7.11.2015 | 22:51
Vigdís hefur sannað sig
Vigdís Hauksdóttir er stjórnmálamaður sem vaxið hefur af verkum sínum öfugt við marga prófessora og "fræðimenn". Hún kom inní stjórnmálin á umbrotatímum sem skýrir hvatvísi hennar eða öllu heldur hreinskilni og því höfum við ekki átt að venjast af atvinnupólitíkusum til þessa. Og það að hafa staðið af sér allar þessar ómaklegu árásir sem við höfum orðið vitni að sýnir bara að þarna fer heil manneskja með sannfæringu að vopni en ekki einhver fyllibytta eða geðhvarfasjúklingur í leit að athygli.
Það eru sömu karlarnir búnir að fara fyrir verkalýðshreyfingunum í þrjátíu ár. Það eru þeir sem fara með kjarasamninga og þeir ákváðu hvað fer mikið í lífeyrissjóði og stjórna lífeyrissjóðunum. Þeir sitja í stjórnum þeirra og það tekur sjö milljarða á ári að reka þá. Hér eru þrjátíu og tveir lífeyrissjóðir í stað þess að hér sé einn lífeyrissjóður almenna vinnumarkaðarins og einn fyrir hið opinbera. Af hverju er enginn að tala um þessa gömlu karla? Atvinnulífið hefur skipt út öllu sínu fólki en þarna sitja þeir enn. Þessir menn bjuggu til þetta launakerfi sem við búum við í dag. Nú er verið að semja um u.þ.b. 25% launahækkun og það er engin helvítis gleði með það.
Manneskja sem þorir að ráðast gegn kerfisköllunum á alla mína virðingu!
Ósýnilegur her neikvæðrar umræðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.