30.1.2019 | 09:29
Pálmatré í Vogabyggð
Er 20 metra hár ljósastaur listaverk? Er 20 m. gegnsær glerhjúpur utan um 1 tré listaverk? Hverjar eru yfirhöfuð skilgreiningar manna á hugtakinu útilistaverk?
Ef ég hefði verið í dómnefndinni þá hefði ég flokkað þessa hugmynd undir framúrstefnuarkitektúr en samt ekki því arkitektar setja ekki fram svona hugmyndir nema þær standist verkfræðilegar kröfur um burðarþol og svoleiðis. Ég sakna þess að engar byggingarteikningar af þessum turnum hafi verið látnar fylgja eða séu aðgengilegar.
Útilistaverk á ekki að vera kennileyti í umhverfinu. Ef það er hugsunin þá er ekki verið að hugsa um að fegra mannlíf heldur að monta sig af framúrstefnuarkitektúr.
En þetta er ennþá bara hugmynd á blaði og enn nægur tími til að hætta við þessi áform. Fyrir 250 milljónir mætti til dæmis byggja yfir hálfan Laugaveginn og skapa þar suðræna stemningu með útikaffihúsum og íslenskum aldintrjám.
Dönsk strá og pálmatré | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2019 | 18:07
Eftiráskýringar fiðrildalirfunnar
Gott hjá strákunum í Kastljósi, að svara frekjukasti forstjóra Vinnslustöðvarinnar og fyrrum samstarfsmanns hans, lögmannsins, Elínar Bjargar Jónsdóttur. Þessi ásökun Elínar, að Kastljós hafi á einhvern sviksamlegan hátt, snúið út úr orðum hennar og það hafi valdið henni tjóni atvinnulega, er nefnilega grafalvarleg. Og það er örugglega rétt hjá henni að fáir hafi viljað ráða hana í vinnu. En ályktanir hennar eru kolrangar. Hún var sett á svarta lista stórútgerðarinnar fyrir að hafa hjálpað til að byggja upp málflutning þeirra, sem gagnrýnt hafa svindlið í sjávarútveginum. Svindlið í brottkastinu. Svindlið í framhjálöndununum. Svindlið í vigtuninni. Svindlið í verðlagningunni. Svindlið í sölumálunum og svindlið á sjómönnunum.
Elín var sett á svartan lista vegna þess að hún sagði satt. Og hún áttaði sig ekki á kerfinu. Hún hélt að Kastljósið væri valdameira en það er. Afleiðingar aðgangshörku Kastljóss manna á þessum tíma hafa nefnilega bitnað af fullum þunga á þeim sjálfum. Ekki öðrum og alls ekki orðið til þess að einhverju hafi verið breytt. Enginn af þeim er lengur að starfa við rannsóknarblaðamennsku eða fréttaskýringar. Hvernig ætli standi á því Elín?
Hafi verið reynt að misnota Elínu af Kastljósfólkinu 2016, hvað kallar hún þá afskipti stórútgerðarinnar núna? Hvaða leikrit er Binni í Vinnslustöðinni að setja upp með hennar aðkomu? Er hann að undirbúa að fara í mál við ríkið vegna makríldóms Hæstaréttar? Eða er þetta liður í að gera Fiskistofu áhrifalausa? Hvað svo sem er í gangi þá ætti Elín Björg ekki að treysta loforðum þessara manna. Því ekki verða allar lirfur að fiðrildum.
Hugarburður eða furðulegur misskilningur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2019 | 17:02
Garðfuglahelgin
Garðfuglahelgi fuglaverndar.is er rétt lokið. Þá voru menn beðnir að vakta garðana sína í klukkustund og skrá fastagesti eftir fjölda og tegundum. En þar sem ég er álíka óglöggur á fugla eins og menn þá tók ég nú ekkert þátt í þessum samkvæmisleik. Hins vegar hef ég fóðrað smáfugla í snjóatíð, reglulega í bráðum 20 ár. Og á þessum árum kemst maður ekki hjá að veita atferli þessara fugla eftirtekt og lært að þekkja helstu tegundir. Sagðar eru sögur af fuglum sem halda tryggð við sína garða. Þetta held ég að sé tóm vitleysa. Fuglar leita bara þangað sem ætið er hverju sinni og engar sjáanlegar hættur á ferð. Og þeir eru upp til hópa bölvaðir oflátungar og gikkir. Til dæmis þá eru svartþrestirnir mínir frekastir. Síðan koma skógarþrestir, starar og snjótittlingar. Ef ég vil tryggja að snjótittlingarnir fái frið til að borða maiskurlið sitt þá verð ég að gefa þröstunum snemma. Þegar þeir eru flognir burt koma oftast snótittlingarnir og gæða sér á leyfunum. Þótt þetta geti verið dýrt áhugamál þá er það þess virði. Munum öll eftir smáfuglunum alltaf!
29.1.2019 | 13:50
Enn af Vestfjarðavegi um Reykhólahrepp
Konur í stjórnmálum láta mun oftar undan þrýstingi en karlar í sömu aðstæðum. Það er staðreynd. Sveitastjórn Reykhólahrepps samþykkti tillögu yfirvalda um að veita framkvæmdaleyfi í samræmi við vilja Vegagerðarinnar. Þetta var samþykkt með 3 atkvæðum kvenna gegn 2 atkvæðum karlanna í sveitastjórn. Allir sjá að þarna var beitt ofbeldi og því sérstaklega beint að konunum sem auðvitað brotnuðu undan þessum þrýstingi. En málinu er ekki lokið. Landvernd hefur ályktað gegn Þ-H leiðinni með rökum sem verður að skoða. Þar er ég að tala um fyrirætlanir Vegagerðarinnar um að þvera 3 innfirði til að koma þessari Þ-H leið á koppinn. Landvernd hefur efasemdir um að þær fyrirætlanir gangi upp. Um það snýst gagnrýnin. Þarf ekki að framkvæma sérstök umhverfismöt á öllum þessum þverunum og veit Vegagerðin af því en heldur leyndu? Þegar svo þessar tafir á framkvæmdinni "koma í ljós" er þá tilgangurinn að nota peninginn í lagfæringar á Dynjandisheiði í tengslum við Dýrafjarðargöngin? Þessi athugasemd vekur upp slíkar spurningar.
Kristján Már Unnarsson var orðinn óöruggur með sjálfan sig og allan sinn "fréttaflutning" áður en til tíðinda dró. Hann var farinn að leggja línurnar fyrir Vegagerðina í fréttaskoti sínu. Hvernig ætti að skipta framkvæmdinni þannig að hægt yrði að keyra yfir Gufufjörð og Djúpafjörð og til bráðabyrða yfir Hjallaháls og inn í fjarðarbotn og yfir hættulegu bognu brúna þar um ófyrirséða framtíð. Þetta er uppskrift fyrir Ísfirðinga til að klófesta helminginn af peningunum úr Gufudalssveitinni, í Dynjandisheiðina.
Gauti Eiríksson fer ekki rétt með í samanburði veglína yfir Þorskafjörð ytri. A1 leiðin með sína vankanta er gerð að góðri leið í R leiðinni. Það er ekki Gauta Eiríkssonar að meta þetta. Í R leiðinni er fólgin lausn á galla er varðar umhverfislega þætti hvað varðar fallastrauminn og bátaleiðina undir 15 m. hárri brúnni.
A3 leið Vegagerðarinnar er brandari dauðans. Sú leið var ekki með lausn á útfallstæmingunni eða innstraumsflæðinu öllu. Sú leið var ekki í afgreiðsluferli hreppsnefndarinnar. Hún var dæmd frá öllu matsferli í umfjöllun. Hún var ekki með færa leið fyrir Gretti, skip Þörungaverksmiðjunnar, með of lága brú 8 m. undir gólf.
R leiðin er forhönnuð yfir álinn þar sem hann hefur breikkað og dýpkað aðeins utan við A1 leiðina. Óöryggi manna er að vaxa vegna óútskýrðra mála Vegagerðarinnar á Þ-H leiðinni. Þetta vita "Landverndar"menn og láta finna fyrir sér. Þetta veit Gauti Eiríksson og lætur finna fyrir sér, í hina áttina.
Skipulagsstofnun þarf að grípa inn í núna og skikka Vegagerðina til að mæla botnstyrkinn í R leiðinni, þar sem állinn hefur dýpkað. Það verður að hafa R leiðina klára um leið og Þ-H vitleysan afhjúpast. Þetta mun fara að verða ljóst með vorinu og Suðurfjarðamenn eiga ekki annað í stöðunni en að biðja Reykhólamenn afsökunar fyrir dónaskapinn og óbilgirnina.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2019 | 17:20
Sjá haltir ganga!
Stafnum hélt ég gæti hent
og hraðar stikað fetið
alveg gleymdi að allt er sent
útá Internetið.
Málflutningur makalaus
mitt því kúlið missti
Líf í rugli rak upp haus
og ranghvolfd augun hristi
Hörð varð orrahríðin þá
hóf mér ekki kunni,
en lenti mínum maga á
Miðflokks-maddömunni.
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2019 | 03:36
Fórnarlambsvæðingin
Það er ekki að spyrja að Íslendingum. Eitt vanhugsað orð og vælubíllinn spólar af stað. En yfir hverju er verið að væla? Skammast fólk sín virkilega fyrir að eiga börn með Downs heilkenni? Við vitum að þeir sem láta eyða fóstrum með þennan genagalla skammast sín en hinir eiga að vera stoltir. Einstaklingur með Downs er með sín persónueinkenni eins og allir aðrir og það er persónuleikinn sem ræður en ekki einhver greindarvísitala.
Ég ólst upp með móðurbróður sem var ekki bara korter í Downs, hann var rúmlega Downs. Og þegar ég lít til baka þá er ég þakklátur þeirri reynslu. Björn Líndal frændi minn, Bassi, var sérstakur maður , mjög trúaður og gat tekið reiðiköst ef honum líkaði ekki eitthvað í útvarpinu sínu sem hann hafði á sér alla daga. Öðrum stundum var hann blíður sem lamb. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar Bassi messaði yfir kúnum úti í fjósi , klæddur skrautlegu rúmteppi sem prestskikkju , haldandi á útvarpinu sínu undir hökunni og tónandi í takt við prestinn í útvarpinu. Ég minnist þess líka, að séra Bjarni Jónsson víxlubiskup, var í sérstöku uppáhaldi hjá honum en sveitapresturinn sem þá var séra Jón Bjarman, átti ekki uppá pallborðið. Gekk það svo langt, að Bassi tók til sinna eigin ráða einn sunnudag, þegar messað var í Svalbarðskirkju. Án þess að við vissum, læddist hann niður í kirkju með hvellhettubyssuna sína og "skaut" prestinn í miðri guðsþjónustu. Auðvitað varð engum meint af en Bassi var bannfærður í kjölfarið og passað að hann gerði þetta ekki aftur. Seinna átti hann eftir að heimsækja mig vestur til Ísafjarðar þar sem ég fór með honum í kirkju hjá presti sem hann kunni vel að meta.
Svo mín ráðlegging til forráðamanna þroskaheftra er að láta umræðuna ekki setja sig úr jafnvægi. Þið eruð ekki fórnarlömb. Þið eruð sigurvegarar lítilmennskunnar. Þið þorðuð á meðan aðrir völdu auðveldari leiðir. Ef einhverjir eru með fordóma gagnvart fólki með downs , þá stafar það af þekkingarleysi og hver er þá meiri heimskinginn? Ég myndi til dæmis aldrei kalla Sigurjón Kjartansson þroskaheftan af virðingu fyrir þroskaheftum.
Biðst afsökunar á orðfæri í Ófærð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.1.2019 | 02:39
Arnarlax vill Þ-H leið og sendir fótgöngulið
Arnarlax er orðinn risi í atvinnulífi Vestfjarða. Undir hótunum um uppsagnir og samdrátt í rekstri hafa þeir náð ótrúlegum völdum. Og allt gerðist þetta fyrir opnum tjöldum þegar Einari Guðfinnssyni var mútað til að gerast opinber lobbyisti fiskeldis á Vestfjörðum. Því ráðning hans var þaulskipulögð að hætti útrásardólga. Enda einn aðaleigandi Arnarlax, Einar nokkur Ólafsson, fyrrum starfsmaður Glitnisbanka og gripdeildarmaður sama þrotabús. Einar þekkti formúluna hans Jóns Ásgeirs, sem fólst í því að kaupa sér áhrif í gegnum pólitík og með Bjarna Benediktsson að vini var auðvelt að fá Einar Guðfinnsson til fylgis og enn auðveldara að ná til ráðherra sjávarútvegsmála, sem fer með málefni fiskeldis. Og eftir velheppnaðan snúning á þinginu síðasta haust, þar sem ráðherranum var beitt til að afturkalla rekstrarstöðvun, þá vita forsvarsmenn Arnarlax að þeir geta gert næstum hvað sem er og komist upp með það.
Með atvinnukúgun að vopni láta þeir sveitastjórnir og héraðsfréttamiðla þrýsta á almenning og sveigja almenningsálit sér í hag og nú er komið að samgöngum. Arnarlax hefur mestra hagsmuna að gæta þegar kemur að lagningu Vestfjarðarvegar og svokallaðrar Þ-H leiðar. Þeir eru með vaxandi flota þyngstu trukka, sem keyra þessa leið sex sinnum á dag og þeim ferðum mun fjölga. Það er Arnarlax sem heldur uppi taugastríðinu gegn sveitastjórn Reykhóla. Þ-H leiðin er 15 km styttri en R leiðin og það þýðir að lágmarki 6 þúsund kílómetra minni akstur á ári fyrir þetta fyrirtæki. Þeim er andskotans sama um hagsmuni skólabarna á Reykhólum og nærsveitum. Þeim er líka skítsama um öryggi þeirra sem þurfa að aka verri vegi svo fremi að þeir geti sparað nokkrar milljónir.
Um þetta snýst málið. Moldviðrið sem Vegagerðin og aðrir hagsmunaaðilar á svæðinu hafa þyrlað upp er til að fela þennan raunverulega tilgang. Vonandi stendur sveitastjórn í ístaðinu þegar kemur að ákvörðun um hvorn kostinn eigi að taka. Þ-H leið Arnarlax eða R-Leið öryggis íbúa og náttúrufriðunar á svæðinu.
Mótmæla R-leiðinni um Reykhólahrepp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.1.2019 | 19:47
Lífið er áreiti
Öllum að óvörum hefur eldur kviknað í glæðum bálköstsins, sem kveiktur var undir Jóni Baldvini Hannibalssyni, fyrir nokkrum árum. Bálkesti haturs, beiskju og illgirni fáeinna kvenna, sem vildu gera lítið úr hinum gamla ref að vestan vegna meints áreitis í garð nokkurra þeirra.
Og hverjar voru svo sakargiftirnar fyrir utan ósætti Aldísar við foreldra sína, sem á ekki þarna heima. Jú sakargiftirnar voru helstar að karlinn kunni ekki með vín að fara. Undir áhrifum var hann bæði klæminn og fjölþreifinn og særði iðulega blygðunarsemi þolendanna og þá helst áratugum eftir meint áreiti. Og þetta eru maddömur sem enn sækja í hans félagsskap og Bryndísar. Hvernig stendur á því að slíkur dónakall er svona vinsæll?
Ég skil ekki þetta upphlaup núna. Jón er hvorki nauðgari né þjáist hann af barnagirnd svo vitað sé. Strokur, káf og blautir kossar eru ekki glæpir. Þeir sem halda öðru fram þarfnast öðruvísi athygli en felst í nornaveiðum Hildar Lilliendahl og stallsystra hennar.
Og hvað hefur Jón Baldvin gert afkomendum Jökuls heitins Jakobssonar? Hvers vegna eru bæði Stundin og DV virkjuð í þetta ærumorð sem herferðin er? Það er fullt af fólki sem tengir svona ásakanir við alvarlega kynferðisglæpi og spáir ekkert í sakargiftir. Gagnvart þessu fólki er Jón sekur og sá ærumissir verður ekki bættur.
Nú þarf að spyrna við fótum og taka á ofsóknum öfgafemínista. Enginn kemst í gegnum lífið án áreitis í ýmsu formi. Hvernig við tökumst á við það, er það sem skilgreinir okkur. Það eru til raunveruleg fórnarlömb kynferðisáreitni,valdagræðgi og mannfyrirlitningar. Þeim ber að hjálpa. Kellingar sem þola ekki nekt eða strokur um afturenda eru að afneyta kynvitund sinni. Þær geta átt sig sjálfar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2019 | 18:37
Neytendasamtökin að standa sig
Miðað við hve neytendalöggjöf á Íslandi er frumstæð þá er ánægjuleg tilbreyting að sjá loksins almennileg viðbrögð frá Neytendasamtökunum. Við eigum þessu ekki að venjast af hagsmunasamtökum hverjar svo sem ástæður þess eru. Ég hélt því strax fram að áformuð framkvæmd greiðslufyrirkomulags vegna innheimtu gangagjalds Þistilfjarðaganganna stæðist ekki lög. Þessu er Breki Karlsson sammála. Það væri gaman að vita hverjir ráðgjafar Stjórnar Þistilfjarðarganganna eru. Eitt er víst að þessi Hilmar veit ekkert í sinn haus og er að gera eintómar vitleysur. Hann verður að axla ábyrgð og stíga til hliðar. Það er búið að hleypa umferð á þennan veg og tíminn til að undirbúa greiðslufyrirkomulag gjaldsins löngu liðið.
Mistökin sem voru gerð eru fyrst og fremst að hafa þetta algerlega rafrænt. Í öðru lagi er gjaldið alltof hátt. Í þriðja lagi er afslátturinn alltof mikill og í fjórða lagi þá er "álagið" alltof hátt. Svona þjónustugjöld þekkjast hvergi nema hjá mafíunni!
Í dag hálfum mánuði eftir opnun ganganna stendur stjórn þeirra frammi fyrir þvílíku klúðri að það ógnar gjaldfærni félagsins. Skuldirnar þarf að afskrifa um 60% og leiðrétta þarf gjaldskrána og koma á eðlilegu greiðslufyrirkomulagi. Ég legg til að gjaldið verði svipað og var í Hvalfjarðargöngin og að gjaldhliði verði komið upp vestan megin ganganna. Aðeins verði rukkað fyrir umferð sem fer austur en ekki þá sem kemur að austan.
Gjaldhliðið verður að útbúa þannig að bæði sé hægt að greiða með peningum eða korti og þá geti menn líka nýtt sér snertilausar greiðslur. Höfum í huga að rafmagn getur alltaf farið af og þá er vont að vera ráðalaus
Segir tíma til greiðslu of nauman | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.1.2019 | 16:50
Tölum um braggann
Veitingamaðurinn, Daði Agnarsson fjargviðrast útí umræðu um braggaspillinguna og vill tala um eitthvað annað. Ég er alveg til í það. Hvernig væri að Daði upplýsi okkur um hvernig hann fékk þennan samning um að reka klassa veitingastað með vínveitingaleyfi og alles á besta stað í Reykjavík með þúsundir fastra viðskiptavina og hvað er hann að borga HR í leigu?
Við vitum hvað HR er að borga fyrir braggaklasann og sú upphæð stendur ekki undir kostnaði við framkvæmdina. Nú eigum við heimtingu á að vita hvernig pylsusali fékk þennan einkarétt og hverjir sáu um að útvega vínveitingaleyfið og hvað er hann að greiða HR í leigu?
Veitingamaður Braggans ósáttur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |