Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hugtak í hagfræði

-lóðréttur jöfnuður: þeir sem geta borgað meira eiga að gera það.

Skilur einhver þetta hugtak?

 


Til hamingju Heiðveig María

Dómur Félagsdóms er alvarlegur áfellidómur yfir trúnaðarráði Sjómannafélags Reykjavíkur og fyrrverandi formanni Jónasi Garðarssyni.  Eftir þennan dóm þá er full ástæða til að láta ógilda kosningarnar frá því desember, þar sem þær voru ólöglegar og greinilega til þess gerðar að hylja yfir kolólöglega ráðstöfun á fjármunum Sjómannafélagsins og ráðstöfunum fyrrverandi formanns.  Það þarf að láta gera óháða opinbera rannsókn á bókhaldi Sjómannafélagsins og ég treysti Heiðveigu Maríu best til að biðja um slíka rannsókn.


mbl.is Sjómannafélagið braut lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðningarsamtöl

Ráðningarviðtal 1

Ráðningarfulltrúinn: Velkomin Salvör Lilja. Okkur var falið að ræða hér við þá umsækjendur um starf hótelstjóra Grand Hótels, sem helst komu til greina. Eins og þú veist þá starfa á hótelum fjöldi af ófaglærðu fólki við alls konar störf. Og þar sem launakostnaður er fastur kostnaður skiptir miklu að halda honum sem lægstum. En á sama tíma þá hafa starfsmenn ýmis réttindi og þar á meðal rétt á veikindadögum. Hvað myndir þú gera til að fækka þessum veikindadögum ef þú yrðir ráðin hótelstjóri?

Salvör Lilja: Það væri náttúrulega best að ráða bara erlent vinnuafl, sem vissi ekkert um íslenska vinnulöggjöf. Útlendingarnir gera engar kröfur og eru ódýrari. Bara passa að fulltrúar Eflingar séu ekkert að þvælast inni á vinnustaðnum. En ef það er ekki kostur þá mundi ég búa til veikindalista og merkja við hvern starfsmann, hvenær og hve oft hann er veikur. Síðan mundi ég hengja listann upp á vegg og hóta fólkinu að það verði hýrudregið ef það tekur sína lögboðnu veikindadaga.  Jamm það er það sem ég mundi gera..

Ráðningarfulltrúinn: Takk fyrir þetta svar Salvör Lilja. Og til hamingju!  Þú ert ráðin

 

Ráðningarviðtal 2

Ráðningarfulltrúinn: Velkomin María Björk. Okkur var falið að ræða hér við þá umsækjendur um starf framkvæmdastjóra Almenna Leigufélagsins, sem helst komu til greina.  Eins og þú veist þá eru helstu eigendur Almenna Leigufélagsins, fjárfestar sem vilja helst ekki koma fram opinberlega svo þeir ætla að ráða framkvæmdastjóra sem verður ábyrgur gagnvart þeim en á sama tíma verður hann að tryggja frið um starfsemi leigufélagsins. Hvers vegna ættu þeir að ráða þig?

María Björk: Ég er rétta manneskjan í starfið vegna þess að mér finnst leigjendur algerir lúserar. Og það er svigrúm til að hækka leigu. Samkvæmt tekjusögu.is þá eru ráðstöfunartekjur leigjenda of háar. Þessir aumingjar eru meira að segja að fara til útlanda eins og við hin.  Ég mundi hækka leiguna svo enginn hefði efni á að kvarta. Allir mundu þurfa að leggja á sig meiri vinnu og hefðu ekki orku í neitt annað. Ef einhver myndi gera athugasemd og kalla þetta okur þá myndi ég fá Ásgeir Jónsson hjá Auðfræðasetrinu, til að skrifa skýrslu og segja að leigufélögin séu svo illa stödd að það sé meira svona góðverk að standa í þessu. Fjölmiðlamenn eru svo heimskir að þeir gleypa við öllu bara ef einhver doktor í Háskólanum segir það.  

Ráðningarfulltrúinn:  Vá! Þú ert sko örugglega rétti kandidatinn í þetta starf. Djísús kræst! við héldum satt að segja að slíkt viðhorf fyrirfyndist ekki lengur.  En til hamingju.  Þú byrjar svo bara strax í dag. Og þú færð fyrirframgreiddan bónus á morgun.


mbl.is Veikindalisti hafi ekki hangið uppi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sólveig Anna er frábær

Efling er að gera góða hluti.  Það er flest mennskt fólk sammála um. En Sólveig Anna þarf að passa sig á að taka ekki baráttuna of mikið inn á sig.  Sama hve miklu óréttlæti, ruddaskap og skilningsleysi hún mætir, þá verður hún að halda ró sinni. Fjölmiðlar og atvinnurekendur sitja um hvert hennar orð eins og hýenur, í von um að hún brotni.  Það má ekki ske.


mbl.is „Svo sannarlega ekki einsdæmi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ragnar Þór beitir afli sem virkar.

Þegar Almenna Leigufélagið ætlaði að níðast á skjólstæðingum sínum gerði Ragnar Þór Ingólfsson það eina sem virkar gegn fjármagnseigendum. Hann tók upp símtólið, hringdi í Ármann Þorvaldsson, forstjóra Kviku hrægammasjóða og setti honum afarkosti.  Annað hvort sérð þú til þess að þessi hækkun á leigu verði dregin til baka eða ég tek 4 milljarða úr fjárstýringu hjá ykkur.  Hrægammastjórinn fékk 3 daga til að hugsa málið og það dugði. Almenna Leigufélagið lofaði að haga sér og Kvikuforstjórinn slapp við þetta run á bankann sem í hótun Ragnars fólst.  Sennilega hefði Kvika ekki getað borgað út þessa 4 milljarða og það hefði þýtt að bankinn hefði verið tæknilega ógjaldfær og það hefði þýtt afskipti FME og ófyrirsjáanleg vandræði fyrir hluthafa þessa hrægammafyrirtækis.

Og hvað kennir þessi saga okkur?  Hún kennir okkur að það er ekki lögmál að leigufélög hagi sér eins og blóðsugur í launaumslögum skjólstæðinga sinna. Það er hægt að stoppa þetta viðbjóðslega leiguokur sem stjórnvöld hafa leyft að grassera.  Það er hægt að setja leiguþak.  Það er hægt að frysta leigu. Og það er hægt að setja lög um okur.  Allt þetta er hægt að gera ef vilji er til.  En viljann vantar hjá stjórnvöldum.  Þess vegna er gott til þess að vita að almenn launafólk og lítilmagnar skuli eiga hauk í horni þar sem Ragnar Þór Ingólfsson er. Enda þorði enginn í hann í síðustu kosningum til formanns hjá VR.  Með sigrinum á Almenna Leigufélaginu eru honum allir vegir færir. Hann hefur meira fylgi en ríkisstjórnin í dag.

Kannski að Katrín og Bjarni fundi og endurmeti stöðuna í þessu ljósi.  Allavega held ég að þeirra spindoctorar hljóti að vera orðnir áhyggjufullir yfir ástandinu. Óvinurinn er ekki Gunnar Smári eða Karl Max, eins og Friðjón spunakarl heldur. Gunnar Smári hefur enga vigt.  Það hafa hins vegar Ragnar Þór, Vilhjálmur Birgisson, Anna Sólveig og Drífa Snædal.


mbl.is „Mjög ánægjuleg lending“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítverkin í pólitíkinni

Vigdís þekkir skítverkin í pólitíkinni. Hún er mágkona Guðna Ágústssonar og gjörþekkir hvernig kaupin gerast í Framsóknarflokknum sem löngum hefur verið tákngervingur pólitískrar spillingar enda orðtakið "að moka framsóknarflórinn"  fast í málinu . Og nú er hún að hræra skít fyrir Sigmund Davíð svo það er örugglega rétt hjá henni að nýjustu fréttir frá skrifstofu borgarstjórans í Reykjavík eru undanfari pólitískra breytinga og uppstokkunar í stjórnkerfinu. Vissulega hefur minnihlutinn í borgarstjórn haldið uppi harðri andstöðu en öll sú gagnrýni virðist samt réttmæt og málefnaleg og ekki ástæða fyrir embættismann eins og borgarritara að láta draga sig inn í pólitískar deilur borgarfulltrúa. En það hefur hann nú samt látið yfirmann sinn, Dag B Eggertsson, gera.  Þetta hlýtur að hafa afleiðingar fyrir Stefán og Dag. Borgarstjóri og borgarritari þurfa að vinna náið með öllum kjörnum fulltrúum.  Ekki bara þeim sem mynda meirihlutann. 

Ég hef í öllum mínum pistlum bent á einu lausnina , sem er í stöðunni og hún er að Dagur láti af starfi borgarstjóra og ráðinn verði ópólitískur maður sem hefur reynslu, þekkingu og færni í mannlegum samskiptum til að stjórna borginni. Ljóst er að hvorki Dagur né Stefán búa yfir þessum kostum svo þegar Dagur lætur af störfum borgarstjóra er réttast að Stefán hætti líka.

Þetta er eina lausnin sem í boði er. Það verða hvort sem er engir hausar látnir fjúka vegna klúðursins hjá þeim sem stýrðu skrifstofu eigna og atvinnuþróunar. Sú skrifstofa verður lögð af en það er ekki nóg.  Stefán borgarritari er búinn að gera sjálfan sig vanhæfan og saman verða þeir Dagur að súpa bikar vonbrigðanna að vera ekki hæfir til að sinna störfum sínum. Vera verri en Jón Gnarr!


mbl.is Síðasta skítverkið fyrir borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrasti Íslendingurinn

Bjarni Benediktsson kostar ríkissjóð 100 milljarða. Það er sú upphæð sem vinir hans og viðskiptafélagar hafa skotið undan skatti vegna glufa í skattalögum sem Bjarni vill ekki breyta. Honum finnst brýnna að halda niðri fólkinu í landinu með launapólitík fjármálaráðuneytisins sem fyrirlítur vinnandi fólk en upphefur fjármagnseigendur og fjárfesta. 

Á Íslandi verður enginn pólitískur friður með Bjarna Benediktsson í Fjármálaráðuneytinu.  Vinnudeilur SA og ASÍ eru bara forsmekkurinn af því sem verður þegar BSRB og BHM og öll hin félögin, setjast niður með samninganefnd ríkisins.  Eftir það verður líf Ríkisstjórnarinnar talið í mánuðum en ekki árum.

Úr því sem komið er þá stefnir allt til andskotans fyrir heimsku og skilningsleysi ráðamanna.  Alþingi og ríkisstjórn hafði þetta í hendi sér árið 2016. En góðærið blindaði þau. Þeim fannst svo sannarlega þau vera verðug ríkulegrar launahækkunar.  Og stjórnendur ríkisfyrirtækja sem allir eru pólitískt ráðnir fengu líka samsvarandi launahækkanir.  Það var passað upp á það og enginn sagði:  En hvað með pöpulinn?

Fólkið sem lætur lögregluna slá um sig skjaldborg þegar það þarf að ganga á milli Dómkirkju og Alþingishúss, því er andskotans sama um almenning í landinu. Það er vandamálið! Enginn flokkur er að gera neitt til að koma á friðsamlegum samskiptum í þjóðfélaginu. Og nú vakna menn upp við hin sósialísku herköll. Og jafnvel þá skynjar pólitíska elítan við Austurvöll, ekki sinn vitjunartíma. 

Ég spái kosningum með vorinu. Og þá mun fylgi Sjálfstæðisflokksins halda áfram að minnka. Það tekur tíma að uppræta spillingu en það mun takast.  Þá getur Bjarni Ben aftur geta tekið við eignum sínum og þarf ekki lengur að fela þær fyrir hagsmunaskráningunni á Alþingi.


Senda vinnumansalsteymið á þennan vambsíða

vambiUppákoman í Ármúlanum er lýsandi fyrir atvinnurekanda, sem fer illa með erlent vinnuafl. Hvernig hann lýsir uppákomunni er sönnun þess að maðurinn vill ekki að starfsfólkið njóti mannréttinda. Því er haldið að vinnu og meinað að tala við fulltrúa stéttarfélagsins, sem þau greiða félagsgjöld til af launum sínum. Að yfirmaður á vinnustað hagi sér svona lýsir bara innræti hans sem algers rudda og yfirgangsseggs, sem greinilega heldur sig hafinn yfir reglur samfélagsins. Í því sambandi er rétt að geta, að þetta er sami maðurinn og byggði við þetta hótel sitt án tilskilinna leyfa og komst upp með það. Sumir eru greinilega jafnari en aðrir og rennir stoðum undir kenningu Styrmis, að hér sé Djúpríkið grasserandi.

Það er auðvelt að setja sig í spor starfsfólksins. Ef þetta eru útlendingar þá er öruggt að það fólk lætur bjóða sér allt gegn því að halda vinnunni. Hér þarf Vinnumansalsteymið að mæta á staðinn og leggja hald á bókhald eigandans.  bera það svo saman við launaseðla starfsfólksins og birta niðurstöður þeirrar rannsóknar opinberlega.

Það er grafalvarlegt mál ef atvinnurekendur komast upp með að meina fólki að taka afstöðu í vinnudeilum. Sá vambsíði þykist borga 420 þúsund fyrir ræstingar en hvað eru margar vinnustundir á bakvið þá upphæð og hvað dregur hann frá?  Það er nefnilega ekki upphæð launa sem segir okkur neitt, ekki frekar en tekjusaga Katrínar og Bjarna. Kjarabaráttan núna snýst um að lifa af launum fyrir hóflega vinnu.  Ekki að þurfa að þræla sér út til að eiga fyrir mat og leigu.  


mbl.is Segist ekki hafa meinað fólki að kjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væl í Jóhannesi útskýrara

Ferðaþjónustan er sennilega sú grein sem mest svíkur undan skatti og sem mest níðist á sínu skammtímavinnuafli fyrir utan verktakabransann. Ferðaþjónustan með sínar bókanir á netinu og tekjur í gjaldeyri, sem ekki þarf að standa skil á, er verðugt skotmark verkalýðs í baráttu fyrir sanngjörnum launum. Ferðaþjónustan sem er eins og æxli á þjóðarlíkamanum. Notar innviðina og hórast á náttúrunni án þess að greiða fyrir afnotin, henni er ekki vorkunn að segja sig úr SA og ganga að kröfum Eflingar helst í gær. Þetta væl í Jóhannesi útskýrara er bara væl, Kjaftæði án innistæðu. Það geta allir sagt að dregið hafi úr bókunum án þess að þurfa að standa við það. 

Fyrst birt sem innlegg við færslu leigupenna auðrónanna, Páls Vilhjálmssonar


mbl.is „Sem mest tjón á sem skemmstum tíma“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöðugleikinn er á ábyrgð ríkisvaldsins

Ásgeir Jónsson, talsmaður auðmagnsins bregst ekki húsbændum sínum frekar en fyrri daginn enda ferðalag hans um ríkislendurnar mjög ábatasamt þessa dagana. Ég veit ekki hvernig maðurinn hefur tíma til að skrifa þessar greinar sínar því fyrir utan að vera í fullu starfi sem dósent við Hagfræðideild Háskóla Íslands og forseti sömu deildar, þá rekur hann fyrirtæki sem heitir því ósmekklega nafni, Auðfræðasetrið og í gegnum það hefur hann tekið inn hundruð milljóna  frá Fjármála og forsætisráðuneytinu. því hann hefur verið stjórnvöldum mjög innanhandar við gerð áróðursefnis varðandi ríkisfjármál. Til dæmis átti hann stóran þátt í samningu Hvítbókar Bjarna Ben um hversu nauðsynlegt væri að selja hlut bankanna með 100 miljarða afslætti.

Þessi maður er nú kynntur sem fyrrverandi hagfræðingur Dagsbrúnar! Af hverju ekki sem fyrrverandi forstöðumaður greiningadeildar Kaupþingsglæpabanka! Eða fyrrum ráðgjafi Hrægammafyrirtækisins Gammar!  Sömu hrægammanna sem eru búnir að hreiðra um sig á fasteigna og leigumarkaðinum og eru nú að festa sig í sessi á tryggingamarkaði undir forystu þokkahjúanna Svanhildar Nönnu og Einars Arnar Glitnisræningja sem eru búin að vera til rannsóknar hjá saksóknara í 3 ár. Meira um það síðar.

En ég er að tala um Ásgeir Jónsson, son Jóns Bjarnasonar fyrrum sjávarútvegsráðherra í stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Vegna tengsla inní stjórnmálin lenti þessi maður á fótunum eftir hrunið og er nú hans þáttur í hruninu flestum gleymdur.

Persónulega tek ég ekki mark á svona manni. Enda eru hans fræði engin vísindi.  Í bezta falli hafa þau spágildi en jafnvel það hjálpaði Ásgeir Jónssyni ekki sem forstöðumanni greiningadeildar Kaupþings glæpabanka. Nema hann hafi tekið við skipunum frá yfirstjórninni og þannig verið ábyrgur fyrir blekkingum vegna fjárhagsstöðu bankans í langan tíma fyrir fall hans.

En fólkið í greiningadeildunum var aldrei dregið til ábyrgðar ekki frekar en endurskoðendurnir. Það var meðvituð ákvörðun því AGS og ríkisstjórnin með pabba Ásgeirs innanborðs voru ákveðin í að endurreisa sama spillta kerfið eftir hrun.  Í því verki hefur Ásgeir reynst drjúgur liðsmaður.  Og þénað vel!

Þegar svona maður póstar status á fésbók og varpar ábyrgð á stöðugleika í hendur verkalýðsforystunnar er ekki hægt annað en svara því á öllum vígstöðum. Því það er ekki hlutverk verkalýðsforystunnar að kostnaðarmeta kröfugerð sem snýr að aðgerðum stjórnvalda til jöfnunar lífskjara.  

Ásgeir Jónsson ætti að hafa vit á að halda sig til hlés á meðan ábyrgt fólk reynir að leysa úr því ástandi sem hans ráðleggingar hafa sannlega átt þátt í að skapa og valdið þeirri þjóðfélagsgliðnun sem kröfugerð verkalýðshreyfingarinnar er að reyna að brúa.


mbl.is Kjarabaráttan snýst ekki um staðreyndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband