatta og gjöld. Mistökin fólust svo í að það gleymdist að draga af honum það sem var umfram þann samning. Því voru það ekki hans mistök.

Þú hefðir mátt hugsa til tveggja núverandi ráðherra þegar þú ritaðir síðustu klausuna, þeirra Jóhönnu Sigurðardóttur og Svandísar Svavarsdóttur, en báðar hafa verið dæmdar í núverandi stjórnartíð fyrir að fara ekki að lögum. Þær sitja enn! Er þetta ekki spurning með að þú sjáir flísina í auga andstæðinga þinna meðan þú sérð ekki bjálkann í augum samherja þinna.

Njáll (IP-tala skráð) 22.2.2013 kl. 18:04

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Njáll gæti nokkuð verið að þú sért flokksbundinn sjálfstæðismaður? Fjárdráttur er fjárdráttur þótt endurgreiðsla sé innt af hendi eftirá. Ef þú stelur í búð og ert nappaður í dyrunum þá dugar þér ekki að bjóðast til að greiða fyrir þýfið og málið sé þar með dautt. Sama á við um kortamisferlið hjá KSÍ, Norrænum Íhaldsmönnum og Stúdentaráði. 

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 22.2.2013 kl. 18:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband