Rangt hjá Vilhjálmi Bjarnasyni

Þeir sem voru stórtækastir við að ná til sín fjármunum Sparisjóðanna voru Existabræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundsssynir.  Og þeir eru sko engir fjandans slátrarar heldur stórþjófar á alþjóðavísu. Enda annar þegar hlotið fangelsisdóm og hinn sjálfsagt jafn sekur þótt ekki hafi komist undir manna hendur ...enn.

En eftir því sem tíminn líður þeim mun ljósara verður að fjármálahrunið á Íslandi var þaulskipulögð flétta þar sem öllum brögðum var beitt til að stela öllu steini léttara úr öllum baukum á íslandi.  Og enn eru menn að.  Stjórnendur endurreistra fyrirtækja stíga aftur trylltan dans í boði lífeyrisfurstanna og stjórnmálamenn hafa ekkert lært og vilja ekki einu sinni ræða hvað fór úrskeiðis.  5 tímar til að ræða sparisjóðaskýrsluna er móðgun við þá sem greiða þessar 600 milljónir sem kostaði að setja hana saman.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Jóhannes - æfinlega !

Vel mælt - af þinni hálfu og ekkert ofsögum sagt / af þessum Helvítis viðrinum.

Kanadísk og Rússnesk harðneskju yfirtaka hér - ætti að vera næsta skrefið / utanlands frá !!!

Með beztu kveðjum sem jafnan - af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 12.4.2014 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband