Strætó kom í stað Orkuveitunnar í korter

Ég fagna þeirri ákvörðun stjórnar Strætó BS, að reka framkvæmdastjórann. Sérstaklega þegar fyrstu viðbrögð formanns stjórnarinnar eru höfð í huga.  En samkvæmt þeim fannst henni ekki tiltökumál þótt framkvæmdastjórinn eyðilegði vísvitandi eigur fyrirtækisins og notað síðan það sem ástæðu til flottræfilsháttar á kostnað skattgreiðenda.

Það og ráðning fjölmiðlafulltrúans á síðasta kjörtímabili og yfirmanns á upplýsingasviði nú um daginn án auglýsingar, sýndu svo ekki varð um villst að Strætó var í augum sumra sveitastjórnamanna hin nýja Orkuveitu - mjólkurkýr. En árvekni fjölmiðla og upplýsingasamfélagsins kom í veg fyrir að þessi tegund spillingar næði að festa rætur aftur.  Samt sem áður þarf að hamra á kröfunni um opnara stjórnarfar í Reykjavík.  Samfylkingunni er ekki treystandi frekar en sjálfstæðisflokknum og Framsókn. Dagur lærði ekkert af Jóni Gnarr.  Dagur hefur ofmetnast og lítur ekki á pólitík sem þjónustu við almannahagsmuni. Hann stundar valdapólitík af sömu gerð og fyrirrennarar hans, Davíð Oddsson og Vilhjálmur Vilhjálmsson. Lítum til með Degi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband