Spillt Samkeppniseftirlit.

Ef Samkeppniseftirlitið og Framsóknarörverpið sem situr þar, sem forstjóri í pólitísku umboði fjórflokksins, starfa eftir lögum, þá þarf greinilega að skerpa á þeirri lagasetningu.  Eða ganga í ESB og taka upp alvöru lagasetningu og alvöru eftirlit.  Þetta eru þung orð en nýjustu úrskurðir þessa sýndar-Samkeppniseftirlits kalla á extreme viðbrögð.  Eða hvar í siðuðu ríki myndi það vera látið viðgangast að 7 fjölskyldur geti í skjóli pólitískrar spillingar , sölsað undir sig 90 % af stærstu auðlind þjóðar án þess að greiða sanngjarnt verð fyrir?  Og núna á að bæta um betur og afhenda aðalkvótagreifanum, Þorsteini Má í Samherja, 20% af botnfiskkvóta Vestmannaeyja í gegnum kaup á fyrirtækinu Bergi-Huginn!   Þetta er svo mikið svínarí að það nær ekki nokkurri átt að þetta geti gerst eftir alla umræðuna um kvótakerfið og framsalið á liðnum árum.  Það er bara verið að sýna okkur fingurinn og núna með aðstoð spillts eftirlitskerfis sem kallar sig öfugnefninu Samkeppniseftirlit!. 

Hér er engin samkeppni á neinum sviðum og pólitísk inngrip í bankakerfið og stjórn lífeyrissjóðanna handstýra því hvaða fyrirtæki fá að lifa og hver eru sett í þrot.

Svo höfum við ríkisstýrðan landbúnað og einkavædda útgerð einkavina.  Þetta gerist ekki spilltara í vanþróaðasta ríki í Afríku!

Og ef þetta væri nú ekki nóg þá bítur fyrirkomulag gjaldeyrisviðskipta höfuðið af skömminni með því að leyfa Seðlabankanum að vera með sýndarmarkað til að geta falsað rangt gengi á krónunni til að handstýra hér vísitöluhækkunum og þar með verðbólgu.   Allt í nafni pólitískrar loddaramennsku til að friða eftirlitið í Brussel. 

Þetta gengur ekki svona lengur.  Annað hvort göngum við í ESB eða við segjum okkur úr EES.  Og annaðhvort höfum við gengið fast í höftum eða við tökum upp annan gjaldmiðil.  Og annaðhvort ríkir hér fákeppni án afskipta pólitíkusa eða samkeppni.  Og ef við viðurkennum fámennið og fákeppnina þá skiptum við um nafn á Samkeppnisstofnun og köllum hana Fákeppnisstofnun og fáum alvöru forstjóra til að stýra þeirri stofnun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband