Vistkerfi breytast

Íslenzkir vísindamenn virðast haldnir þeirri firru að þeirra hlutverk sé að koma í veg fyrir náttúrulega þróun.  Og starf þeirra virðist snúast um að stjórna viskerfum í stað þess að rannsaka og fræðast um orsakir breytinganna.

Fiskifræðingar, líffræðingar og náttúrufræðingar mættu gjarnan íhuga hvort það sé í þágu vísindalegrar þekkingar að taka sér vald yfir náttúrunni eins og þeir virðast gera í sambandi við fiskveiðiráðgjöf, rjúpnastofninn, hvalinn, selinn, lundann og aðra dýrastofna sem hér hafa tekið sér bólfestu. 

Náttúrunni verður ekki stjórnað frá Íslandi.  Hvorki með aflareglum eða veiðibanni.


mbl.is Alvarlegt ástand sjófugla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Víkingaheimar í Reykjanesbæ

Slóð spillingar Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ er vörðuð góðum ásetningi eða hvað?  Nú er upplýst að Víkingaheimar, sem er fyrirtæki sem Árni Sigfússon kom á laggirnar með fjármunum úr sjóðum Reykjanesbæjar til að bjarga vini sínum úr Eyjum undan persónulegu gjaldþroti, hefur alltaf verið rekið með tapi í þau 5 ár sem það hefur verið rekið.  Og tapreksturinn er fjármagnaður með lánum!  Er þetta ekki lýsandi dæmi um fjármálasnilli sjálfstæðismanna?  það skiptir ekki máli í þessu sambandi að Gunnar Marel er hinn vænsti maður og framdi stórvirki á íslenzkan mælikvarða, með smíði víkingaskipsins og siglingunni til Ameríku. Það var ekki Árna að hlaupa undir bagga með skattfé Reykjanesbæjar.  Það var íslenzka ríkið sem átti að leysa fjárhagsvanda Gunnars Marels í þakklætisskyni fyrir ómetanlega landkynningu.

Munu stjórnmálamenn draga lærdóm af þessu eða verður þetta enn eitt spillingarmálið sem fellur í gleymskunnar dá.....

Og hvenær er að vænta ákæru á hendur stjórnendum SPKEF? 

 

 

 

 

 

 


Allir vilja nú Lilju trúað hafa

Stærstu hagstjórnarmistök Steingríms J voru að taka ekki mark á Lilju Mósesdóttur og því sem hún lagði til að gert yrði varðandi snjóhengjuna og hrægammasjóðina sem keyptu kröfur á föllnu bankana.

Nú virðist loksins vera að kvikna skilningur á nauðsyn þess að gera upp þrotabú föllnu bankanna með tilliti til þess virðis sem kröfurnar voru keyptar á en ekki bókfærðu virði. Að það hafi þurft "skattasérfræðing" til að benda á raunverulega og löglega leið segir allt um hæfi þeirra hagfræðinga og lögfræðinga sem hingað til hafa verið kallaðir til ráðgjafar.

Næsta skref ríkisstjórnarinnar hlýtur nú að vera að ráða Lilju Mósesdóttur til ráðgjafar varðandi útfærslu á uppgjöri við kröfuhafa þrotabúa föllnu bankanna svo hægt verði að afnema hér gjaldeyrishöft sem fyrst. En mikilvægast er að þetta verði gert með aðkomu allra þingmanna eins og gert var þegar neyðarlögin voru sett.

Ef það verður gert þyrfti að gefa sumum þingmönnum tækifæri til að segja af sér þingmennsku og kalla inn varamenn. Þar er ég að tala um ráðherra VG og SF í síðustu ríkisstjórn.


Næsti Innanríkisráðherra verður að koma utan frá

Ráðuneytið er of mikilvægt til þess að láta pólitíska vanvita sinna þar yfirstjórn.  Með því að kalla til pólitískt óháða manneskju sem nyti víðtæks trausts er hægt að bjarga miklu.  Ragna Erlendsdóttir og Herdís Þorgeirsdóttir finnst mér báðar koma til greina svona í fljótu bragði.  Fagmanneskjur fram í fingurgóma.


Ríkisstjórnin fer með fjárveitingavaldið

Hvað er Árni Páll að rífa kjaft? Það hlusta varla margir á veika gagnrýni stjórnarminnihlutans foot-in-mouth  Þær breytingar sem fjárlög taka eru vegna þrýstings frá fjölmiðlum og almenningi en alls ekki út af nöldri minnihlutans í þingsal. Ef Árni og Katrín hefðu ekki slátrað stjórnlagafrumvarpinu sællar minningar,þá hefði kannski verið hægt að breyta þessu þannig að Alþingi færi í reynd með fjárveitingavaldið. En þau sviku það eins og fleira af sínum stefnumálum. Þess vegna verðum við bara að sætta okkur við að framkvæmdavaldið er í raun einrátt.  Og þegar stjórnarmeirihlutinn á líka dómarana þá er stjórnarskráin einskis virði.  Og þá er stutt í að lýðræðisréttur almennings verði fótum troðinn.  Alla vega hefur forsetinn ekki séð ástæðu til að skjóta deilumálum til þjóðarinnar eftir að ríkisstjórn ríka fólksins tók við..


mbl.is Ríkisstjórnin komin á undanhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem lekamálið hefur kennt okkur

Það sem við eigum að læra af lekamálinu öll sem eitt, er að gera alltaf ráð fyrir að pólitíkusar og embættismenn taki alltaf eigin hagsmuni fram yfir almannahagsmuni.  Lekamálið vatt upp á sig vegna þess að þeir sem málið varðaði brugðust við spurningum fjölmiðlafólks með lygum.

Og köngulóin í lygavefnum var auðvitað ráðherrann sjálfur. Ráðherrann, sem nú hefur hrökklast úr embætti til að þurfa ekki að svara fyrir raunverulega aðkomu sína að myrkraverkum aðstoðarmannanna. Eða trúir einhver því virkilega ennþá að ráðherrann hafi ekki verið upplýst um lekann?  Því ef hún var saklaus, þá hefði hún einfaldlega strax upplýst málið og beðist afsökunar.  En það gerði hún ekki af því hún var flækt í lögbrotið sem aðstoðarmaðurinn framdi. Og þess vegna reyndi hún á öllum stigum að flækjast fyrir rannsókninni með beinum afskiptum af störfum undirmanna sinna.

Og við skulum hafa hugfast að tölvan hennar var aldrei rannsökuð og varla hafa menn þorað að skoða símtölin hennar. Ég gef mér það.

Eini aðilinn sem kemur frá þessum skandal með óflekkað mannorð virðist vera Stefán Eiríksson. Hann var sá eini sem þorði að standa gegn offorsi ráðherrans en það var heldur ekki án afleiðinga fyrir hann. Ráðuneytisstjórinn og lögreglustjórinn á Suðurnesjum höfðu ekki sama siðferðisþrek og Stefán og í því ljósi verðum við að skoða hvort þeim sé stætt í störfum.  Ég segi hiklaust að þær tvær verði að leita sér að öðrum störfum.

Því lærdómurinn af lekamálinu er sá einn að stjórnsýslan er ónýt. Þetta skilur Tryggvi Gunnarsson manna best. Því Umbi er sennilega sá Íslendingur, sem hefur öðlast yfirgripsmesta þekkingu á okkar rotna kerfi. En geta hans til úrbóta er engin þegar fólk eins og Hanna Birna, Sigmundur og Bjarni Benediktsson grafa undan störfum hans bæði beint og óbeint með hjálp niðurrifsafla og leigupenna.

Valdastétt fjórflokksins vill engu breyta. Hún mun halda lygunum áfram vegna þess að hollusta hennar er ekki við þjóðina.  Hollustan er fyrst og fremst við flokkinn.

Lygin er orðin svo stór þáttur í embættisfærslu stjórnvalda að þeir virka eins og einfeldningar ef þeim verður á að segja satt.  Gott dæmi var Jón Gnarr.

 

 


mbl.is Þjóðin læri af lekamálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

No Shit!

Til að axla áfram mína póli­tísku ábyrgð gagn­vart fólk­inu sem kaus mig til for­ystu á Alþingi til fjög­urra ára mun ég að loknu stuttu fríi taka aft­ur til starfa sem þingmaður og von­andi enn virk­ari vara­formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins um ára­mót. Ég hlakka til þess, nýrra verk­efna og nýs árs.

Síðast þegar ég vissi var ekki búið að innleiða hér persónukjör. En ef Hanna Birna lofar að beita sér fyrir breytingum á stjórnarskránni eins og almenningur er þegar búinn að kjósa um þá á hún sér kannski afturkomu. En ég á nú ekki von á því.  Þessi ræða er nú bara venjulegur kjaftavaðall án innihalds eins og svo oft úr þeim munni.


mbl.is Hanna Birna: Nú er mál að linni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afsögn einnar manneskju nægir ekki

Það eru fleiri sem þurfa að taka pokann sinn ef vilji er til að bæta fyrir laskaða ímynd ráðuneytisins og ríkisstjórnarinnar.  Hvað með ráðuneytisstjórann?  Hvað með Sigríði Björk? Og hvað með Bjarna Benediktsson? Allir þessir aðilar bera ábyrgð og eiga að sjá sóma sinn í að taka pokann sinn. Sá skaði sem allur skollaleikur Hönnu Birnu hefur valdið er í raun óbætanlegur. Eða hvernig ætla menn að byggja upp traust á stjórnkerfinu þegar svona er staðið að málum?.  Og það má velta fyrir sér ákvörðun dómara og saksóknara að láta málaferli falla niður þegar augljóst var að játningin var eingöngu knúin fram til að komast hjá að draga fleiri í svaðið.

Núna geta kannski hræddir þingmenn Sjálfstæðisflokksins tjáð sig..eða hvað?


mbl.is „Hefði átt að vera löngu búin að þessu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talað í gegnum Þorvald Lúðvík

Fréttin á RUV er dæmigerð ekki frétt. Þarna er Samherji að reka áróður fyrir sínum hagsmunum og notar við það embættismann sem er látinn  semja fréttatilkynningu í nafni óháðra samtaka.  Í þessu tilfelli Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar.  En við hljótum að sjá hvaða hagsmunir liggja undir.  Samherji er með fiskvinnslu við Eyjafjörð og vill að ríkið setji meiri pening í Akureyraflugvöll til þess að þeir geti notað hann fyrir fiskútflutning á eigin afurðum. Sama er um Egilstaðavöll að segja. Að sveitastjórnamenn láti misnota sig svona segir í raun allt um þá atvinnukúgun sem á sér stað vegna samþjöppunar aflaheimilda langt umfram allt velsæmi. En Samherji á bráðum hálft Ísland í félagi við Þórólf hjá KASK.  Þeir stefna að óvinveittri yfirtöku og við erum þau einu sem getum stoppað þá.

Er ekki tími til kominn að rumska??


Hið miðstýrða Ísland

Einokunin og hringamyndunin hér á þessu náskeri hefur orðið í skjóli þess misskilnings að hjá 300 þúsund manna þjóð þrífist samkeppnismarkaður. Til að koma á neytendavænu umhverfi þarf að setja hér alvöru neytendalöggjöf sem tekur til alls reksturs og allra rekstraforma. Í kjölfarið þarf að leggja niður Samkeppniseftirlitið og þessar ónýtu eftirlitsstofnanir eins og Póst og fjarskiptastofnun, Fjölmiðlastofu, FME og hvað þessar ónýtu stofnanir allar heita. Hættum þessum blekkingum að við getum rekið hér örþjóðfélag með sömu uppbyggingu og milljónaþjóðir gera.

Á íslandi þarf að skilgreina markaðinn sem fákeppnis og einokunarmarkað og miða reglurnar við það.  Það mun þýða miklu minna svigrúm fyrir fyrirtæki til samruna og samþjöppunar. Enda er það beinlínis skaðlegt fyrir heildarhagsmuni þjóðarinnar hvernig einokunar og hringamyndun á öllum sviðum hefur verið látin óátalin í skjóli Samkeppnisstofnunarinnar.

Sjá menn ekki hvað samþjöppunin á fjölmiðlamarkaði er hættuleg? Ætla menn að leyfa Eigendafélagi Framsóknarflokksins að sölsa undir sig stóran hlut af fjölmiðlaútgáfu á netinu án þess að gera við það athugasemdir?  Halda menn að Björn Ingi hafi fjárhagslegt bolmagn til að standa í þessu einn?  Auðvitað ekki. Fjármagnið kemur úr sjóðum þeirra sem hagnast mest á þöggun og ritstýringu.

það hefur lengi verið reynt að koma múl á ritstjórn DV og það hefur tekist með óvinveittri yfirtöku Pressunnar ef við leyfum því að gerast.

Almenningur getur komið í veg fyrir það með því að sniðganga með öllu vefi Pressunnar og Dv.is þangað til þessi gjörningur verður afturkallaður.

Yfirvöldum er ekki treystandi til að gæta hagsmuna almenningseins og allir ættu að vita


mbl.is Stefnt að samruna DV og Pressunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband