Pilsfaldakapitalismi grasserar eins og veira

Nú þegar mesta móðursýkin er gengin yfir er fullt tilefni til að staldra við og endurhugsa fljótfærnisleg viðbrögð stjórnmálamanna til að bregðast við hugsanlegri kreppu. Og jafnvel að endurskilgreina hugtakið kreppa. Því það getur svo sannarlega kreppt að án þess að þörf sé að nota kreppuhugtak hagfræðinnar yfir slíkt ástand. Hvort sífelldur hagvöxtur sé endilega af hinu góða er svo önnur umræða sem verður örugglega tekin síðar.

Ég sé ekki þörfina á að dæla öllum þessum peningum út úr ríkissjóði og Seðlabanka eins og ráðgert er. Hugsum útí hvað verið er að gera. Það er ekki verið að bregðast við afleiðingum heimsfaraldurs og brottfalli ferðamanna það er verið að bregðast við offjárfestingu heillar atvinnugreinar undanfarinna ára. Offjárfestingu og skuldsetningu sem var óraunhæf að mörgu leyti og beinlínis crimanal í tilfellum manna sem kusu að skuldsetja fyrirtæki sín í stað þess að leggja þeim til fé úr eigin vösum.  Þessu liði á nú að bjarga með fjáraustri úr sjóðum almennings sem enga ábyrgð ber á ruglinu. Þetta er það sem kallað hefur verið pilsfaldakapítalismi. Og þessi pilsfaldakapítalismi er miklu skæðari en nokkur corona veira.

Og þessi veira stökkbreytist svo sannarlega líka. Þegar það gerist verða til svokallaðir fjárfestar. Og þeir þrífast í skjóli ákveðinna stjórnmálaflokka sem mætti alveg kalla hýsla.  Því hvað sagði ekki Jón Ásgeir þegar hann var spurður um forsendur velgengni sinnar á árum áður. Hann sagði einfaldlega, "Fyrst eignast maður stjórnmálaflokk og síðan banka."  En hann gleymdi bara dómurunum. Það hefði verið betra að eiga nokkra dómara upp í erminni þegar Baugsmálaferlin stóðu yfir. Það hefði sparað tíma og peninga.  En seinni tíma fjárfestar hafa lært og þessi mistök Jóns Ásgeirs verða ekki endurtekin.

Á meðan seðlabankastjóri, sem einu sinni var ráðgjafi hjá glæpamönnunum í Gamma, er á fullu að eyða gjaldeyrisvaraforðanum í gagnslausa viðspyrnu við falli krónunnar, þá ætlar ríkisstjórnin og 60 Alþingismenn að afhenda SA fleiri hundruð milljarða , að eigin sögn til að koma í veg fyrir kreppu sem kemur sennilega aldrei! Samt eru auðrónar komnir í startholurnar að auðgast á þessum tímabundnu erfiðleikum. Gengið hefur gefið eftir um 20% og hrægammar hafa tekið sér skortstöður á markaði.  

Covid faraldurinn mun örugglega ganga yfir en við skulum hafa í huga að það voru ekki allir að róa í sömu átt. Við erum ekki öll saman í þessu!


mbl.is Fyrirtækjunum blæðir út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Falsfrétt dreift á mbl.is

Bankarnir fóru á hausinn í hruninu af því þeir voru rændir innanfrá af eigendum sínum.  Þess vegna voru stjórnendur þeirra lögsóttir í kjölfarið.

Í dag er eignarhald með öðru sniði og stjórnun meira fagleg og meira eftirlit með því að reglum sé fylgt. Það er það sem Heiðrún Lind kallar áhættufælni en við hin flokkum bara sem ábyrga lánastefnu.  En svona verða falsfréttir til. Þegar fjölmiðill blandar saman pólitík og fréttamennsku.


mbl.is Bankar of áhættufælnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stokka þarf upp rekstur SÁÁ

Málefni Reykjalundar komust í sviðsljósið fyrir ekki svo löngu síðan og núna er Vogur í svipaðri stöðu. Það er augljóst að rekstrarform þessara stofnana gengur ekki upp. Það gengur ekki upp að félagasamtök reki heilbrigðisþjónustu, sem veltir milljörðum sem koma aðallega úr ríkissjóði, og skipta þúsundir manna miklu máli. Annaðhvort verður að gera Vog að sjálfseignarstofnun undir faglega stjórn eða að ríkið taki reksturinn að sér og kosti hann alfarið. Ég held að seinni kosturinn sé betri.  SÁÁ yrði þá styrktaraðili en hefði enga stjórnunarlega aðkomu að því meðferðarstarfi sem Vogur byggir á.


mbl.is Valgerður dregur uppsögn sína til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Steingrímur J óheiðarlegasti þingmaður lýðveldisins?

Það væri að bera í bakkafullan lækinn að segja eitthvað ljótt um Steingrím J, því nóg er þar samt og allt satt!  Tel samt ástæðu til að nefna eitt mikilvægt atriði sem ekki rataði í fjölmiðla þótt fullt tilefni hafi verið til.  Og þetta snertir beint málsókn útgerðanna 7 vegna makrílreglugerðar Jóns Bjarnasonar og hinna pöntuðu viðbragða Kristjáns Samherjamögurs , vegna dóma Hæstaréttar frá því í desember 2018.

Hér á eftir er útdráttur úr umræðum á þingi eftir að Þorgerður K, kvartaði undan seinagangi í svörum við fyrirspurn um efni ákæra 7 Stórútgerða á hendur ríkissjóði til innheimtu millarðatuga krafna, sem Samherjaráðherrann hafði reynt að svæfa í þinginu!

En dæmi hver fyrir sig:

Forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Mér þykir slæmt ef boðleiðir eru of langar en af því að hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir gerði að umtalsefni fyrirspurn til mín sem varðaði málaferli vegna makríls þar sem ríkislögmaður grípur til varna vil ég gera grein fyrir því máli. Hv. þingmaður rökstuddi það með því að þessi fyrirspurn ætti heima hjá forsætisráðherra og að embætti ríkislögmanns heyrði undir forsætisráðherra, en hver og einn ráðherra ber ábyrgð á þeim málum sem falla undir hann. Þetta tiltekna mál heyrir undir hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og því ætti að beina fyrirspurninni til hans. Það er alllangt síðan forsætisráðuneytið endursendi þinginu fyrirspurnina með ósk um að henni yrði beint til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Ég vona að hv. þingmaður hafi fengið þau skilaboð frá Alþingi því að það er alllangt síðan forsætisráðuneytið sendi þau frá sér.

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Það er greinilega eitthvað sem þarf að kanna, hvort mistökin liggi þá hjá okkur á skrifstofu Alþingis eða mér, að boðin hafi ekki gengið áfram frá ráðuneytinu til hv. þingmanns. Rétt er að biðjast fyrir fram velvirðingar á því en þetta verður kannað.

 

 


mbl.is Sakar Steingrím um að ljúga og misnota aðstæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú get ég!

Jafnvel hörðustu andstæðingar þessarar ríkisstjórnar verða að hrósa henni fyrir fyrstu viðbrögð vegna Covid-19. Fyrir þá djörfu ákvörðun,að leyfa aðgerðarstjórn Almannavarna að leiða þjóðina í gegnum þessa erfiðu tíma, sem vonandi verða brátt að baki. Upplýsingafundirnir sönnuðu gildi sitt með yfirlætislausri leiðsögn Þórólfs og Ölmu undir styrkri en um leið auðmjúkri stjórn Víðis Reynissonar.

En nú telja stjórnmálamennirnir að þeirra tími sé kominn. Þeir vilja ólmir baða sig í sviðsljósinu að nýju. En það voru mistök. Frá því að blaðamannafundurinn með Katrínu, Svandísi og Áslaugu Örnu var haldinn og tilkynnt um fyrirhugaða afléttingu á sóttvarnar fyrirmælum 4. mai, þá er eins og allir hafi gleymt sér og bæði börn og fullorðnir búin að gleyma 2 metra reglunni og varnaðarorðum varðandi hópamyndanir. Ég fór í kaupfélagið í dag og þar var fólk að troðast í röð við kassann og á leiðinni heim þurfti ég að tvístra hóp krakka, sem voru í sakleysi að leik í skemmtigarðinum.

Ef veiran nær sér aftur á strik í mai þá er hægt að kenna ríkisstjórninni um það! Þegar tímabært er að aflétta takmörkunum þá ætti að gera það með sem minnstum fyrirvara.

Ríkisstjórnin vill eigna sér heiðurinn af starfi þríeykisins með ótímabærri framítöku aðgerða og það er miður. Ekki nema von að forseti Alþingis ræski sig líka og telji sitt vald merkilegra en tilmæli sóttvarnalæknis.

Við þetta fólk segi ég, Haldið ykkur til hlés í þessar 3 vikur sem eftir eru. Skerpum aftur á sóttvörnum með því að sekta Alþingi fyrir brot á reglum og sýnum að við tökum drápsveirunni af alvöru en ekki léttúð.  Víðir, Alma og Þórólfur eiga það inni hjá okkur.


mbl.is Seinni aðgerðapakki kynntur um eða eftir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband