3.2.2013 | 16:28
Enn ein mistökin hjá Steingrími
Að leita ekki samráðs við Færeyinga og Grænlendinga um sameiginlega aflahlutdeild þessara þriggja ríkja veikir stöðu okkar gagnvart hótunum ESB. Makríllinn hefur undanfarin ár gengið í meira magni hingað í okkar lögsögu og hefur einnig gengið í miklu magni vestur í lögsögu Grænlendinga. Að draga úr kvótanum á sama tíma og ganga makríls eykst veikir þau rök sem við höfum haldið á lofti að makríllinn sé afræningi okkar helstu nytjastofna og grisjun sé því nauðsynleg til að koma í veg fyrir ójafnvægi í lífríkinu innan okkar efnahagslögsögu. En undirlægjuháttur Steingríms er svo sem þekktur af öðrum vettvangi og þarf því ekkert að koma á óvart. Skemmst að minnast að hann gekkst undir einhliða ákvörðun Norðmanna að draga úr veiði íslendinga úr norsk-íslenska síldarstofninum um 30 Þúsund tonn á þessu ári. Þannig að með þessum 2 ákvörðunum þá hefur Steingrímur minnkað þjóðartekjur okkar um 10 milljarða í það minnsta. Og það örlar ekki á tilraun hjá þessu fólki til að auka bolfiskkvótann heldur. Allt er þetta á eina bókina lært. Algert andvaraleysi á nauðsyn þess að auka okkar útflutningstekjur. Hvaðan heldur þetta fólk, Jóhanna og Steingrímur að gjaldeyristekjurnar komi? Frá AGS?
Makrílkvótinn 15% minni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:36 | Facebook
Athugasemdir
Alltaf verður Gröf Steingríms J Dýpri.........
Vilhjálmur Stefánsson, 3.2.2013 kl. 17:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.