3.2.2011 | 07:00
Samherja senditíkin geltir

![]() |
Það er óskiljanlegt að óvissunni skuli ekki vera eytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.2.2011 | 00:24
Icesave kemur mér ekki við
Mikill hávaði er nú í stuttbuxnadeildinni í Sjálfstæðisflokknum. Þeir eru ekki ánægðir með það sem þeir kalla undanlátssemi við fyrri stefnu þingflokksins sem þó fólst nú ekki í þjóðræknari afstöðu en að greiða ekki atkvæði. En það hefur einmitt verið stefna Sjálfstæðisflokksins undir forystu Bjarna Ben að taka ekki afstöðu, sitja hjá og skipa ekki menn í samráðsnefndir. Ótal dæmi get ég tínt til. Nægir samt að nefna samráðsnefnd ríkisstjórnar um skuldavanda heimilanna og núna síðast nefnd um stjórnarskrárbreytingar. En núna er SUS ekki skemmt. Núna eru horfur á að þingmenn flokksins ætli loksins að axla ábyrgð á glæp flokksins, þegar hann einkavinavæddi Landsbankann og gerði Kjartan Gunnarsson að fjárhirði flokksins hjá Landsbankanum fyrir utan svona smotterí eins og að ráða æskuvin Guðlaugs Þórðarsonar alþingismanns sfl, sem bankastjóra. Þessi sami æskuvinur, Sigurjón Árnason, hefur nú stöðu grunaðs manns hjá þjóðinni. Sjálfstæðisflokkurinn ber höfuðábyrgð á glæpaverkum Landsbankans og þar með icesave reikningunum.
Og núna dirfist helmingur sjálfstæðismanna, með Davíð Oddson í fararbroddi að segja:
"Icesave kemur mér ekki við"
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2011 | 22:39
ogmundur.is

Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2011 | 20:41
En veit hann hvaða lög gilda?
Kristján Gunnarsson, fyrrum formaður stjórnar Sparisjóðs Keflavíkur, var gestur í Kastljósinu í kvöld þar sem hann ítrekaði að hafa ekki gerst brotlegur við lög. Þá sagðist hann ekki ætla að segja starfi sínu lausu.
Þetta er nú meiri helvítis steypan sem vellur upp úr þessum voluðu mönnum. Hann las kannski aldrei skýrslu FME? En kannski er búið að tryggja að engin sakarannsókn fari fram? Eigum við sem þjóð að líða svona vinnubrögð? Ég segi nei. Þennan sparisjóð verður að gera gjaldþrota svo allt sukkið og svínaríið komið upp á yfirborðið. Öðru vísi verður engin endurreisn né sátt.
![]() |
Klaufaskapur að skrifa undir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.2.2011 | 19:58
Minnisvarði um heimsku
Vitstola hér vildu byggja
varða minnis fyrir arð
úr tómum sjóðum skyldi tryggja
tífalt meir en seinna varð
Stjórnar formenn flatir liggja
fyrir skildi er nú skarð
af því þjóðin á að þiggja
Þjófahöll við Ingólfsgarð
Tækifærisvísur | Breytt 3.2.2011 kl. 11:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2011 | 18:18
Samherji og samherjarnir
2.2.2011 | 11:30
Ró og friður
Leikur að (h)ljóði
Iður kreppast hviðum í
hvergi heyrist kliður
Niður gengur gorinn því
góður nú gefst friður
Friður gefst nú góður.því
gorinn gengur niður
Kliður heyrist hvergi. í
hviðum kreppast iður
*sléttubandavísa, hér áður var hv-framburður ekki óalgengur í Skaftafells sýslu austur
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2011 | 06:17
Rafrænar kosningar takk.
Nú er komin tækni til að þróa rafrænt kosningakerfi, byggt á nýjum rafrænum skilríkjum. Nú getum við hent þessu rándýra og úrelta kosninga fyrirkomulagi sem hér hefur verið við lýði alltof lengi. Allt mælir með rafrænum kosningum. Handvirkt kerfi býður upp á mistök. Tölvur gera ekki mistök. Hagræðið af að kjósa heima í stofu er augljóst. Nú er bara að taka ákvörðun um rafrænar kosningar og semja nýtt frumvarp og síðan getum við kosið eftir 2 mánuði. Og til að benda á það sem betur mátti fara í síðustu lögum endurbirti ég hér með tillögur í 10 liðum, fyrir þá sem ekki lásu upprunalegu færsluna:
- Fyrri lög alþingis voru meingölluð eins og óþarft er að hamra á. Auðvelt ætti að vera að bæta úr þeim formgöllum sem hæstiréttur benti á en það er ekki nóg.
- Alþingi má ekki skerða sjálfstæði stjórnlagaþings með beinum fyrirmælum og öðrum afskiptum af skipulagi starfsins. Fulltrúarnir eiga að ráða sinni vinnu sjálfir.
- Ekki má takmarka starfstíma stjórnlagaþingsins, það verður að fá þann tíma sem það þarf
- Kosnir verði 63 fulltrúar á stjórnlagaþing og taki kjörgengi mið af reglum um forseta lýðveldisins ( reynslulaust fólk og krakkar undir tvítugu eiga ekkert erindi inná svona þing)
- Stjórnlagaþingið fari fram í húsakynnum Alþingis og nýti alla aðstöðu þess. Óþarft er að leggja útí tvöfaldan kostnað. Útlit er fyrir að Alþingi verði komið í sumarfrí þegar stjórnlagaþing getur hafið störf og dragist starf þess langt fram á haust eða lengur þá er hægt að samræma þingfundi Alþingis og Stjórnlagaþings þannig að ekki rekist á hvort annað (þegar Alþingi tekur sér frí vegna starfsdaga og kjördæmavikna og hvað allt það heitir þá taki Stjórnlagaþingið yfir fundarsali og aðra aðstöðu)
- Stjórnlagaþingsvinna verði þegnskylduvinna. Þeir sem nái kjöri missi ekki í neinu þau laun og réttindi sem þeir hafa hjá sínum vinnuveitendum og óheimilt verði að segja þeim upp starfi. Ef kjörinn fulltrúi er án atvinnu skal honum tryggð laun úr ríkissjóði samkvæmt framfærsluviðmiði.
- Kosning til Stjórnlagaþings verði rafræn og þeir sem ekki geti eða vilji kjósa rafrænt fái að taka með sér aðstoðarmann ef þeir þurfa við utankjörfundar atkvæðagreiðslu
- Stjórnlagaþing skili af sér heildstæðri stjórnarskrá sem borin verði upp í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hver grein verði þannig borin undir þjóðina til samþykktar eða synjunar.
- Alþingi hafi aðeins heimildir til að fjalla um þær greinar stjórnarskrárinnar sem þjóðin samþykkir ekki
- Hin nýja stjórnarskrá svo samþykkt af Alþingi verði að lögum án þjóðaratkvæðagreiðslu
![]() |
Rætt um aðra kosningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.2.2011 | 05:50
Framkvæmdir á vegum ríkisins
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2011 | 18:38
Jóhanna mun ekki kvika
![]() |
Skýrist fljótlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |