Færsluflokkur: Tækifærisvísur
20.4.2016 | 12:10
Kennitöluflakk
Um bankasölu engin sátt
samfélagið ólgar,
en ríkiseignum ræna brátt
raðgjaldþrota dólgar
20.4.2016 | 12:01
Usual suspect
Jóni Ásgeir gefum Gaum
gaman vær' ef Óli
færi hans að far' í saum
á földu skattaskjóli
Milljarða gjaldþrot og lítið greitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.4.2016 | 21:19
Rúningur á Rangá
Þá, sem eiga aur sem sand
allir elt' á röndum
Nú er okkar Ísaland
orðið land með löndum
Af fólksins frægð og feiknar auð
Friðrik blindar glýja.
Og eins og bóndans eðli bauð
bezt þau tald' að rýja.
En tæpast rekur til þess nauð
og trist af Kardashian,
að láta lít' á sig sem sauð
og sjálfsagt sé að rýj'ann.
Kvikmyndatökur við Hótel Rangá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2016 | 17:15
Ólafur bjargar Íslandi
Af grunni skeknar skorðurnar
Nú skal brúa bilið.
En hverjum ætlar hann orðurnar
ef enginn á þær skilið?
Ef rétt get skeknar skorðurnar
og skarað eignabilið,
allir fá þá orðurnar
því enginn á þær skilið.
60% ánægð með Ólaf Ragnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2016 | 16:41
Eignaskjól en ekki skattaskjól
Þeir leyndina telja lögvarða
með ljóstrun á sér brotið,
sem eignum uppá milljarða
undan hafa skotið
Skýrari viðbrögð gegn skattaskjólum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.4.2016 | 15:35
Vinstra vorið
Eins fljótt og vinstra vorið kól
nú visnar gagnalekinn,
en umræðan um eignaskjól
aftur verður tekin.
Tregða við kosningar ógnar stöðugleika | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.4.2016 | 17:40
Fellur á silfrið
Eftir frægan fréttaþátt
formennirnir þinga
Í sæti Simma samdist brátt
að setja Sigurð Inga
Nú veltur á hvað Bjarni kýs
og hvort sér bjarg' úr ösku
því eins og fyrr með Óla grís
ekkert er í tösku
Hann lofar kannski að kjós' í haust
og kröfum þannig svara.
Og iðrast smá í tal' um traust
en treystir völdin bara
Svo taka þykist þurfa til
því það var látið danka
- En við frændur gerir skatta skil
og skenkir nokkra banka.
Ennþá að hugleiða skattagrið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt 19.4.2016 kl. 15:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.3.2016 | 13:40
Velgerðarranglæti
Verið er að vinna tjón
ef velgerð ræður sköpum
Því börnin verða bara klón
búin til af öpum
Meirihluti hlynntur staðgöngumæðrun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.3.2016 | 16:15
Í myrkri geta margir draumar rætzt
Til er ég að leggja lið
ef leynt sé verði dýru
að forseta ef eignumst við
útrásar-klapp-stýru
Ef enginn segir að það sé
siðferðileg vangeta
Á Tortóla má finna fé
og fjárfesta í forseta
Ég veikur er af valdaþrá
en vandinn hann er þessi
hvað af þessu kaupa má
og Kögun tryggja í sessi
Ég víurnar í Villa ber
og vona að hann bíti á
Ekk'í bráð hann Bjarni fer
ef Brá og Elín sitja hjá
Þjóðin gleypir það með glans
og þingið ekki síður.
Ég hús mun hanna spítalans
hvað sem öðru líður.
Skál fyrir mér og pabba!
p.s
Heitt þó hati pöpulinn,
haldið því til haga
eins og aðrir djöfulinn
ég hef gamm að draga.
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 16:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2016 | 22:19
Ragnheiður Elín
Í ráðuneytinu
Til vinnu mætir verklaus frú
völt í sessi.
Hennar eina ósk er sú
að ekki hvessi
Aðferðin sem enn er beitt
einkum í orði
að ólokið sé ekki neitt
á Ellu borði
því hennar liðs ei leitað er
né lausnir falið
að ennþá sitji Elín hér
er alveg galið.
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 23:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)