19.12.2018 | 21:52
Slæmar fréttir fyrir ríkisstjórnina
Efling, undir forystu Sólveigar Önnu Jónsdóttur er nú óðum að ná vopnum sínum eftir að hafa hafnað forystu Björns Snæbjörnssonar og allra gömlu jálkanna í SGS. Þessi ákvörðun samninganefndar Einingar mun marka upphaf nýju stéttabaráttunnar. Í þeirri stéttabaráttu eru atvinnurekendur ekki höfuðandstæðingurinn heldur ríkisvaldið, sem hefur stjórnað í þágu atvinnurekenda og fjármagnseigenda með tilstyrk fjórflokksins í hátt í 50 ár.
Nú vil ég sjá Eflingu og VR taka höndum saman og knýja stjórnvöld til aðgerða. Viðsemjandinn er ekki SA. Viðsemjandinn er Katrín Jakobsdóttir og Gylfi Zoega. Hér er tækifæri fyrir Katrínu Jakobsdóttur að sanna, að hún sé eitthvað annað en strengjabrúða í höndum fjármálaráðherra. Katrín hefur þetta í hendi sér. Það er nóg til skiptanna.Því er bara misskipt og því miður þá eru það stjórnvöld sem juku hér misskiptinguna en ekki atvinnurekendur.
Efling dregur umboðið til baka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sem atvinnurekanda hef ég ekki getað komið auga á ofbeldi mitt gagnvart starfsfólki mínu á undanförnum árum. Hef greitt samviskulega laun samkvæmt töxtum og reynt eftir fremsta megni að koma vel fram við mitt starfsfólk. Minn helsti óvinur í rekstri míns litla fyrirtækis hefur ávallt verið hið opinbera, sem sífellt seilist lengra og lengra í vasa mína. Varla að maður trúi því að Sjálfstæðisflokkurinn sé í ríkisstjórn. Lítil fyrirtæki eru greinilega ekki " hipp og cool" þessa dagana, enda vafningarnir margir, með "katískum" tilburðum.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 19.12.2018 kl. 23:23
Ég hef lengi haft á tilfinningunni að ríkið hreinlega hati okkur. Það vill ekki að við höfum það gott.
Vonum að fólk sjái þetta líka. Ráðist á réttu aðilana þegar þar að kemur. (Sem ætti reyndar að vera í gær....)
Ásgrímur Hartmannsson, 20.12.2018 kl. 05:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.