Þeir sem kusu hann, reki hann

karl biskupMeð illu skal illt út reka segir í ritningunni og fyrst biskupinn vill ekki út með góðu þá með illu.   Þannig er kristinn boðskapur Gamla Testamentisins, sem að margra mati er grunnur hinnar eiginlegu Guðsdýrkunar. Seinni tíma útvötnun Nýja Testamentisins og seinni tíma leiðréttingar á inntaki Biblíunnar á kristnum gildum rýrir truverðugleika kennimanna sem þurfa að tala máli Biblíunnar.  Biskup, sem yfirmaður kirkjunnar þarf að hafa óskorað traust sem nær út yfir raðir safnaðarins.  Slíks trausts nýtur Karl Sigurbjörnsson ekki eftir allt sem á undan er gengið.  Þess vegna verður hann að víkja. Og það fyrr en seinna
mbl.is Biskup harmi sleginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Blessaður Jóhannes

Sá tími er löngu runnin upp að aðgerðir, aðgerðaleysi, sögn, þögn, og yfirhylming manna eins og í þessu tilfelli biskupsins yfir Íslandi, kosti þá starfið sem þeir brugðust í, eða kröfluðu sig til valda í, á röngum forsendum.

Blíður málmrómur og syngjandi iðrun í  1.persónu fleirtölu breytir engu þar um.

Eigðu góðan dag.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 19.10.2011 kl. 14:20

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Takk fyrir það Jenný og hafðu það gott í óskalandinu

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 19.10.2011 kl. 14:27

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Það er nefnilega núna kjörið tækifæri fyrir kirkjuna að sýna í verki það sem hún boðar í orði. Og hafa skal það geistlega slekti í huga að þau eru þjónar safnaðarins en ekki herrar. Mér finnst þetta ofurlaunahyski fyrir löngu gengið af trúnni. Ég sagði mig úr þessum söfnuði fyrir 15 árum og síðan þá hefur bilið á milli minna skoðana og prestanna bara breikkað og er ég þó ekkert endilega trúlaus maður

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 19.10.2011 kl. 14:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband