26.2.2016 | 13:31
Moldvörpurnar í Stjórnarráðinu
Enginn vill hafa moldvörpu í garðinum hjá sér. En það er erfitt að varast þær fyrr en skaðinn er skeður. Menn þekkja eðli moldvörpunnar, sem er að hola innan jarðveginn til að búa í haginn fyrir sjálfa sig og sína. Það gerir hún með því að búa til ótal flóttaleiðir til að tryggja undankomu fyrir sig og sína þegar garðeigandinn dettur ofan í holurnar sem grafnar hafa verið
Kristján Þór er svona moldvarpa. Hann er búinn að undirbúa jarðveginn (grafa holuna). Myrkraverkin unnin undir yfirborðinu. Mjög fáir vissu hvað Kristján var að bauka í ráðuneytinu og nú er of seint að stoppa meindýrið.
Í holuna eiga að fara 10% af framlagi ríkisins til heilsugæslunnar í landinu. Og þetta mun renna í vasa forréttindahópa í röðum þeirra efnameiri samkvæmt hugmyndum moldvörpunnar í heilbrigðisráðuneytinu.
Pössum okkur á moldvörpunum!
![]() |
Heilsugæsla fjármögnuð eftir gæðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2016 | 00:10
Sniðgöngum Stjórnarskrá Alþingis
Nauðsynlegar umbætur til að tryggja betra og ábyrgara þjóðfélag komast ekki á dagskrá af því Alþingi heldur stjórnarskránni í gíslingu. Stjórnarskráin, þótt ófullkomin sé er grundvöllur þjóðskipunarinnar og á henni byggja klíkurnar völd sín í gegnum þetta rotna fulltrúalýðræði ójafnræðis og mismununar atkvæðarétta. Það er ástæðan fyrir því að tilraun fólksins til að setja sér stjórnarskrá hefur nú endanlega verið slátrað með þessum málamyndagerningi sem felst í tillögum stjórnlaganefndar þingsins.
- Þess vegna skora ég á alla að sniðganga algerlega þessa svívirðu sem Alþingi ætlar að fremja gagnvart þjóðinni.
- Við skulum ekki ræða þessar tillögur
- Við skulum ekki greiða atkvæði um þessar tillögur
- Og við skulum kjósa forseta sem mun beita 26. greininni
- Og við skulum henda þessum svikurum útaf þingi í næstu kosningum og skila stjórnarskrárvaldinu aftur til þjóðarinnar
![]() |
Gæti losað um stíflu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.2.2016 | 18:54
Já, en hvaða hausar Ragnheiður?
"Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, gerði að umfjöllunarefni sínu á Alþingi í dag niðurfellingu Aserta-málsins svokallaðs fyrir dómstólum. Málið hafi verið höfðað gegn fjórum ungum mönnum og staðið yfir í sex ár áður en það hafi verið fellt niður.Mennirnir hefðu verið kærðir fyrir brot á reglum sem hefðu lögskilið samþykki ráðherra. Farið hefði verið rangt af stað með málið og réttur brotinn á einstaklingum. Málið hefði kostað mennina bæði mannorðið og fjármuni. Sama ætti við um mál Seðlabankans gegn Samherja.Spurði Ragnheiður hver ætlaði að axla ábyrgð á málinu, Seðlabankinn, fjármálaefturlitið eða ríkissaksóknari, og sýna borgurum landsins að svona ætti ekki að fara með fólk".
-----------------------------------------------------------------------
Það er ekki sæmandi fyrir þingmann að skella skuldinni á embættismenn, sem eru bara að vinna eftir lögum og reglugerðum sem stjórnmálamenn setja þeim. Þegar svona brotalamir í málsmeðferðum koma upp, eins og þessi 2 mál sem bæði tengjast Seðlabankanum, er við enga að sakast nema alþingismenn sjálfa. Alþingi ber alla ábyrgð á að bæði þess mál klúðruðust í meðförum ríkissaksaksóknara. Og þessi kona ætti að fara varlega í yfirlýsingagleðinni því orð hennar gætu hæglega verið notuð til grundvallar skaðabótamáli gegn ríkinu. Því er það mikilvægt að allir átti sig á því að niðurfelling lögsóknar þýðir ekki sjálfkrafa að sakborningar séu saklausir. Hvorki Þorsteinn Már, Jón Ásgeir eða Asertastrákarnir. Þetta dekur við fjármálaglæpamenn er komið út í öfga og greinilegt að áhrif Jóns Ásgeirs og 365 miðla eru meiri en mig óraði fyrir. Sorglegt að við skulum þurfa að hlusta á svona þvætting eins og Ragnheiður lét út úr sér á þingi í dag.
Þingmaður sem hótar sjálfsmorði, ef samningur sem formaðurinn hennar er búinn að samþykkja, fer í gegnum þingið og hótar svo embættismönnum höfuðmissi daginn eftir ætti að leita sér hjálpar. Ef hún þolir ekki álagið sem starfið veldur getur hún líka bara hætt. Hún er ekkert ómissandi frekar en aðrar kellingar þarna við Austurvöll.
![]() |
Vill að hausar fjúki vegna Aserta-málsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2016 | 12:07
Heimilisofbeldið á Pírataheimilinu
Helgi kapteinn sýnir góða formannstakta með því að stíga fram og ákæra Birgittu Jónsdóttur fyrir heimilisofbeldi. Þessi samlíking er náttúrulega bara táknræn lýsing á þeim samskiptavanda sem verður oft til hjá ósamlyndu fólki. Helgi Hrafn upplifir sig sem heimilisföður sem þorir ekki að standa í hárinu á ráðríkum maka. Hann segist hafa þurft að tipla á tánum í kringum hana og segir þau ekki hafa getað haft hreinskiptin samskipti vegna skapbresta hennar. Þetta rímar vel við þá ímynd, sem nánir samstarfsmenn eins og Smári McGarthy og Kristinn Hrafnsson hafa gefið af henni. Boltinn er nú hjá Birgittu. Mun hún taka þessa gagnrýni til greina og stíga til hliðar á meðan færi gefst eða mun hún böðlast áfram í krafti þess valdhroka sem alþingismönnum er innrættur. Ef hún gefur ekki eftir og lætur öðrum eftir leikvöllinn mun þessi sjálfsprottna hreyfing sem Píratar eru, líða fyrir það. Það er kristaltært. Birgitta hefur reist sinn minnisvarða í íslenskri pólitík. Hún er pólitískur einfari og henni líður ekki vel í fjöldahreyfingu. Hún bjó ekki pírataflokkinn til. Það er misskilningur ef hún heldur að hún sé ómissandi. Núna er rétti tíminn til að láta nýjum og samstarfsliprari mönnum og konum eftir stjórnvölinn. Þá fyrst geta Helgi Hrafn og Erna Ýr komið aftur heim úr kvennaathvarfinu
![]() |
Samskiptin eins og í ofbeldissambandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2016 | 20:31
Nei Þorgerður, ekki vera fáviti
Það er enginn búinn að gleyma þínum innherjasvikum!
Til innherja alls ekki teljast
ef af Flokknum til ábyrgðar veljast
Þótt Þorgerður þætt' ekki hlýðin
þá tókst henn' að dáleiða lýðinn
Sem yfirmann íþrótt' og menntar
af því að öllum það hentar
þingflokkur Þorgerði setti
og þjóðin tók andköf af létti
Þá var hér þjóðlíf í blóma
fólk þekkt' ekki Steingrím og Dróma
Þá var hlegið og grillað í Hruna
það hljóta nú allir að muna.
En lofa skal dag hvern að kveldi
kænn gerðist Baldur og seldi
bréfin sín bankanum í
en Brown bar nú ábyrgð á því
Þá Þorgerður þurfti að fara
því gift var hún Kristjáni Ara
Það fannst engum undrunum sæta
enda áttu þau hagsmun' að gæta
Er læddist að Hafnfirska húmið
hjónin sér hröðuðu í rúmið
Andlega órótt í geði
enda fjárhagsleg staða í veði
Undir konuna settur er koddinn
Kristján vill fá sér á broddinn
Við atganginn allt fer í lakið
uppgefin leggjast á bakið
Þá formaður Flokksins til vara
frétt sagði Kristjáni Ara
að allt vær' að fara til fjandans
-Fallvölt er frjálshyggja andans-
Og grípa þau verði til varna
og verjast með Einar' og Bjarna
sem björguðu Engeyjar auðnum
undan nefinu á Lárusi sauðnum
En nú var úr vöndu að velja
verðbréfin mátt' ekki selja
Græðgislán glóparnir taka
sem get' aldrei borgað til baka
Arðsemi bréfanna búið
bankahrun varð ekki flúið
En fléttan sem fullkomnar ránið
felst í að afskrifa lánið
Nú áhyggjum þeirr' er að slota
enda 7 Hægri löngu gjaldþrota
En álögur væru hér lægri
ef lögsótt við gætum 7 Hægri
-Sama hvað alþýðan argar
elítan alltaf sér bjargar_
![]() |
Þorgerður Katrín íhugar framboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.2.2016 | 20:18
Fáfnir Offshore vs. Bedrag
Þeir sem eru svo heppnir að hafa aðgang að DR1 fylgjast væntanlega spenntir með sakamálaröðinni Bedrag sem sýnd hefur verið undanfarna 9 sunnudaga. Bedrag fjallar um svindl og blekkingar með stórum staf eins og nafnið gefur til kynna. Og þar sem RUV kemur að framleiðslu þáttanna þá fá allir íslendingar væntanlega að sjá þessa þætti þegar dagskrárstjóra RUV þóknast! Þess vegna ætla ég ekki að fjalla nánar um plottið í Bedrag en læt nægja að varpa fram þeirri tilgátu hvort uppgangur og fyrirsjáanlegt fall, Fáfnis Offshores gæti á einhvern hátt hafa spilað inn í handritsgerð þeirra þátta? Þar nægir að nefna tengslin við ráðherrann (Steingrímur er bróðursonur Steingríms J.) og einnig er fyrirtækið Energreen stofnað utan um rekstur á vindmillum alveig eins og Steingrímur Erlingsson vildi að Fáfni Offshore yrði breytt í. Þetta eru náttúrulega ábyrgðarlausar vangaveltur en við höfðum dæmi um svona froðufyrirtæki í bólunni. Man einhver eftir Decode eða Íslenzka hugbúnaðarsjóðnum? Hvort örlög Fáfnis Offshore verða þau sömu á eftir að koma í ljós en skúrkurinn þar virðist vera sloppinn. Hvítþveginn úr drottningarviðtali á ríkismiðlinum.
23.2.2016 | 17:18
440 milljóna gjöf til svínabænda
Framleiðsla á svínakjöti hefur ekki verið stunduð sem aukabúgrein með hefðbundnum landbúnaði heldur sem sérstök framleiðsla utan sveitanna og þá nálægt stærsta markaðnum hér við Faxaflóa. Þessari framleiðslu hefur fylgt ýmiss umhverfissóðaskapur og gerðar hafa verið athugasemdir við aðbúnað dýranna og ómanneskjulega meðferð í sambandi við vönun galtanna. Þess vegna voru eigendum þessara svína gert að bæta úr ágöllunum og málið dautt! En ekki aldeilis. Þeir fá margra ára aðlögunartíma og íslenskir neytendur borga brúsann. 440 milljónir verða teknir af skattfé landsmanna næstu 5 ár til að greiða fyrir úrbótum sem allir héldu að búið væri að framkvæma í fyrra.......
Fjárfestingastyrkir í svínarækt - 10. grein
ár............................... 2017 2018 2019 2020 2021
upphæð í milljónum.... 99 98 98 97 48
-----------------------------------------------------------
Samtals 2017-2021 440 milljónir
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2016 | 16:48
Búvörusamningar eru fyrirtækjasamningar
Forsætisráðherra skilur ekki hvernig landbúnaður er rekinn á íslandi enda er hann einn af "Melaelítunni" sjálfur. Það er ekki nóg að vera skráður með lögheimili á eyðibýli austur á Fljótsdal til að aðskilja sig frá upprunanum. Þegar forsætisráðherra stillir málum upp þannig, að þeir sem gera athugasemdir við nýgerðan búvörusamning séu sjálfkrafa á móti bændum þá ber það vott um algert skilningsleysi ráðherrans á því kerfi sem búið hefur verið til utanum íslenskan landbúnað og viðhaldið í gegnum þessa búvörusamninga.
En þetta er ekkert nýtt hjá hagsmunagæslumönnum bændamafíunnar á Alþingi. Bændamafían samanstendur nefnilega ekki aðeins af fáeinum stórbændum, heldur ekki síst fyrirtækjum sem vinna úr afurðunum, Kaupfélagi Skagfirðinga, SS, Kjarnafæði og Mjólkursamsölunni, ásamt með nokkrum stærstu kjúklinga og svínaframleiðendum landsins. Þetta eru mennirnir sem ráða öllu þegar kemur að samningum við ríkið um allt sem við kemur íslenskum landbúnaði. Og yfirleitt fá þessir aðilar öllum sínum kröfum framgengt vegna þess að þeir eiga óeðlileg ítök í þjóðfélaginu í gegnum embættismenn í ráðuneytum, eigendavald í fjórflokknum og ónýta neytendapólitík á Íslandi.
Menn eins og Óttar Proppé verða fyrst að skilja skrímslið áður en þeir fara gegn því. Annars er bara málið frágengið
![]() |
Búvörusamningarnir sagðir glórulausir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.2.2016 | 15:00
Bókhaldsbrellur blinda mannsins
Bergvin Oddsson er ekkert frábrugðinn öðrum íslenskum bissnessköllum. Hann vildi verða ríkur án þess að hætta eigin fé. Þegar hann svo kynnist ungum manni sem á peninga sér hann opnast tækifæri til að hrinda þessari viðskiptahugmynd sinni og pabba síns í framkvæmd. Plottið er einfalt,
- Stofna ehf félag og gera fórnarlambið að meðeiganda(grundvallaratriði)
- Tryggja meirihluta í félaginu með því að gera ættingja að stofnfélaga
- Plata meðeigandann til að leggja fram peninga án trygginga inn á eiginn reikning
- Lækka hlutafé félagsins úr 7 milljónum niður í 500 þúsund
Allt löglegt en siðlaust. Sá eini sem skaðast er viðskiptafélaginn sem lagði fram peninginn í upphafi. Allt í einu vaknar hann upp við að hafa tapað 1300 þúsund krónum á þessum viðskiptum með Bergvini Oddssyni og óvíst að hann sjái nokkurn tíma krónu af þessari fjárfestingu sinni aftur. Svona mál eru alltaf að dúkka upp og löngu tímabært að dómstólar setji einhverjar reglur um hvað sé leyfilegt í bókhaldsbrellum einkahlutafélaga.
Blindrafélagið ætti að hafa allan vara á og alls ekki kjósa þennan mann sem formann og með prókúru. Þeir gætu lent í því sama og meðeigandinn ungi að Hnjúki ehf.
![]() |
Kærður fyrir fjárdrátt og misneytingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2016 | 16:23
Bændasósialismi
Fulltrúi sérhagsmunanna no.1 á Alþingi Íslendinga, Sigurður Ingi Jóhannsson tilkynnti fyrir nokkru að hann væri að vinna að nýjum búvörusamningi þar sem ætlunin væri að afnema kvótastýringu í sauðfjárrækt og mjólkurframleiðslu. Ef þetta hefði náð fram að ganga þá hefði verið hægt að kalla nýjan búvörusamning tímamótasamning. En nei, auðvitað gat þetta aldrei orðið. Það gleymdist nefnilega að bera málið undir Þórólf Gíslason og fá stuðning hans við stefnubreytingunni. Afleiðingin er vondur samningur fyrir ríkið. Vondur samningur fyrir bændur og áframhaldandi einokun afurðastöðvanna. Ennfremur er búið að setja varnagla við afnámi kvóta því tryggt er í samningnum að ríkið mun greiða fullt verð fyrir innlausn kvóta eftir 2020. Þetta þýðir að eigendur framleiðslukvóta í mjólk og kjöti fá tvöfaldar beingreiðslur fyrir að leyfa ríkisvaldinu að auka frelsi í greininni! Það er ekki eins og það sé verið að borga einhvern út. Nei menn munu hafa fullt frelsi til að auka tekjur sínar af bújörðunum en vera jafnframt á fullum listamannalaunum á kostnað skattgreiðenda. Þetta er ríkissósialismi af verstu gerð og grímulaus sóun á almannafé.
En það er áreiðanlega ekki á vitorði allra hvernig beingreiðslum er háttað, alla vega ekki í sauðfjárrækt. En þar hefur mönnum verið borgað fyrir ærgildi en ekki þurft að eiga nema 0.7 vetrarfóðraðar ær á móti. Þetta er sambærilegt og að Sjúkratryggingar greiddu Ásdísi Höllu fyrir 100 legurými en hún þyrfti ekki að leggja til nema 70! Fyndist mönnum það í lagi?
3.6 Til að fá fullar beingreiðslur þarf framleiðandi að eiga að lágmarki 0,7 vetrarfóðraðar kindur fyrir hvert ærgildi greiðslumarks. Þetta skilyrði fellur niður frá og með 1. janúar 2021.
3.8 Handhafar greiðslumarks geta óskað eftir innlausn á greiðslumarki sínu frá gildistöku samningsins til 31. desember 2020. Ríkissjóður skuldbindur sig til að kaupa greiðslumarkið á núvirtu andvirði beingreiðslna tveggja næstu almanaksára eftir að innlausnar er óskað samkvæmt ákvæðum samningsins. Matvælastofnun annast innlausn greiðslumarks. Þeim fjármunum sem þannig losna síðar á samningstímanum skal ráðstafað á aðra liði samkvæmt ákvörðun framkvæmdanefndar búvörusamninga.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)