2.12.2011 | 16:38
Jóhönnuraunir
Þótt fólkið hér sé löngu leitt
á lyginni um erlent fé
er lausnarorðið aðeins eitt
umsóknin að ESB
Undir erlend yfirráð
okkur vill hún fela
Svo að ríkum gefist ráð-
rúm hér öllu að stela
Þrautagangan þyrnum stráð
þrællinn illa barinn
Nú Jóhanna er hædd og smáð
hennar tími er farinn
Áfram fetar eyðislóð
undir breima kattakór
Kella orðin ellimóð
að elta það sem kom og fór.
Flokkur: Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 18:31 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.