Laugavegurinn annar ekki umferð

Kaupmenn hljóta að átta sig á að lokun Laugavegar fyrir allri bílaumferð er orðið brýnasta hagsmunamál þeirra sjálfra.  Í dag er orðið erfitt að komast leiðar sinnar fyrir gangandi vegfarendur og ekki er ástandið betra fyrir okkur sem hjólum.  Ég er þó á því að ekki sé þörf fyrir öll þessi skilti og þau eru slysagildrur fyrir sjónskerta. Meira tillit og meira samráð skaðar engan en auðvitað er borgin í fullum rétti að fjarlægja þessar slysagildrur.
mbl.is Borgin fjarlægði skilti kaupmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eru skilti frá verslunum meiri slysagildrur en skilti frá veitingahúsum og öldurhúsum? Hafa blindir og sjónskertir sagt það? Er borgin í fullum rétti að mismuna mönnum? Hvaðan kemur þér sú speki?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 7.11.2013 kl. 14:08

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Í fyrsta lagi þá eru gangstéttar ekki hlutar af lóðaréttindum. Í öðru lagi þá hafa blindir,sjónskertir og annað fatlað fólk kvartað yfir lélegu aðgengi í Reykjavík og sérstaklega á Laugaveginum. Með því að taka skilti sem sett eru upp í óleyfi er ekki verið að brjóta á neinum Elín. Hitt er annað mál að auðvitað á ekki að veita einni starfsemi undanþágu frá reglum.  Mér finnst að reglur eigi að vera almennar og ekki eigi að mismuna varðandi það.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 7.11.2013 kl. 14:23

3 identicon

Þá erum við sammála. Leiðinleg þessi lenska að reglur gildi bara fyrir suma. Hinir mega allt.

http://vefir.pressan.is/ordid/2011/06/28/samdrykkja-steingrims-og-villa-a-olstofunni/

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 7.11.2013 kl. 14:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband