28.11.2014 | 17:30
Útvarp Saga skaðast vegna lekamála Hönnu Birnu
Lekamálið á sér margar hliðar. Ein varðar trúverðugleika þeirra sem tóku afstöðu með Hönnu Birnu og hennar málflutningi og héldu þeirri afstöðu til streitu allt til afsagnar ráðherrans. Pétur Gunnlaugsson fundarstjóri á Útvarpi Sögu er í þessum hópi. Og það er ráðgáta í sjálfu sér. Hvernig getur annars jafnan skynsamur og beinskeyttur álitsgjafi gerst sekur um jafn alvarlegan dómgreindarbrest og lýsti sér í málflutningi hans þessa 370 daga sem lekamálið var til umræðu? Útvarp Saga er ekki lengur óháður miðill sem fyrst og fremst beitir sér fyrir upplýstri umræðu. það fer ekkert á milli mála hvar stuðningur þeirra skötuhjúa liggur þegar kemur að stuðningi við ríkisstjórnina enda Arnþrúður fyrrum varaþingmaður Framsóknarflokksins og það er hún sem öllu ræður á útvarpi Sögu. Hún styður ríkisstjórnina og hún vildi gera lítið úr stjórnsýsluafglöpum allra sem komu að lekamálinu á einn eða annan hátt. Með þetta í huga mun ég eftirleiðis taka boðskap Útvarps Sögu með fyrirvara um áreiðanleikakönnun
Ef Útvarp Saga vill láta taka mark á sér má pólitíkin ekki stjórna afstöðunni. það er ekki nóg að gera fyrirvara vegna skoðana innhringjenda. Skoðanir fundarstjórnenda eru skoðanir stöðvarinnar.
28.11.2014 | 16:16
Munu bændur skila ávinningi hlýindanna?
Formaður Landsambands sauðfjárbænda áætlaði sparnað vegna minni fóðurkostnaðar sauðfjár á sínu búi, eina milljón króna. Viðtalið var tekið við hann úti á túni. Nú spyr ég: Mega neytendur vænta lækkunar á verði lambakjöts næsta ár vegna þessa eða rennur ábatinn óskiptur í vasa bændanna? Minni á að þegar illa árar þá er alltaf sótt fé í ríkissjóð til aðstoðar.
Miðað við kerfið sem við höfum komið okkur upp eru þetta ekki óeðlilegar vangaveltur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2014 | 15:58
Bjarni Ben vill ekki skoða skattaundanskotin
Á meðan ekki fæst niðurstaða hjá fjármálaráðuneytinu um fjármagn til kaupa á upplýsingum um skattaundanskot gefst viðkomandi aðilum tækifæri til að flytja fjármuni sína annað og fela slóðina. Ef þessir fjármunir koma aldrei til Íslands þurfa eigendurnir ekkert að óttast. Þess vegna hljóma úrtölur og vangaveltur Bjarna Ben eins og tilraun til að koma í veg fyrir að upplýsingar um skattaundanskotin verði notaðar af skattrannsóknarstjóra.Sannanlegt ólögmæti skattaundanskots á sem sagt að víkja fyrir lagatækni um hugsanlegan vafa á lögmæti upplýsinganna. Og að segja að skattrannsóknarstjóri ráði þessu en á sama tíma draga úr fjárframlögum til embættisins er mótsögn sem verður að krefjast skýringa á.
Það safnast óðum í nýjan valköst fyrir Bjarna Ben og nú vegna hans eigin verka sem fjármálaráðherra. Einkavinavæðing á hlut Landsbankans á Borgun þarfnast rannsóknar og sama má segja um dráttinn á hagnýtingu upplýsinga um skattaundanskotin þegar öllum peningum var stolið í banka og sparisjóðaráninu undir vernd Sjálfstæðisflokksins 2003-2009. Þar lék stórt hlutverk eitt lögmannafyrirtæki með sterk tengsl við forystu Sjálfstæðisflokksins. Þeir báru öðrum fremur ábyrgð á stofnun aflandsfélaganna og millifærslu peninganna til Lúxemborgar og áfram þaðan. Löglegt en siðlaust. Að borga ekki lögbundna skatta bæði ólöglegt og siðlaust. Hvers vegna þessi dráttur Bjarni. Hvers vegna að þvælast fyrir yfirvöldum? Hverja ertu að vernda? Og hver er þinn ávinningur?
28.11.2014 | 14:44
Gjörsamlega út úr korti
Stjórnskipunin er í uppnámi á meðan fávitar þrasa á þingi um aukaatriði.
Mikilvægasta mál þingsins er að setja í gang aftur endurskoðun á stjórnarskránni og klára það mál. Fyrr verður ekki hægt að taka á fasistatilburðum ofstopamanna sem öllu þykjast ráða í skjóli ónýtrar stjórnarskrár
![]() |
Bara steinhaldið kjafti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.11.2014 | 00:21
N4, eins og sjónvarp á að vera
Fjölmiðlun þarf að vera frjáls til að vera trúverðug. Í því sambandi skiptir eignarhald höfuðmáli og þar á eftir fagmennska dagskrárfólks og tæknimanna. Allt þetta prýðir N4 á Akureyri. Og til viðbótar eru þeir lang-skemmtilegasta sjónvarpsstöðin og sjónvarpa allan sólarhringinn. Einnig má treysta að auglýst dagskrá stendur.
Þetta gat litla stöðin á Akureyri þrátt fyrir undirboð ríkisfjölmiðilsins á skjáauglýsingamarkaði. Það er ekki Páli Magnússyni að þakka að N4 náði fótfestu. N4 náði vinsældum og þar með auglýsendum þrátt fyrir siðlaus undirboð RÚV á auglýsingamarkaði undir stjórn Páls Magnússonar. Nú er að heyra á nýjum útvarpsstjóra að hann ætli í samkeppni við N4 fyrir norðan með því að efla svæðisútvarpið þar. Þetta er náttúrulega lítilmannlegt af risanum. Ríkismiðillinn á ekki að haga sér svona á fákeppnismarkaði. Hann á frekar að styðja við og styrkja einkaframtakið á bakvið landsbyggðarsjónvarpsstöð eins og N4. Stöð sem þjónaði landsbyggðinni allri á meðan RÚV pakkaði saman og fór þess í stað að þjóna litlum hópi íþróttaáhugamanna og sérstaklega boltabulla. Stuðningur Rúv gæti til dæmis komið með því að kaupa fréttainnslög af N4 í stað þess að vera með frétta og tökulið á launum þar. Því RÚV á ekki að stunda samkeppni. Rúv á að vera leiðandi en ekki sú þunglamalega og gelda stofnun sem hún er í dag. Hvernig stendur á að N4, ÍNN og Stöð 2, geta öll boðið upp á betri innlenda dagskrá en RÚV? Þetta sem RÚV kallar innlenda dagskrá er eitthvað helvítis pop-músik-lágmenningar drasl, sem fáir njóta. Þar er engin vöruþróun í gangi. Enda varla við því að búast þegar stjórnendur þurfa ekkert að hafa fyrir lífinu. Eru bara áskrifendur af nefskatti og það sem upp á vantar kemur bara um hver áramót sem fjáraukalagasending. Þetta lið þarf ekkert að spá í áhorf. þeir eiga fyrirtækið sem mælir áhorfið og ráða sjálfir hvaða skerf þeir fá af auglýsingapottinum. Þáttagerðin er aukaatriði. Bara eitthvað sem fyllir útsendingatímann. Því starfsmenn RÚV hafa engan metnað. Senda aula á flandur til útlanda. Láta yfirlætisfullan ungling sjá um íslenzkuna, hóp af furðufuglum sjá um kúltúrinn og skrækasta fyrrum ungstirnið sjá um sub-kúltúrinn. Þannig finnst RÚV þeir standa við þjónustusamninginn við menntamálaráðherra sem er drullusama, því hann horfir bara á Netflix og les fréttir á MBL.is.
Þess vegna er svo mikilvægt að gangi vel hjá N4 og öðrum vaxtarbroddum frjálsrar fjölmiðlunar.
27.11.2014 | 19:24
Fá börn í borginni ekkert að borða heima?
Ég skil ekki þessa umræðu um máltíðir á leikskólum. Manneldismarkmið eru ágæt, en að fara eftir þeim í einu og öllu gerir enginn. Og eru foreldrar sem núna gagnrýna borgina sem hæst , með hreina samvizku varðandi eigin eldamennsku? Ég fullyrði að svo sé ekki og menn ættu að stilla hávaðanum í hóf.
Börnin og næring þeirra eru á ábyrgð foreldra en hvorki Dags B. Eggertssonar eða Skúla Helgasonar. Ef allt væri í lagi heima væru börn og unglingar ekki svona feit. Þið gleymið því. Óhollar matarvenjur og skyndibitamenning hinna önnum köfnu lífsgæðakeppenda bitnar á börnunum og þá er svo nærtækt að ráðast á skólana og velferðarsviðið og kennarana og Dag og bara einhvern annan en sökudólginn sjálfan.
Kvenmaður líttu þér nær
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2014 | 19:05
Báðir þingmenn LÍÚ í viðtali á stöð 2
Jón Gunnarsson 1. þingmaður LÍÚ og Páll Pálsson 2. þingmaður eru sammála um að virkja allar sprænur á landinu og síðan skal einkavæða Landsvirkjun fyrst líkur eru á umtalsverðum arðgreiðslum út úr þvi fyrirtæki á næstu árum samkvæmt upplýsingum forstjórans um daginn. Landsvirkjun kaupa síðan kvótagreifarnir fyrir arðinn af fiskveiðiauðlindinni. Ísland skal verða spilltasta land í heimi. Jón og Páll styðja það.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2014 | 18:35
Af hverju Spegillinn?
Af hverju heitir Spegillinn á Rás 1 ekki bara kvöldfréttatími Rásar 1 eins og áður?
Er eitthvað hæft í ásökun Páls Viljálmssonar, um að RÚV flytji ekki bara fréttir heldur líka skoðanir fréttamanna. Ég held það sé bara nokkuð til í því hjá Páli.
Spegillinn speglar skoðanir umsjónarmanna fyrst og fremst. Ólík efnistök ólíkra umsjónarmanna sannar þetta svo ekki verður um villzt.
27.11.2014 | 17:15
Lífeyrissjóðirnir láni fyrir byggingakostnaði nýs Landspítala.
Stjórnmálamenn eiga ekki að koma meir að byggingarmálum LSH. Nú þegar er búið að setja í þá hít milljarða og ekkert í raun verið gert. Þess vegna er það rétt hjá Þorkeli Sigurlaugssyni að einkaframkvæmd tryggir betri skilvirkni. En væri þá ekki best að stofna rekstrarfélag um framkvæmdina svipað og Fasteign, nema að fjármögnun yrði tryggð í gegnum Lífeyrissjóði en bankar og hrægammasjóðum ekki heimiluð aðkoma. Ávöxtunarkrafa slíks fjármagns ætti að miða við stýrivexti Seðlabanka og ekki punkti hærra. það myndi halda í við þensluáhrif slíkrar framkvæmdar.
Þessum deilum um staðsetninguna verður að linna. Fyrr gerist ekkert. Og ef menn sleppa bílakjallara áformum á landspítalareitnum þá er örugglega hægt að komast af með minni kostnað og minni óþægindi vegna sprenginga á byggingartíma. Starfsfólk verður að aðlaga sig að þeim veruleika strax frá upphafi að það gangi ekki upp að hver starfsmaður mæti í sínum bíl í vinnuna og þá verða bílastæðavandamál úr sögunni.
En í stað þess að rekstri í Fossvogi verði hætt þá má vel skoða að Reykjavíkurborg í samstarfi við önnur sveitarfélög á svæðinu taki aftur við rekstrinum og þar verði veitt þjónusta á sviði öldrunar og alls kyns lífstíls sjúkdóma sem mun fara vaxandi en þarf kannski ekki hátækni læknisþjónustu.
Sjúklingaverksmiðjuáformin með LSH eru dálítið kuldaleg finnst mér. Þar er byggt á flæðilínum frystihúsa. Innlögn - aðgerð - útskrift og hvíld á sjúkrahóteli. Er það svona sem við eigum að byggja þjóðfélagið upp? Á bestunar formúlum sem taka ekki tillit til mannlegra þátta?
Ég er ekki sannfærður um að hagkvæmasta leiðin sé alltaf sú besta.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2014 | 16:16
Falskt öryggi
Einkabankavæðingin á íslandi er siðlaus. Þar var á mjög skömmum tíma breytt eðli bankaþjónustunnar til hins verra. Núna er öllum reikningsviðskiptum beint í þessa heimabanka og reikningar jafnvel ekki lengur sendur í pósti. Þannig hafa margir verið neyddir til að nota heimabanka þótt þeir hefðu kosið annað.
Ég er ein af þessum risaeðlum, sem neita að nota heimabanka. það hefur valdið mér óþægindum þegar reikningar eru annars vegar en til hvers að eiga viðskipti við bankastofnun þegar maður þarf sjálfur að vera sinn eiginn gjaldkeri og þar að auki að vera öryggisvörður og dyravörður!
Ég segi nei takk við heimabanka því ég hef kynnt mér tölvuöryggi og veit hversu erfitt er að tryggja algert öryggi á netinu. Þar gildir lögmálið um öfuga hlutfallið. Eftir því sem varnirnar eru öflugri þeim minni virkni á netinu og öfugt. Hámarksöryggi næst við að aftengja routerinn. Þótt ég geti minnkað áhættuna við að nota netbanka og greiðslukort í tölvunni með því að vista ekki cookie skrár og slökkva á java, þá tók ég bara þá ákvörðun að stunda ekki netviðskipti. Hvorki í banka eða með því að versla. Og þetta er alveg hægt. Alveg eins og það er hægt að hætta að reykja og hætta að drekka þótt margir trúi öðru.
En þegar sífellt fleiri tæki eru orðin nettengd þá hefur hættan aukist. Það er því mjög mikilvægt að bankar og greiðslukortafyrirtæki komi sér upp öruggu viðmóti. það er ekki til staðar í dag. Á netinu ríkir falskt öryggi. Á morgun gæti þvottavélin verið farin að njósna um þig! Því netsamband yfir rafmagn er staðreynd.
![]() |
Stela öllu með einum smelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |