Bóksalar hjálpa til við jólabókavalið

Nú vitum við hvað bóksalarnir vilja selja okkur um þessi jól. Áður var bókmenntarýnir Rásar 1 búinn að vara okkur við nokkrum "lélegum" bókum.

Ég hins vegar mun kaupa bókina hennar Guðrúnar Evu Mínervudóttur, þótt hún hafi á hvorugan listann komist. Því ég gef skít í snobb og snakk.  Það hlýtur að vara hægt að standa betur að bókakynningum án þess að hefja einn rithöfund á stall með því að rýra annan.  Með því að flokka bækur í fagur bókmenntir og þá ljótar bókmenntir.

Í stað íslenzku bóksalaverðlaunanna ættu bóksalar að lækka verð á öllum bókum. Það er óþolandi að hafa keypt jólabók á 5 þúsund í desember og rekast síðan á sömu bók á 2 þúsund á bókamarkaði í febrúar. Það er móðgun við lesendur en einkum við höfundana.

Í ár ætla ég að fresta öllum jólaútgjöldum fram á næsta ár. Þá fær maður hlutina á réttu verðiundecided


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband