26.2.2012 | 22:16
Peningarnir okkar!
Enginn er betur til þess fallinn að ráðstafa peningum sínum, en sá sem aflar þeirra. Þetta ættu allir að vera sammála um hvar í flokki sem menn standa. Þess vegna svíður mér alltaf þegar ég les fréttir um sjálftöku kjörinna fulltrúa okkar, úr sameiginlegum sjóðum. Sjálftöku sem er löngu komin úr öllu hófi. Það virðist sama hvert litið er. Hvort um sé að tefla opinbera sjóði verkalýðsfélaga, íþróttafélaga, lífeyrissjóða, sveitarfélaga eða ríkissjóð. Alls staðar er sjálftökuliðið að moka í sjálft sig og vini sína án athugasemda. Nýjustu dæmin eru náttúrulega bifreiðakaup Lífeyrissjóðs VR, ferðakostnaður borgarfulltrúans Oddnýjar Sturludóttur og starfslokasamningur skólastjórans í Gerðaskóla.
Ekkert af þessum útgjöldum er hægt að flokka undir eðlileg útgjöld eða ábyrga meðferð á almannafé. Almenningur þessa lands þarf að rísa upp gegn þessari botnlausu sóun og þjófnaði liggur mér við að segja. Blóðpeninganna er nefnilega aflað með blóð og svita HINS VENJULEGA LAUNÞEGA EN ÞEIR DETTA EKKI AF HIMNUM OFAN. Heimtum af fulltrúum að þeir umgangist peningana okkar af ábyrgð og látum þá þurfa að sækja um leyfi fyrir aukakostnaði. Og afnemum þessi arfavitlausu bílafríðindi allra. Ríkisstjórnar, lífeyrisbófa, borgarstjórnar Reykjavíkur og fyrirtækja í opinberri eigu. Ef fólk þarf að komast milli staða í vinnunni þá á að nýta leigubíla. Að öðrum kosti eiga menn bara að reka eiginn bíl ef menn kjósa svo. Ef menn svo treysta alls ekki að fulltrúarnir fari eftir þessum tillögum þá finnst mér koma til greina að takmarka heimildir til skattlagningar við 20% af nettótekjum, í stjórnarskránni. En tillögur um það sem vantaði í frumvarpið um stjórnarskrána koma seinna
26.2.2012 | 21:02
Sex-Workers
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2012 | 15:55
Amazon konurnar og íslensku sílikongellurnar
25.2.2012 | 14:47
Andhetjuhugsun og aumingjavæðing Íslands
Íslendingar eru upp til hópa ólæsir fávitar sem dýrka teiknimyndasögur eins og Tinnabækurnar. Af Tinnabókunum hafa menn lært að tilbiðja andhetjur og fáráða. Andhetjan er dæmigerð rola sem finnst allt í lagi að gefast upp. Andhetjan á enga sómatilfinningu og er í eðli sínu ærulaus. Andhetjunum finnst allt í lagi að eyða matarpeningunum í sígarettur og eiturlyf og fara svo í biðröð hjá fjölskylduhjálpinni eftir mat. Andhetjan er byrði á samfélaginu. Andhetjan vill gjarnan að Ísland gangi í ESB.
Við þurfum að sparka í rassgatið á sjálfum okkur og fara að lesa meira af Íslendingasögunum. Hetjur Íslendingasagnanna lifðu með sæmd og dóu með sæmd. Sá er munurinn
25.2.2012 | 14:15
Eftir jólabókaflóðið kemur bókamarkaðurinn

25.2.2012 | 13:58
Framboð af menntun
25.2.2012 | 13:25
Dæmisaga Guðbergs
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.2.2012 | 13:03
Það er öllum frjálst að gagnrýna
![]() |
Kvörtun um sálma hæpin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2012 | 03:38
Persónuleikaraskanir hrjá Samfylkinguna
- Samfylkingin var í stjórn 2007-2009 og ber ótvíræða ábyrgð á hruninu með aðgerðaleysi og meðvirkni. - Þetta er gleymt og gerðist því aldrei!
- Uppreisn er gerð gegn formanni Samfylkingar í janúar 2009 og hún þvinguð til að slíta stjórnarsamstarfi og efna til kosninga.- Þetta er gleymt og gerðist því aldrei
- 1. stýrimaður samfylkingar, Jóhanna Sigurðardóttir er dubbuð í skipstjóradjobbið og vinnur kosningar 2009, annars engar breytingar á forystuliðinu - Jóhanna er heilög og það eitt skiptir máli
- Samfylking myndar stjórn og lætur eins og hún beri enga ábyrgð á hruninu - Jóhanna er heilög og það eitt skiptir máli
- Samfylking rær að því öllum árum að innlima ESB í Ísland en á sama tíma stendur Össur Skarphéðinsson í viðræðum um samstarf og viðskiptasamninga við ríki utan ESB - ESB bjargar okkur
- Samfylkingin afhendir Hæstarétti lagasetningavaldið - Allt Sjálfstæðisflokki að kenna. þeir eru að skemma fyrir
- Samfylkingin flytur okkur passíusálma með blóð á höndum. - Allt umboðsmanni skuldara og Dróma að kenna
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2012 | 01:53
Anskotans skömm er alltaf að þessum sjálfsréttlætingum
![]() |
Björguðum Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |